Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Page 36
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018KYNNINGARBLAÐ I Heildverslun flutti þann 2. maí 2018 að Hvaleyrarbraut 35 í Hafnarfirði, en verslunin hefur verið rekin sem fjölskyldufyrirtæki. Markmið verslunarinnar er að ein- falda heimilisstörfin með skemmti- legum vörum. „Við erum búin að flytja inn ilmkerti í 15 ár,“ segir Björg Skúla- dóttir eigandi, en kerti frá þeim fást í verslunum Bónus um land allt. Í versluninni að Hvaleyrarbraut og í vefversluninni ihverslun.is fást einnig Bath- and Body Works-kerti, ásamt fleiri vörum. Kertin eru amerísk og auk hefð- bundins ilms, sem er í sölu allt árið, þá kemur inn árstíðabundinn ilmur, „eins og fyrir jólin núna þá koma fimm nýjar ilmtegundir sem hafa ekki verið áður til hjá okkur,“ segir Björg. Hleðsluljós eru mjög sniðug og hentug, bæði fyrir budduna og umhverfið. „Þau má hlaða og hver hleðsla endist í allt að 14 tíma. Einnig má skipta um lit á þeim, eins og núna þá eru þau bleik í glugg- anum hjá okkur í tilefni af bleikum október.“ Það nýjasta eru sniðugar ilm- kúlur á hagstæðu verði, sem fást bæði hjá I Heildverslun og í Bónus. „Þær má setja inn á bað, í rusla- skápinn eða á náttborðið. Dósin er opnuð og þá eru göt á henni eins og á púðurdós og þá kemur ilmur- inn upp. Síðan eyðast kúlurnar upp á mánuði.“ Í versluninni fæst einnig mikið úrval heimilis- og gjafavöru, sem ekki fæst annars staðar og því tilvalið að gera sér ferð í verslunina eða skoða úrvalið á heimasíðunni. I Heildverslun ehf. er að Hval- eyrarbraut 35, Hafnarfirði. Síminn er 555-2585 og heimasíðan er ihverslun.is. Opnunartími er mánu- daga–föstudaga frá kl. 10–17 og laugardaga frá kl. 11–14. I HEILDVERSLUN: Kerti fyrir öll tækifæri allan ársins hring

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.