Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Síða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Síða 61
TÍMAVÉLIN 618. júní 2018 Á rið 1983 stigu veitingamenn á staðnum Gauk á Stöng fram á sjónarsviðið og hófu að bjóða upp á nýjung í áfengismenningu Íslendinga, svo- kallað bjórlíki sem var blanda af pilsner og sterku víni. Aðrir fylgdu í kjölfarið og upp hófst sannkallað æði. Stjórnvöld gripu í taumana en snerist sú aðgerð í höndunum á þeim með þeim af- leiðingum að sala á bjór var leyfð árið 1989. Guðvarður Gíslason, veitingamaður á Gamla Bíó, sem rak Gaukinn á sínum tíma, ræddi við DV um þennan stórmerkilega drykk. Breiddist hratt út Guðvarður og fjórir félagar hans opnuðu Gauk á Stöng þann 19. nóvember árið 1983 á Tryggva- götu 22 í Reykjavík. Var talað um að bjórkrá væri að opna þó að sala bjórs hefði verið óheimil síð- an áfengisbannið var sett á árið 1915. Þegar áfengisbanninu var aflétt árið 1935 var bjórinn undanskilinn. Það var hins vegar ekki eigin legur bjór sem var seld- ur á Gauknum heldur svo kall- að bjórlíki, blanda af pilsner og sterku áfengu víni. Hinir framtakssömu ungu stofn- endur Gauksins höfðu kynnst samkomuvenjum erlendis, sér í lagi í Þýskalandi, og vildu færa þá menningu hingað til lands. Ekki þurfti að borga sig inn á staðinn og ekkert dans- gólf til staðar. Þetta var eig- inlegur pöbb sem bauð samt einnig upp á mat og var opinn lengur en aðrir staðir. Þetta greip landann strax og fljótlega fóru aðrir staðir að taka upp á þessu. Guðvarður segir: „Eftir að við byrjuðum með bjórlíkið fór þetta að sjást á öðrum stöðum eins og Hellinum, Fógetanum og fleiri veitingastöð- um víða um land sem vildu vera með í trendinu.“ Fólk varð ágætlega drukkið Hvað var í bjórlíkinu? „Hver og einn staður var með sína eigin uppskrift að því. Uppistaðan var yfirleitt vodka, kláravodka eða einhver týpa af því. Svo voru menn að skella út í þetta alls kyns bitterum og fleiru til að fá meira eða öðruvísi bragð.“ Hvað var þetta sterkt? „Það get ég ekki alveg sagt til um en alla vega urðu menn ágæt- lega drukknir af því. Við á Gaukn- um vorum með einn líter af 40 prósent sterkum vodka á móti 18 lítrum af 2,25 prósent sterkum pilsner. Ég get alveg viðurkennt að við vorum ekkert endilega að reikna út hversu sterkt þetta var. Stundum drakk fólk of mikið af þessu og misstu það út úr sér, rétt eins og gengur og gerist í dag.“ Guðvarður segir að sjálfsagt hafi drykkir svipaðir bjórlíki ver- ið blandaðir í heimahúsum áður en ekki í því formi þeir gerðu. Fólk hafi blandað sterka drykki út í pilsnerinn sinn rétt eins og gosið. En á Gauknum og öðrum stöðum var bjórlíkið sett á kolsýrukút og afgreitt rétt eins og bjór. Var þetta svipað og bjór á bragðið? „Já, ég get nú ekki neitað því. Á þessum tíma var nánast ekkert til nema lagerbjór með minna áfeng- ismagni. Þessir craft-bjórar og IPA-bjórar voru ekki til en reyndar voru Belgar að framleiða einhvern munkabjór í flöskum.“ Hvaða hópar voru það aðal- lega sem drukku bjórlíki? „Fólk af öllum stærðum og gerðum, allur skalinn. Sérstak- lega fólk sem hafði ferðast erlend- is og jafnvel búið þar og þekkti þessa menningu. Ég man eftir fé- lagsskap nokkurra eldri karla sem voru alveg vitlausir í að komast í þetta á miðvikudögum eftir funda- höld. Það var stemning í kringum þetta og fólki fannst gaman. Þetta hafði líka þau áhrif að lifandi tón- list jókst á veitingastöðum. Við á Gauknum vorum að selja mat og það kom fjöldi fólks í hádeginu til að borða og fá sér bjórlíki með. Á tímabili vorum við með vel yfir hundrað manns í hádeginu í mat.“ Keyrt undir bjórlíkisáhrifum En tilkoma bjórlíkisins var ekki aðeins glaumur og gaman fyrir alla. Ríkisvaldið sá að þarna hafði myndast æði og vildi stoppa þetta í fæðingu. Fór svo að reglugerð var sett af Jóni Helgasyni dóms- málaráðherra um að drykkir yrðu að vera blandaðir fyrir framan gestina og því bjórlíki veitinga- staðanna bannað í september árið 1985. „Sumir höfðu áhyggjur af bjór- líkisæðinu og það var verið að taka suma undir áhrifum undir stýri og þvíumlíkt. Jón var mikill templari og einhverjir náðu að sann- færa hann um að koma bann- inu á. Jóni fannst hann líka vera svikinn því við á Gauknum sótt- um um veitingaleyfi eins og hver annar en meirihlutinn af sölunni hjá okkur var þessi drykkur.“ Umræða um að fólk væri að keyra undir áhrifum bjórlíkis var mjög hávær og skrifað um það í blöðin. Einn varkár ökumaður skrifaði í Morgunblaðið 8. nóv- ember árið 1984: „Þessir „sönnu“ Íslendingar hvolfa í sig bjórlíkinu, dásama kráarmenningu, fá sér tvær þrjár kollur í viðbót og keyra svo heim! „Hvað eru nokkrar bjórkrúsir? Maður finnur varla á sér af þessu,“ er viðkvæði þessa fólks, sem bragðar áfengi í fyrsta sinn á æv- inni um 13 ára aldur og drekkur síðan þá tegund, helst óblandað brennivín.“ En góðtemplararnir urðu und- ir í baráttunni og eftir að bjórlíkið var bannað reiddist almenningur. Guðvarður segir: „Bannið á bjórlíkinu varð nú aðeins til þess að æsa upp al- menning og stuttu síðar fór fólk að heimta að sala á bjór yrði leyfð og árið 1987 var málið komið inn á borð Alþingis. Bjórlíkið og bannið á því hjálpaði til við að bjórinn yrði leyfður.“ Í maí árið 1988 gekk í gegn laga- setning sem heimilaði bruggun og sölu bjórs yfir 2,25 prósentum áfengismagns. 1. mars ári síðar var bjórinn leyfður á Íslandi en bjór- líkið sneri aldrei aftur. n SÍMI SEM ÞÚ GETUR TREYST Á DUAL 12 MP MYNDAVÉL NOKIA 7 PLUS Bjórlíkið breytti drykkjumenningu Íslands: „Sumir höfðu áhyggjur“ Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Á tímabili vorum við með vel yfir hundrað manns í hádeginu í mat“ Tíminn 19. nóvember 1983

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.