Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 66
66 LÍFSSTÍLL - KYNLÍF 19. október 2018 Sjálfsfróun er góð fyrir líkama og sál M eð sjálfsfróun styrkir þú ást- arsambandið við sjálfa þig. Þekking á eigin líkama get- ur verið mjög valdeflandi og betra/jákvæðara samband við lík- amann eykur hamingju þína og gerir þig hæfari til að finna hamingju með öðrum. Partur af því að þekkja píkuna er að skoða hana. Finndu þér spegil sem þú getur látið standa sjálfan eða hallast upp að vegg – sundur með fætur og tékkaðu á henni. Sjáðu fellingarnar, litina, hárin og húðina. Hvaða tilfinn- ingar kvikna? Píkur eru alls konar og fjölbreytnin er fögur. Mundu líka að þú getur látið þér þykja vænt um hana þó að útlitið sé ekki nákvæmlega eins og þú bjóst við eða vildir. Sjálfsfróun bætir kynlíf þitt með öðrum. Sjálfsfróun er langbesta leiðin til að skoða hvað virkar fyrir þig og hvaða leiðir þú getur notað til að fá fullnægingu með öðrum. Það sem þú gerir í kynlífinu með sjálfri þér á líka heima í bólinu með því fólki sem þú kýst að stunda kynlíf með. Ef þú veist hvað virkar og hvað þú vilt getur þú kennt einhverjum öðrum þær aðferðir. Í öllum bænum ekki hætta að fróa þér þó að þú farir í fast samband – passaðu upp á að eiga kynlífsstefnumót með sjálfri þér reglulega þó að elskhugar og ástkonur þurfi stundum athygli. Sjálfsfróun hefur góð áhrif á sjálfs- mynd þína, líkamlega og andlega. Þegar þú fróar þér ertu að sýna sjálfri þér ást – stunda kynlíf með einhverj- um sem þú elskar skilyrðis laust. Lík- amleg vellíðan eykur á hamingju og hamingjusöm ertu skemmtilegri og meira sjarmerandi manneskja. Sjálfs- traust er öflugasti lostavaki í heimi. Sjálfsfróun er holl fyrir píkuna þína. Sjálfsfróun eykur blóðflæði til ytri og innri kynfæra og hefur góð áhrif á grindarbotnsvöðvana. Við fullnægingu verður ósjálfráður sam- dráttur í vöðvunum sem styrkjast við það, rétt eins og þegar þú gerir grindarbotnsæfingar. Sterkur og heil- brigður grindarbotn minnkar líkur á þvagleka og bætir kynheilsu þína. Sjálfsfróun bætir svefn. Þú kann- ast vonandi við sælu- og slökunartilf- inninguna sem kemur í kjölfar full- nægingar. Hún flæðir um líkamann þegar sæluhormón eins og endorfín og oxytósín losna við fullnæginguna. Hormónin geta hjálpað þér að slaka á, sofna og meira að segja verður svefn- inn dýpri og betri. Sjálfsfróun er góð fyrir hjartað. Kon- ur deyja úr hjartasjúkdómum og mörg- um reynist erfitt að koma reglulegri lík- amsrækt inn í daglega prógrammið. Þá er aldeilis gott að vita að það má þjálfa hjartað og bæta blóðflæði líkamans með því að fróa sér. Það hefur meira að segja komið fram í nokkrum rann- sóknum að konur sem fá það reglulega eru ólíklegri til að þróa með sér hjarta- sjúkdóma og sykursýki 2. Sjálfsfróun er öruggt kynlíf! Svo framarlega sem þú fróar þér ekki marga klukkutíma á dag og hættir að tannbursta þig/mæta í vinnuna/tala við fjölskyldumeðlimi/greiða þér/ nærast almennilega/setja statusa á Facebook … eða álíka. Þú þarft engar áhyggjur að hafa af því að verða ólétt eða fá kynsjúkdóma. Sjálfsfróun minnkar stress. Þegar þú færð fullnægingu ferðu í eins kon- ar náttúrulega vímu – vegna hormón- anna sem losna í líkamanum. Sum- ar rannsóknir hafa bent til þess að sjálfsfróun geti jafnvel minnkað líkur á þunglyndi. Ertu leið? Þá er kannski prýðileg hugmynd að þú elskir sjálfa þig aðeins oftar! Ragnheiður Haralds- og Eiríks- dóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi Spurningar og tímapantanir: raggaeiriks@gmail.com www.raggaeiriks.com „Þegar þú fróar þér ertu að sýna sjálfri þér ást – stunda kynlíf með einhverjum sem þú elskar skilyrðislaust
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.