Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Síða 57
SAKAMÁL 578. júní 2018
35 ára, tveggja barna móðir, Adriana Vasco, fékk lífstíðardóm 24. janúar 2003. Adriana hafði staðið í ástarsambandi við lækni að nafni Kenneth Stahl og að sögn skipulögðu þau
í sameiningu að koma eiginkonu Stahl, Carolyn, fyrir kattarnef. Réðu
skötuhjúin Dennis Godley, annan kærasta Adriönu, til verksins. Hann
gerði gott betur en að ráða Carolyn bana því Kenneth hlaut sömu örlög.
MaryAnn fékk það hlutverk að
keyra flóttabílinn, en var að auki
sett í að kanna aðstæður í minni
verslunum sem voru sennilega
berskjaldaðri en þær stærri.
Aðallega sat hún þó undir
stýri með annan fótinn kláran við
bensíngjöfina á meðan drengur
inn hennar sinnti sínu inni í skart
gripaverslununum.
Einn lögreglumaður í morð
deildinni í New York hafði á orði
að þau væru ekki eins og alræmda
parið Bonnie og Clyde; „Þau eru
Bonnie og Clyde og mútta.“
Fjármögnuðu neyslu
Umræddur lögreglumaður,
Dennis Farrell, sagði að markmið
þremenninganna væri að kom
ast yfir eins mikið fé og fjármuni
og mögulegt væri því öll glímdu
þau við heróínfíkn auk þess sem
Christopher hafði gaman af fjár
hættuspili.
Þau rændu sína fyrstu skart
gripaverslun 5. desember 2004.
Afraksturinn var 100.000 dala virði
og þau drifu sig í kjölfarið heim
til Christophers á Long Island og
fögnuðu ógurlega með krakki og
heróíni. Þess má geta að mæðgin
in höfðu lengi verið háð fíkniefn
um og stolið grimmt frá ættingjum
og öðrum fíkniefnaneytendum.
Fyrsta morðið
Þann 20. desember gerði Mary
Ann úttekt hjá J & J Jewels í New
York og fékk syni sínum niðurstöð
una. Þau hinkruðu síðan við til há
degis þegar aðeins eigandinn,
Thomas Rennison, og einn starfs
maður voru á staðnum.
Christopher rölti inn í verslun
ina og spjallaði við Thomas í um
tuttugu mínútur undir því yfirskini
að hann hygðist kaupa trúlof
unarhring handa unnustu sinni.
Thomas Rennison hafði enga
ástæðu til að gruna Christopher
um græsku og sýndi honum rán
dýran hring. Christopher beið
ekki boðanna og skaut eigandann
til bana og hirti það sem hann gat
með góðu móti.
Hjón skotin til bana
Síðan var skartinu komið í verð,
fíkniefni keypt og slegið upp
partíi sem stóð fram yfir áramót.
Þann 16. janúar, 2005, rændu þau
Rockland Jewellery Exchange í
Nanuet, í New Yorkríki, og höfðu
upp úr krafsinu 80.000 dali.
Skartgripaverslun Tim og Kim
Donnelly, í Fairfield í Connecticut,
var rænd 2. febrúar með skelfileg
um afleiðingum.
Donnellyhjónin reyndu
hvað þau gátu að tala um fyr
ir Christopher en við hann var
engu tauti komið og skaut þau til
bana. Ránsfengurinn var 100.000
dala virði.
Á mótel í Atlantic City
Þegar þarna var komið sögu
gerðu þau sér grein fyrir að hitna
myndi í kolunum. Christoph
er losaði sig við byssuna og bíl
inn einhvers staðar í Brooklyn og
hann og Nicole fóru með rútu til
Atlantic City og skráðu sig inn á
subbulegt mótel, Ascot.
Sjónir lögreglunnar beindust
fljótlega að Christopher DiMeo
og þar sem spilafíkn hans var ekk
ert launungarmál dreifði lögreglan
myndum af honum og Nicole á öll
gistiheimili og hótel á svæðinu.
Innan skamms fékk lögreglan
ábendingu frá eiganda Ascot sem
hafði borið kennsl á skötuhjúin;
þau væru í herbergi 230.
Enginn mótþrói
Nicole var gripin glóðvolg í gesta
móttöku mótelsins þar sem hún
hugðist greiða fyrir næstu nótt.
Næstu klukkustundir var hótelið
hægt og hljótt tæmt þar til aðeins
einn var eftir; Christopher DiMeo í
herbergi 230.
Mótelið var umkringt og
lögreglan hafði samband við
Christopher og reyndi að fá hann
til að gefast upp mótþróalaust. Að
einhverjum tíma liðnum sá hann
sitt óvænna og gaf sig lögreglunni
á vald.
MaryAnn var handtekin á heim
ili sínu í New York daginn eftir og
engin vandræði þar.
Christopher fékk lífstíðardóm
fyrir þrjú morð, sem hann skýlaust
játaði á sig. Nicole og MaryAnn
fengu 20 ára dóm fyrir manndráp.
Þannig fór nú það. n
SKARTGRIPIR OG MORÐ
„Þau komust
að þeirri
niðurstöðu að
þau vildu frekar
blanda geði við
hvort annað
en skilorðs
fulltrúann
Nicole Pearce
Kannaði aðstæður
í aðdraganda
ránanna.
Mamma
Ók gjarna
flóttabílnum
eftir ránin.
n Christopher og Nicole byrjuðu í innbrotum n Síðar sneru þau sér að skartgripaverslunum n Mamma lét ekki sitt eftir liggja n Morð bættust við ránin