Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Síða 55
BLEIKT 558. júní 2018
kom ég mér bara af stað aftur.“
Sigríður segist í raun hafa verið
búin að undirbúa sig fyrir að grein-
ast aftur áður en að sárin byrjuðu
að myndast í seinna skiptið.
„Það tók á að greinast aftur en
ég var eiginlega búin að undir-
búa mig fyrir það. Ég tók þessu
samt á jákvæðan hátt aftur. Lyfja-
meðferðin gengur vel núna en það
þurfti að minnka skammtinn um
þriðjung, því að ég fékk svo svaka-
legar aukaverkanir. Sárin lokuðust
fljótt eftir að lyfjagjöf hófst og ég
held að horfurnar séu mjög góðar,
þótt ég viti í raun ekkert um það.“
Sigríður viðurkennir að komið
hafi upp tímabil þar sem hana
langaði einfaldlega að gefast upp.
„Stundum vildi ég bara gefast
upp og leyfa meininu að sigra mig.
Ég var orðin þreytt, örmagna og
búin að fá nóg. Ég held að þetta
gerist hjá öllum sem berjast við
krabbamein. Ég vildi samt ekki
sýna alheiminum það, svo aðeins
örfáir fengu að vita af því og fékk
ég að heyra skammirnar fyrir að
láta mér detta það í hug. Í svona
bardaga við lífið er ómetanlegt að
hafa fólk í kringum sig sem virðir
mann og leyfir manni að berjast.
Stuðningur og virðing er ómetan-
leg í þessu ferli sem og bataferlinu.
Að hafa fólk til hliðar þegar maður
snýst í hringi og veit ekkert hvernig
maður á að lifa lífinu aftur.“
Ætlar að ferðast á meðan
hún getur
Sigríður segist hlakka til að geta
hafið störf aftur, þegar hún verð-
ur búin að jafna sig almennilega
á krabbameininu, en þangað til
stefnir hún á að ferðast mikið.
„Ég er nýkomin heim frá Glas-
gow, sem ég fór til með mannin-
um mínum, og er á leið til Noregs
með stráknum mínum í enda júní.
Í júlí er ég svo að fara með vinkon-
um mínum til Balí þar sem við
verðum í tvær vikur og svo ætla ég
á vörubílasýningu í lok ágúst með
manninum og vinum okkar en ég
hef starfað sem flutningabílstjóri
undanfarin fimm ár.“
Sigríður segir enga tvo upp-
lifa krabbamein á eins hátt en að
mikil vægt sé að sætta sig við og
viðurkenna að krabbameinið sé til
staðar.
„Það má ekki láta krabba-
meinið taka lífið og tilveruna yfir
og það skiptir máli að taka einn
dag í einu.“
Sigríður opnaði Snapchat til
þess að leyfa fólki að fylgjast með
henni takast á við krabbameinið
og er hægt að fylgjast með henni
undir notandanafninu: siggaath n
Lækjarbrekka
Bankastræti 2
101 RVK
s. 551 4430
Alltaf sígild
alltaf ljúf
Sigríður greindist fyrir tilviljun
með sjaldgæft blóðkrabbamein
siggaath„ Það skiptir máli
að taka einn dag í
einu.