Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Síða 56
56 8. júní 2018
16. júlí, 2006, gekk Kínverjinn Qiu Xinghua berserksgang í musteri taóista í Ankang-borg í Shaanxi. Þegar hann hafði lokið sér af lágu ellefu manns látnir í valnum; tíu karlmenn og einn
kvenmaður. Fórnarlömbin voru ýmist starfsfólk musterisins eða bændur úr
grenndinni. Við ódæðið beitti Xinghua öxi. Hann var tekinn af lífi með skoti í
höfuðið 28. desember 2006.SAKAMÁL
F
jölskyldufyrirtæki hafa gjarna
einhvern ljóma yfir sér, ekki
síst þau sem hafa verið í eigu
sömu fjölskyldu kynslóð fram
af kynslóð. Upp að vissu marki má
segja að starfsemi Christophers
DiMeo og kærustu hans, Nicole
Pearce, sem bæði voru 23 ára, hafi
flokkast sem fjölskyldufyrirtæki
því móðir Christophers, MaryAnn
Taylor, lagði einnig sín lóð á vogar-
skálarnar.
Reyndar varð starfsemin ekki
langlíf; stóð yfir í nokkra mánuði,
í kringum áramótin 2004/2005, og
kostaði þrjú mannslíf.
Úr innbrotum í rán
Um tveggja mánaða skeið stóðu
ungmennin og mamman í stór-
ræðum. Í fíkniefnavímu rændu
þau hverja skartgripaverslunina
á fætur annarri og hver hafði sitt
hlutverk.
Reyndar hafði starfsemin ein-
skorðast við hefðbundin innbrot
áður, en arðgreiðslur munu ekki
hafa réttlætt þann vettvang og því
var starfsemin uppfærð.
Kynntust á lögreglustöð
Christopher var enginn ný-
græðingur þegar kom að glæp-
um. Hann hafði setið inni í þrjú
ár vegna ráns og státaði einnig af
nokkrum sakfellingum fyrir inn-
brot og höndlun með stolið góss.
Christopher og Nicole voru
bæði á reynslulausn þegar leiðir
þeirra lágu saman, reyndar á lög-
reglustöð í San Diego þar sem ætl-
unin var að skrá sig hjá skilorðs-
fulltrúa.
Þau komust að þeirri niður-
stöðu að þau vildu frekar blanda
geði við hvort annað en skilorðs-
fulltrúann og stungu af. Þau tóku
bifreið afa og ömmu Christophers
ófrjálsri hendi og brunuðu til New
York og rændu nokkrar verslanir á
leiðinni.
Mamman með sakaskrá
Í nóvember 2004, eftir að hafa brot-
ist inn í nokkur hús á Long Island
og í Connecticut, ákváðu þau að
stækka við sig á austurströndinni
og fá móður hans með sér í lið.
MaryAnn hafði eignast Christoph-
er 17 ára að aldri. Hann hafði að
mestu alist upp hjá móðurforeldrum
sínum og móðir hans verið meira eins
og eldri systir. Sjálf hafði MaryAnn
ekki hreinan skjöld og hafði á saka-
skrá sinni þjófnaði og ávísanafals.
Í einu innbrotinu komst
Christopher yfir skammbyssu sem
hann svo síðar notaði í skartgripa-
verslununum.
Bonnie og Clyde … og mútta
Verkaskipting var með þeim hætti
að Nicole fór í skartgripaverslanirn-
ar, kynnti sér skipulag, fjölda starfs-
manna og staðsetningu þess. Síðan
stormaði Christopher inn, veifandi
skammbyssu og lét greipar sópa.
SKARTGRIPIR OG MORÐ
VENEDIKTSSON
SKORAR
KLOSE MEÐ
SKALLA?
„
Þau eru
Bonnie
og Clyde
og mútta
Christopher DiMeo Enginn
nýgræðingur í afbrotum.
n Christopher og Nicole byrjuðu í innbrotum n Síðar sneru þau sér að skartgripaverslunum n Mamma lét ekki sitt eftir liggja n Morð bættust við ránin