Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Side 64
64 8. júní 2018FRÉTTIR
M
örg þúsund fullorðnir Írar
hafa hugsanlega engan
grun um að þeir voru
gefnir til ættleiðingar á
barnsaldri og hafa því enga ástæðu
til að efast um að mæður þeirra
hafi fætt þá. En í raun og veru var
fólkið gefið til ættleiðingar þar
sem mæður þess voru ógiftar. Það
var kaþólsk stofnun sem stóð á
bak við þetta en stofnunin sá um
að taka við börnunum og gefa út
fölsuð fæðingarvottorð þegar þau
fóru til nýrra foreldra.
Írskir félagsráðgjafar hafa því
fengið það verkefni að ræða við
tugi fólks á aldrinum 50 til 70 ára
til að segja því að foreldrar þess
séu ekki líffræðilegir foreldrar
þess. Að mæður þeirra hafi verið
einhleypar eða ógiftar og því hafi
börnin verið gefin til ættleiðingar
í gegnum kaþólska stofnun sem sá
um að útvega fölsuð fæðingarvott
orð.
Málið snýst um 126 manns en
írsk yfirvöld telja að 79 af þeim
geti verið „algjörlega óvitandi
um aðstæðurnar sem þau fædd
ust inn í“. Þetta er aðeins toppur
inn á ísjakanum. Yfir öllu liggur
margra áratuga skömm, þögn og
leyndarhjúpur.
Nú á að fara yfir tugþúsundir
mála en þetta er enn eitt hneykslis
málið sem tengist kaþólsku kirkj
unni á Írlandi og stofnunum
hennar. Allt frá því að Írland fékk
sjálfstæði 1922 hefur kaþólska
kirkjan nánast verið samofin ríkis
valdinu, hún hafði sérstaka stöðu
og var hafin yfir gagnrýni.
Þeir 126 Írar, sem málið snýst
um í augnablikinu, voru gefn
ir til ættleiðingar í gegnum ætt
leiðingarstofuna St. Patrick’s Guild
á árunum 1946 til 1969. Fölsuð
fæðingarvottorð fylgdu þeim öll
um. Líffræðilegir foreldrar þeirra
eru hugsanlega látnir og kannski
héldu þeir að börnin hefðu látist.
Í málum svipuðum þessum hefur
komið í ljós að nunnur sem gáfu í
skyn við foreldrana að börn þeirra
væru látin vel vitandi að þau voru
við góða heilsu hjá „góðum“ kaþ
ólskum fjölskyldum þar sem faðir,
móðir og giftingarhringur voru til
staðar.
Aðrir foreldrar vissu vel að börn
þeirra voru hjá öðrum fjölskyldum
en þar sem ströng kaþólsk siðferð
isgildi voru við lýði töldu þeir sig
ekki eiga annarra kosta völ en gefa
börn sín frá sér og ræða ekki frekar
um þau. Að vera einstæð móðir
á þessum tíma með „óekta“ barn
þýddi á þessum tíma líf á botni
samfélagsins.
Enn einn svartur blettur
Leo Varadkar, forsætisráðherra Ír
lands, sagði á þingi að mál St. Pat
rick’s Guild væri „enn einn svarti
bletturinn á sögu okkar“ og að
hugsanlega væru mörg hundruð
þúsund ættleiðingarmál þar sem
rangt hefði verið haft við.
Fergus Finlay, forstjóri barna
verndarsamtakanna Barnardo,
sagði í samtali við írska ríkissjón
varpið að skoða þyrfti að minnsta
kosti 150.000 ættleiðingar og að
það muni koma honum á óvart ef
að minnsta kosti 10 prósent þeirra
reynast ekki byggðar á ólöglegum
skráningum og skjalafalsi.
„Þetta er brot gegn börnunum
því þau eru rænd sjálfsmynd
sinni,“ sagði hann.
Áður hefur komið fram að St.
Patrick’s Guild stóð fyrir leynileg
um flutning á 572 írskum börn
um til barnlausra kaþólskra hjóna
í Ameríku.
Írska ríkisstjórnin hefur fyrir
skipað óháða rannsókn á um
fangi ættleiðinganna út frá þeim
100.000 málum sem skjöl ná til. En
ekki eru allir sannfærðir um að það
sé nóg og vilja að meira sé gert og
hefur þar verið nefnt til sögunnar
að DNAtækni verði beitt við rann
sóknir málanna.
Nú þegar stendur yfir rann
sókn á hinum svokölluðu „ Móðir
og barn heimili“ þar sem kon
ur, sem urðu barnshafandi utan
hjónabands, komu til að eignast
börn sín. Þær höfðu kannski orðið
barnshafandi ungar að aldri þegar
ástin tók völdin eða eftir einnar
nætur gaman.
Tæplega 800 lík
Þegar einstæðu mæðurnar höfðu
eignast börn sín á „heimilunum“
voru þær látnar sinna ýmsum
störfum undir yfirumsjón nunna.
„Heimilunum“ var skipt í tvennt,
í öðrum helmingnum voru börn
en mæðurnar í hinum. Yfirleitt yf
irgáfu mæðurnar síðan „heimilin“
eftir nokkur ár án barna sinna sem
voru þá gefin til ættleiðinga gegn
fjárframlögum til „heimilanna“.
Rannsókn á „heimilunum“
hófst í kjölfar afhjúpunar á hræði
legum upplýsingum frá svona
„heimili“ í Tuam í vesturhluta Ír
lands. Þar voru allt að 796 börn
og fóstur grafin á lóð „heimilisins“.
Sum þeirra jafnvel í eða við klóak
tank. Hluti af líkunum bar með sér
að börnin hefðu verið fötluð eða
vannærð.
Það var nunnureglan Bon
Secours sem rak þetta „heim
ili“. Á sínum tíma var orðróm
ur um að eitthvað mikið væri að
þar en spurninga var ekki spurt
enda kaþólska kirkjan valdamik
il á þeim tíma og þess vegna fékk
St. Patrick’s Guild einnig frið fyrir
ágengum spurningum. Það sama
á við um svokallaða iðnaðarskóla
fyrir foreldralaus börn og „þvotta
hús“ fyrir vændiskonur, ógiftar
konur og fleiri. Líkamlegt og and
legt ofbeldi er eins og rauður þráð
ur í gegnum þessi mál ásamt vilja
kaþólsku kirkjunnar til að verða
sér úti um fé á kostnað „syndar
anna“ með því að nýta þá sem
ókeypis vinnuafl og með því að
gefa börn þeirra til ættleiðinga. n
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
Ættleiðingarhneyksli tröllríður Írlandi
Kaþólsk stofnun stóð á bak við skjalafals og ættleiðingar
„ Írskir félagsráð-
gjafar hafa því
fengið það verkefni að
ræða við tugi fólks á aldr-
inum 50 til 70 ára til að
segja því að foreldrar
þess séu ekki líffræðilegir
foreldrar þess. Að mæð-
ur þeirra hafi verið ein-
hleypar eða ógiftar og
því hafi börnin verið gefin
til ættleiðingar í gegnum
kaþólska stofnun sem
sá um að útvega fölsuð
fæðingarvottorð.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Leo Varadkar, forsætisráðherra Írlands, segir að
málið sé svartur blettur á sögu landsins.