Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Side 24
24 8. júní 2018FRÉTTIR
Mitzvah í gyðingdómi, algjör
grundvallarþáttur, og hefur til
dæmis forgang fram yfir friðhelgi
Yom Kippur-hátíðarinnar.“ Yom
Kippur er helgasti dagur gyðinga,
haldinn um miðjan september.
Avi leggur áherslu á orð sín þegar
hann segir:
„Aðeins eitt hefur forgang fram
yfir umskurð og það er heilsa
barnsins. Ef barn er ekki reiðu-
búið fyrir umskurð er honum
frestað þangað til heilsa barns-
ins leyfir. Hvað varðar rétt barns-
ins þá er umskurður eitthvað sem
foreldrum er treyst til að ákveða
líkt og mörgum öðrum. Í dag er
umskurður leyfður í öllum ríkj-
um veraldar.“
Sýnagóga, barnaskóli og trúar-
leg baðlaug í sigtinu
Lítur þú á þig sem trúboða?
„Við lítum svo á að við séum
að koma með umgjörð utan um
trúarlíf gyðinga til landsins. Þetta
er þjónusta fyrir fólk sem vill læra
um gyðingdóm af fúsum og frjáls-
um vilja og ekki aðeins gyðinga.
Við erum samt ekki að reyna að
snúa fólki til gyðingdóms.“
Hversu margir gyðingar búa á
Íslandi?
„Það hefur aldrei verið neitt
utanum hald um samfélagið
þannig að það hafa aldrei verið til
staðar nákvæmar tölur, en þetta
eru sennilega nokkur hundruð.
En við hugsum meira um einstak-
lingana en fjöldann. Margir af
þeim eru innflytjendur, til dæm-
is frá Norður- og Suður-Ameríku,
en aðrir Íslendingar sem komn-
ir eru af dönskum gyðingum sem
fluttu hingað fyrr á öldum. Þetta er
góð blanda og fólk þekkist vel inn-
byrðis.“
Avi segir að Ísland sé hentugt
land fyrir gyðinga að búa á. Ís-
lendingar séu almennt trúaðir þó
að vissulega séu margir veraldlega
sinnaðir. Landið sé í raun heim-
ili margra ólíkra trúarbragða og
gyðingdómur á sér stað hér.
„Trúfrelsi er okkur sérstaklega
mikilvægt og metum við það mik-
ils við bæði þjóðina og ríkisstjórn-
ina að það frelsi sé til staðar.“
Er takmark ykkar að koma á
fót sýnagógu á Íslandi?
„Já, það er framtíðartakmarkið.
Núna leigjum við sali undir hátíðir
og samkomur, til dæmis á hótelum.
En okkur langar til að eignast eigin
sýnagógu þar sem við getum beðið
og iðkað okkar starfsemi.“
Annað sem Avi vill koma á lagg-
irnar er svokallað Mikvah, sem
er nokkurs konar trúarlegur bað-
staður. Samkvæmt helgiritum eiga
gyðingakonur að baða sig í Mikvah,
sérstaklega áður en þær giftast, en
mikilvægt er að laugin sé náttúru-
leg. Avi segir Ísland sérstaklega
hentugt þar sem hér séu margar
náttúrulegar jarðhitalaugar.
„Vatnið táknar lífið líkt og það
sem umlykur okkur í móðurkviði.
Mikvah snýst um jákvæða lífsorku
og andlega hreinsun og sérstök
Mitzvah, eða boðorð, sem gyðingar
hafa fylgt í þrjú þúsund ár.“
En sérstaka skóla fyrir gyðinga-
börn?
„Það er möguleiki en við erum
enn þá að læra á þjóðfélagið. Í
framtíðinni verður kannski sérstak-
ur skóli fyrir gyðingabörn. Þetta
væri skóli þar sem börnunum yrði
kennd gyðingleg málefni en auð-
vitað einnig íslenska og önnur fög.“
Vill einblína á það sem sameinar
gyðinga
Avi klæðist svörtum fötum, ber
barðahatt og safnar bæði skeggi
og bartalokkum, þótt þeir séu
enn þá mjög stuttir. Dæmigert út-
lit fyrir svokallaða rétttrúnaðar-
gyðinga (Hasidic) sem á rætur að
rekja til Austur-Evrópu á 18. öld.
Avi er samt ekki tamt að skilgreina
sig sem slíkan.
„Þetta er kallað það og sumir
vilja setja alls kyns merkimiða á
okkur en við sjáum okkur sem
gyðinga. Í okkar augum er þetta
gerviflokkun og allir gyðingar ein
þjóð. Við viljum að öllum líði vel
og að allir séu velkomnir, alveg
sama hver bakgrunnurinn er.“
Er þá enginn munur á siðum
gyðinga?
„Ég er ekki að segja það,
en okkar sýn er sú að það sé
ónauðsynlegt að skoða þá hluti
sem aðskilja okkur. Við einblínum
á það sem sameinar okkur.“
Kjöt dýra með góð
persónuleikaeinkenni
Gyðingar sem iðka trú sína af festu
halda sabbatinn frá föstudags-
kvöldi fram á laugardagskvöld. Avi
segir þann dag notaðan til að kúp-
la sig út úr hraða og amstri þjóð-
félagsins og tengjast fjölskyldunni
og guði sínum sterkari böndum.
„Við reynum að hvílast eins
mikið og við getum. Við versl-
um ekki og geymum öll símtöl og
erindi þangað til sabbatinum er
lokið. Þetta er slökunardagur og
fólk sem heldur upp á hann kann
að meta þetta. Það er eiginlega
ekki hægt að lýsa þessu því mað-
ur verður að prófa til að kunna að
meta þetta. Þetta er dagurinn sem
við hugsum um það sem skipt-
ir máli, samböndin, fjölskylduna,
hugmyndir um tilveruna, trúna og
fleira.“
Er nóg af kosher-fæði á Íslandi?
„Við borðum öll dýr sem jórtra
og hafa klofnar klaufir og er slátr-
að á ákveðinn hátt. Til dæmis
lömb, nautgripi, dádýr og fleira.
Íslendingar veiða mikið af ljúf-
fengum kosher-fiski, sem er all-
ur fiskur sem hefur ugga og roð;
lax, þorsk og fleira. Allir ávextir og
grænmeti er kosher. Hingað er líka
flutt mikið af erlendum matvælum
um mörg þeirra eru sérmerkt kos-
her. En mörg matvæli eru kosher
þótt þau séu ekki sérmerkt. Maður
verður þá að gera rannsókn á því
hvað er í matnum og hvernig hann
er unninn.“
Er þá bannað að borða til
dæmis svínakjöt og kolkrabba?
„Já, það er bannað. Torah,
trúarrit okkar, er leiðbeiningar lífs-
ins og þar eru reglur um hvað sé
kosher. Í Torah eru gefnar margar
ástæður fyrir því af hverju aðeins
sumt er kosher og ein af þeim er sú
að það sem við borðum hafi mik-
il áhrif á okkur sjálf, það verður
hluti af okkur. Í gyðingdómi skiptir
miklu máli að dýrin sem við borð-
um hafi góð persónuleikaeinkenni
og séu ljúf. Þegar við borðum dýr
sem hafa þessi einkenni byggjum
við þau upp í okkur sjálfum. Með
því erum við samt ekki að segja
að þeir sem borða svínakjöt hafi
slæm persónuleikaeinkenni en í
gyðingdómi hugsum við sérstak-
lega mikið um þetta.“
Avi segir einnig að dýrunum
verði að vera slátrað á ákveðinn
hátt. Ekki megi nota loftbyssur
með pinna eins og eru notuð í
íslenskum sláturhúsum heldur
verði að nota hárbeitt blað.
„Að nota beitt blað er sársauka-
lausasta leiðin til að aflífa dýr. Að
valda ekki óþarfa sársauka er eitt-
hvað sem skiptir mjög miklu máli
í gyðingdómi. Hnífurinn verður að
vera fullkominn, það má ekki vera
ein hrufa á blaðinu. Síðan verður
að setja kjötið í salt sem dregur í
sig blóðið, því blóð er ekki kosher.
Þetta eru smáatriði sem skipta
okkur samt máli.“
Föðurafinn lifði helförina af
Föðurafi Avi var pólskur gyðingur
sem lenti í klóm nasista og var
sendur í útrýmingarbúðir, fyrst í
smærri þrælkunarvinnubúðir en
síðan í Auschwitz þar sem millj-
ónum var útrýmt. Hann lifði stríð-
ið af og flutti til Ísrael ásamt bróð-
ur sínum sem einnig var fangi
í Auschwitz. Sem ungur maður
flutti hann til Bandaríkjanna og
kynntist móður Avi, sem er banda-
rískur gyðingur frá New York. Avi á
því rætur á öllum þessum stöðum.
Hversu mikilvægt er Ísraelsríki
í augum gyðinga?
„Ísrael er heimaland gyðinga
og hefur verið það frá örófi alda,
í meira en þrjú þúsund ár en
ekki aðeins frá 1948 þegar það
varð sjálfstætt ríki. Mjög margir
gyðingar hafa búið þar einhvern
hluta ævi sinnar og þegar þeir
fara með bænir snúa þeir í átt að
Jerúsalem.“
Hvað finnst ykkur um þessa
deilu og hvernig mynduð þið vilja
sjá hana leysta?
„Við, samfélag gyðinga á Ís-
landi, tökum ekki pólitíska af-
stöðu og skiptum okkur því ekki
af þessari deilu frekar en öðrum.
Ég tel mikilvægt að báðir aðilar
reyni að skilja afstöðu hvor annars
en læt stjórnmálamönnunum
á svæðinu það eftir að kljást við
þetta vandamál.“ n
ERTU AÐ FARA Í FLUG?
ÞJÓNUSTUM ÞIG OG ÞÍNA Í MAT
OG DRYKK
Hafnargata 19a Keflavík / S. 421 4601
„Fréttirnar af hvoru
tveggja komu um svip-
að leyti en ákvörðun
okkar var tekin áður
en frumvarpið var lagt
fram“