Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Qupperneq 62
62 TÍMAVÉLIN 8. júní 2018 Þ ann 15. janúar árið 1919 varð óvanalegt slys í romm­ verksmiðju í Boston. 21 lést og 150 slösuðust þegar stór geymslutankur sprakk í loft upp og flóðbylgja sykurþykknis rann eftir nálægum götum. Átta metra há bylgja Slysið gerðist í norðurhluta borgar­ innar, á svæði bruggverksmiðjunn­ ar Purity Distilling Company við höfnina. Tankurinn var fimmtán metra hár og 27 metrar í þver­ mál og í honum voru geymdar 2,3 milljónir gallona af sykurþykkni til rommframleiðslu. Mikið frost hafði verið fyrstu dagana í janúar en síð­ an snögghitnaði og þennan dag var hitinn fjórar gráður á Celsíus. Klukkan 12.30 heyrði fólk í ná­ grenninu háværan dynk og fann jörðina nötra. Hávaðinn sem fylgdi í kjölfarið var líkt og eimreið væri á leið í áttina að fólkinu. Hitabreytingarnar höfðu valdið því að tankurinn gaf sig, brotnaði og sprakk í tætlur og út úr svæði verksmiðjunnar streymdi æð­ andi karamelluflóð, átta metra hátt. Flóðið skall á járnbrautarlest og ýtti henni af sporinu og felldi einnig upphækkaða járnbrautar­ teina. Nærliggjandi hús urðu í vegi flóðsins, rifnuðu upp með grunni og méluðust. Fólk varð fyrir flóð­ inu í hundraða tali og vinnuhestar einnig. Það lyftist marga metra upp í lofti og þeyttist út í buskann. Karamellukviksyndi Þegar flóðbylgjan hafði runnið sitt skeið var svæðið undirlagt kara­ mellu sem náði fólki upp að mitti og dísæt lykt í loftinu. Í Boston Post sagði: „Hér og þar virtist vera eitt­ hvert form af lífverum, hvort það voru dýr eða menn var ómögu­ legt að segja. Hrossin drápust eins og flugur á flugnapappír. Eftir því sem þeir börðust um, því dýpra í glundrið sukku þeir. Menn og kon­ ur þjáðust einnig.“ Alls lést 21 og 150 manns slösuð­ ust og fjölmargir þjáðust af miklum hóstaköstum eftir sprenginguna. Ungur drengur, Anthony di Stasio, var einn af þeim sem lentu í flóð­ inu. Hann var á leið heim úr skól­ anum með systrum sínum þegar bylgjan greip hann og lyfti eins og smásteini. Það var líkt og hann væri á brimbretti. Þegar ölduna lægði kom móðir hans aðvífandi en hann gat ekki svarað henni, því öndunar­ vegurinn var fullur af karamellu. Hann var að kafna og það leið yfir hann. Þegar hann rankaði úr rotinu stóðu systur hans þrjár yfir honum. Klístrið alls staðar Herskipið USS Nantucket var í höfninni og sjóliðar flýttu sér á staðinn til að taka þátt í björg­ unaraðgerðunum. Sumir reyndu að halda forvitnum vegfarendum fjarri en aðrir óðu út í klístrið til að bjarga fólki. Lögreglan, Rauði krossinn og landherinn komu einnig til aðstoðar og sumar hjúkrunarkonurnar stungu sér í sykurleðjuna. Spítalinn réð ekki við þennan fjölda og setja þurfti upp sérstakt neyðarskýli til að taka á móti slösuðum en erfitt var að komast um vegna karamellu. Í fjóra daga var leitað að fórnar­ lömbunum og erfitt reyndist að greina sum líkin vegna gljáans. Það tók margar vikur að hreinsa göturnar og meira en 300 manns tóku þátt í því. Notaður var slökkvi­ liðsbátur til að sprauta sjó á kara­ melluna til að leysa hana upp en einnig sandur til að reyna að draga sykurinn í sig. Klístrið var í öllum krókum og kimum á stóru svæði, inni í bílum, heimilum, lestum, götusímum. Alls staðar. Verksmiðjan bótaskyld Mál var höfðað á hendur móður­ fyrirtæki Purity­verksmiðjunnar, en lögfræðingar þeirra báru fyrir sig að anarkistar hefðu sprengt tankinn í loft upp. Eftir þriggja ára vitnaleiðslur komst endur­ skoðandi á vegum dómstóls­ ins að því að verksmiðjan væri bótaskyld þar sem tankurinn hefði verið illa smíðaður og ekki prófaður. Tankurinn hafði lekið svo mikið að tekið var upp á því að mála hann brúnan til að fela lekann. Íbúar í nágrenninu höfðu getað náð sér í fötufylli af karamellu þar sem lekinn var. Tankurinn var bæði of þunnur og gerður úr efni sem hentaði ekki. Hitnunin í andrúmsloftinu olli því að gerjun varð hraðari en ella og tankurinn réð ekki við það. Fyrirtækið greiddi út 600 þús­ und dollara til fórnarlambanna og aðstandenda þeirra. Tank­ urinn var ekki endurbyggður og í dag er þarna hafnarboltavöll­ ur fyrir börn. Ýmsar byggingar­ reglugerðir Boston­borgar varð­ andi öryggi voru hertar eftir slysið og eftirlit sömuleiðis. Settur var upp minnisvarði á svæðinu um slysið og þá sem þar létust. n Tugir drukknuðu í karamellu Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Óttuðust um líf konungs vegna sjálfs- fróunar Danmörk hefur átt marga hæfa konunga og drottningar í gegn­ um tíðina. Kristján VII var ekki einn af þeim en hann var uppi frá 1749 til 1808. Kristján var andlega vanheill og bæði bróð­ ir hans og sonur stýrðu ríkinu í hans stað. Hann var ofstækisfullur, haldinn ofsóknarbrjálæði og ofbeldishneigður. Iðulega hélt hann á krár Kaupmannahafnar með fylgdarliði sínu og olli þar miklum óskunda. Í matarveisl­ um hagaði hann sér kjánalega og kastaði mat í gesti. Stundum lamdi hann fólk án nokkurrar ástæðu. Eitt af stærstu vandamálum Kristjáns var hversu mikið hann fróaði sér, bæði í einrúmi og fyrir framan annað fólk. Var það mikið rætt í hirðinni og talið vandamál alls ríkisins þar sem læknar óttuðust að hann yrði ófrjór. Aðrir læknar töldu að konungurinn yrði blindur af öllu þessu togi eða myndi á endanum drepa sig. Vitaskuld leitaði drottn­ ingin Matthildur í arma annars manns, þýsks læknis að nafni Johann Struense, og missti hann höfuðið fyrir vikið. Árás með veðurblöðrum Ein undarlegasta hernaðar­ aðgerð seinni heimsstyrj­ aldarinnar var þegar breski herinn skipulagði blöðruárás á Þýskaland, aðgerð sem nefnd var Operation Outward en blöðrurnar ollu Þriðja ríkinu talsverðu tjóni. Þann 17. september árið 1940 losnuðu nokkrar veður­ blöðrur fyrir slysni, svifu yfir til Noregs og Svíþjóðar og ollu tjóni á rafmagnslínum. Win­ ston Churchill, forsætisráð­ herra Bretlands, ákvað að nýta sér þetta og sendi 100 þúsund latexblöðrur með eldfimum efnum og rafmagnsvírum yfir hafið til Þýskalands. Um aðgerðina sáu konur í þjóðvarnarsveit Bretlands á þremur stöðum í suður­ hluta Englands. Hætt var að senda blöðrur árið 1944 en þær reyndust Bandamönnum mjög vel því þær kostuðu aðeins örfáa skildinga á meðan tjón Þjóðverja var mikið. Blöðrurnar lentu á rafmagnsvírum og ollu sprengingum og skammhlaup­ um. Ein rafstöð Þjóðverja, ná­ lægt borginni Leipzig, eyði­ lagðist algerlega.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.