Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Page 60

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Page 60
60 8. júní 2018 Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 16.júní 1932 M ánudagskvöldið 26. maí árið 1975 fékk lögreglan í Kópavogi hringingu frá skelfdum bæjarbúa sem sagðist hafa séð smástelpu keyra strætisvagn og orðið bilt við. Lögreglan tók við sér og fann umræddan vagn þar sem ung stúlka sat undir stýri. En ekki hafði hún stolið vagninum held­ ur var hún að æfa sig fyrir sum­ arstarf. „Það var auglýst eftir strætóbílstjórum og ég sótti um eins og margir aðrir. Ég fékk vil­ yrði fyrir vinnu og fór því á meira­ prófsnámskeið,“ sagði Kristjana Bergsdóttir, 22 ára nemi í Há­ skóla Íslands, í samtali við Vísi. Kristjana var fyrsti kven­ strætóbílstjórinn og Karl Árna­ son, forstöðumaður SVK, sagði það furðu sæta að „kvenfólk skuli ekki áður hafa ekið strætisvögnum hér á landi, því erlendis er þetta algengt.“ Lögreglan hafði afskipti af fyrsta kvenstrætisvagnabílstjóranumS nemma í maí árið 1963 fæddist sexfætt lamb á bæn­ um Neðri Vindheim­ um í Glæsibæjar­ hreppi í Eyjafirði. Ærin bar tveimur lömbum og var ann­ að lambið eðlilegt í alla staði að sögn eigandans Jóhann­ esar Jóhannessonar bónda. Lambið vanskap­ aða fæddist með tvo aukafætur að framanverðu og komu þeir samgrónir að mestu framan úr bringu þess, milli hinna framfót­ anna. Lambið gat hvorki geng­ ið né tekið spena móður sinnar og brá Jóhannes því á það ráð að gefa því kúamjólk úr pela. Mjög sjaldgæft er á Íslandi að lömb fæðist með sex fætur og lifi. Lambið á Neðri Vindheimum lifði þó í nokkra daga. Sexfætt lamb í Eyjafirði ÓLÖF FRÁ HLÖÐUM ÓLST UPP VIÐ SÁRA FÁTÆKT Ó löf Sigurðardóttir frá Hlöð­ um, sem lifði frá 1857 til 1933, var ein fárra íslenskra kvenna sem komust út til náms á 19. öld. Hún lærði ljós­ móðurfræði hjá Jónassen lækni í Reykjavík og hélt síðan til Kaup­ mannahafnar í framhaldsnám. Ólöf var kvenréttindakona og merkisskáld sem skrifaði bæði ljóð og ævintýri. Athygli vakti bálkur sem hún skrifaði um æskuheim­ ili sitt á Sauðadalsá í Vatnsnesi þar sem hún lýsir sárri fátækt. Næstyngst sextán systkina „Af því að ég hef hvergi séð líka heimilisháttu og á heimili foreldra minna, kemur mér til hugar, að það kunni að geta haft þýðingu fyrir þá, sem menningarsögu semja, að ég reyni að færa þá frásögu, það sem mér finnst minnisstæðast af hátt­ semi og högum okkar, svo það ekki glatist. Og þó mér og ættmönnum mínum verði lítil frægð af frásögu minni, þá tel ég mér skylt að segja satt og rétt frá og fegra hvorki né ófegra sannindin.“ Þetta skrifar Ólöf í Eimreiðina 1. maí árið 1906. Ólöf ólst upp í kofa­ ræksni á Vatnsnesi í Húnavatns­ sýslu um miðja 19. öldina. Hún seg­ ir að menning hafi verið mjög lítil í sveitinni og „enginn minnsti menn­ ingargeisli“ hafi komið á þeirra bæ, sem var afskekktari en flestir aðrir. Ólöf var næstyngsta barn móð­ ur sinnar, af sextán. Aðeins tíu af þeim komust á legg og eitt var sent í fóstur. Fátæktin var mest þegar börnin voru ung en þau voru send á aðra bæi í vist um leið og þau gátu unnið og séð fyrir sér. Leikur að þaklekanum „Húsakynni voru eins og moldar­ kofarnir okkar geta verstir verið. Baðstofan lítil og lág með torf­ bálki, óþiljuð öll, nema lagðar lausar fjalir fyrir ofan rúmin. Rúm­ stæðin torfbálkur með rúmstokki og fótagafli úr fjölum. Ekkert borð, ekkert sæti annað en rúmin. Hillur yfir hverju rúmi, þar stóðu askarn­ ir, diskarnir og margt annað rusl.“ Sums staðar í húsinu voru gler­ rúður en þegar þær brotnuðu voru blautir líknarbelgir settir yfir því gler var ekki til. Mikil læti voru í þessum belgjum þegar vindasamt var og stundum rifnuðu þeir. Ljós var lítið en á heimilinu voru járn­ lampar sem sett var í hrossafeiti eða selalýsi. Til að kynda matar­ pottinn var notað sauðatað. Búshlutir voru fáir og ófull­ nægjandi og hirslur engar. Það sem dýrmætast þótti var geymt undir sængunum. Ef einhverjir peningar voru til voru þeir geymd­ ir í ullarsokkum. Þegar húsið lak var reynt að „bræða þau“ með kúamykju en annað viðhald var ekkert. „Þegar ofan á okkur lak í rúmunum, vöru öll sauðaskinn, sem til voru, breidd ofan á okkur og okkur var sagt að liggja alveg kyrrum, svo pollarnir, sem stóðu í skinnunum, rynnu ekki ofan undir til okkar. Þetta þótti okkur ögn gaman.“ Askarnir þvegnir tvisvar á ári Heyskapurinn var mesta vinna ársins og börnin tóku þátt í honum frá sjö eða átta ára aldri en þá var unnið sextán eða sautján tíma á sólarhring og oftast fenginn vinnumaður. Yngri börnin gættu þeirra minnstu, börðu harðfisk og útbjuggu flatkökur. Vinnan var svo mikil að börnin gátu hvorki greitt sér né baðað nema á sunnu­ dögum. „Við sem endilega vild­ um vera að því tilhaldi, urðum þá að gjöra það meðan við tugðum harðfiskinn.“ Lítið var að gera fyrir börnin og að yrkja ljóð var illa séð af föð­ urnum. „Oft grét ég þegjandi af leiðindum og löngun eftir að fá að læra einhvern „hégómann“ sem kallað var.“ Ólöf átti aðeins eitt pils frá því hún man eftir sér þangað til hún var á tólfta ári. Spariföt átti hún með systur sinni og skiptust þær á því að fara í þeim til kirkju. Fötin voru öll þvegin í matar­ pottinum og trékoppur sem not­ aður var sem næturgagn var einnig notaður við handþvotta. „Þvag var iðulega brúkað til hand­ þvotta, en mjólk, mysa eða skyr­ þynka til andlitsþvotta og þótti vandaðri þvottur en úr vatni.“ Tvisvar á ári voru askarnir þvegn­ ir, úr hangikjötssoðinu fyrir jól og á sumardeginum fyrsta. Annars sáu hundarnir um að verka ask­ ana eftir máltíðir og sleiktu vel og lengi. „Ekkert okkar hefir þó orðið sullaveikt.“ Sýrufyllerí Skyr þótt kraftmikill matur og harðfiskur var tugginn allan slátt­ inn. Besti maturinn var magáll, bringukollur og lundabaggar sem var borðaður á hátíðarstundum, sem og brauð. Slátur var borðað yfir veturinn og annað súrmeti. „Nýr matur var helzt ekki borðað­ ur. […] Sýru máttum við drekka svo oft og svo mikið sem við vildum; hana drukkum við okkur til óbóta, ef við vorum svöng eða ef okkur leiddist, litlu börnunum, heima á sumrin. Höfðum hana þá fyrir brennivín og drukkum í vitleysu, því enginn hafði vit á að þetta var heilsuspillir.“ Leikföng voru með­ al annars ýsubein, skeljar og gler­ brot en spil voru til á bænum. Einu bækur heimilisins voru trúarlegar. Árið 1866 flutti fjölskyldan á annan og betri bæ og smám saman vænkaðist hagur heimilis­ ins. Ólöfu fannst heimilið einnig komast á æðra menningarstig enda sú jörð í meiri alfaraleið en afdalurinn á Sauðadalsá. „Með þann undirbúning undir lífsbar­ áttuna lagði ég áleiðis út í mann­ lífið, nítján vetra gömul.“ n Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.