Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 31
22. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Norðausturland
Laugardaginn 23. júní verður Kaffihúsið í Lyngholti á Þórshöfn opnað í annað sinn en kaffi-
húsareksturinn fékk góðar viðtökur
þorpsbúa og ferðamanna síðasta
sumar. „Við byrjuðum á þessu síðasta
sumar vegna þess að sjoppan hérna
á staðnum brann til kaldra kola og var
þá engin sjoppa á staðnum. Okkur
langaði að prófa þetta og setja eitt-
hvað upp fyrir heimamenn og gesti,
það vantaði svona stað,“ segir Karen
Rut Konráðsdóttir sem hefur rekið
Gistiheimilið Lyngholt ásamt Ólafi
Birgi Vigfússyni frá árinu 1999.
„Hér er allt að verða klárt, kaffivélin
er komin í hús og bakstur kominn á
fullt. Við gerum bakkelsið sjálf og eitt
af því sem féll í kramið síðasta sumar
var rabarbarabaka með rjóma og
verður hún klárlega áfram á matseðl-
inum,“ segir Karen og bætir við að
kaffihúsið í Lyngholti sé vafalaust eitt
af minnstu kaffihúsum landsins, það
tekur aðeins um tíu manns í sæti inni.
„Hins vegar erum við með fínan pall
hér fyrir utan og mikið af garðhús-
gögnum og treystum því nokkuð á
gott veður.“
Kaffihúsið verður að öllu jöfnu opið
kl. 15-18 alla daga vikunnar en þegar
vel viðrar má gera ráð fyrir að opið
verði lengur. Haldnir verða Bryggju-
dagar á Þórshöfn helgina 21.-23. júlí
og þá verður klárlega opið lengur á
kaffihúsinu auk þess sem pylsur verða
grillaðar á pallinum.
Kaffihúsalambið
Eins og áður segir er rabarbarabaka
og annað heimagert bakkelsi eitt
helsta einkenni kaffihússins en annað
er klárlega kaffihúsalambið sem gerði
mikla lukku síðasta sumar og verður á
sínum stað eitthvað fram eftir sumri.
„Lambið, sem hefur fengið nafnið
Latte, er núna bara heima með bleiu
og bíður eftir að við opnum kaffihúsið.
Þetta er móðurlaus gimbur sem var
eitt af síðustu lömbunum sem fædd-
ust í vor og engin
kind eftir sem
hægt var að venja
lambið undir. Þá
endar það stund-
um þannig að
dætur mínar koma
heim með þannig
lömb og hafa inni.
Gestir á kaffihúsinu
mega gefa lamb-
inu pela og var
mjög gaman að sjá
svipinn á nokkrum
ferðamönnum
þegar þeir mættu
lambi með bleiu
á pallinum. Þetta
verður að öllum
líkindum árlegt
hjá okkur þar sem
við erum sauð-
fjárbændur sem
rekum kaffihús,“
segir Karen.
Lambið gef-
ur staðnum
skemmtilegan
blæ og gerir kaffi-
húsið óneitanlega
mjög fjölskyldu-
vænt. Fjölskyldufólk á
ferðinni ætti því klár-
lega að stoppa í Lyngholti
og leyfa börnunum að hitta
lambið um leið og fjölskyldan fær sér
hressingu.
„Ásamt gisti- og kaffihúsarekstrin-
um rekum við skólamötuneyti yfir
vetrartímann og erum þetta sumar
að prófa okkur áfram með að bjóða
upp á hádegisverð og erum með
þessa aðstöðu í félagsheimili staðar-
ins.“
„Ég ætla að eignast þetta hús þegar
ég verð stór“
Sem fyrr segir opnuðu þau Karen
og Ólafur gistiheimilið Lyngholt árið
1999. „Við keyptum þetta gamla hús,
Lyngholt, og
gerðum upp
sem gistiheim-
ili. Afi minn og
amma byggðu
þetta hús árið
1958 og þegar ég
var lítil sagðist ég ætla
að eignast þetta hús þegar
ég yrði stór,“ segir Karen. „Við byrjuð-
um á að búa sjálf á neðri hæðinni og
leigðum út 4 herbergi uppi. Rekstur-
inn hefur á þessum árum vaxið hægt
og bítandi og eru núna um 30 gisti-
pláss í Lyngholti og þremur öðrum
húsum sem við höfum bætt við okkur
á undanförnum árum. Við erum að
klára lítið og krúttlegt hús þessa dag-
ana sem verður vonandi komið í notk-
un um næstu helgi. Og framundan
er svo að gera upp húsið við hliðina
á Lyngholti sem við festum nýlega
kaup á. Það er mikil áskorun í því þar
sem húsið er mjög illa farið en það
var byggt árið 1931. Þar er stefnan að
vera með fjórar litlar stúdíóíbúðir, all-
ar með sér inngangi. Fyrstu árin okkar
í rekstrinum voru Íslendingar í mikl-
um meirihluta gesta en síðustu árin
eru erlendir ferðamenn í meirihluta.
Lausatraffík þekkist varla lengur,
erlendir ferðamenn skipuleggja sín
ferðalög með margra mánaða fyrir-
vara. Norðurland er spennandi kostur
fyrir þá sem vilja komast í rólegheitin
og fallega náttúru. Litlu þorpin við
sjóinn hafa ákeðinn sjarma og iða af
mannlífi á sumrin.“
Lyngholt er klárlega áhugaverður
gistikostur fyrir íslenska ferðamenn á
leið um landshlutann og yfirleitt eru
einhver pláss laus fyrir sumarið. Best
er að bóka á síðunni lyngholt.is eða
einfaldlega hringja í Karen í síma 897
5064 og fá í leiðinni upplýsingar um
afþreyingarmöguleika á svæðinu.
Sjá nánar á lyngholt.is og Face-
book-síðunni Lyngholt.
LYNGHOLT:
Kaffihús og gistiheimili
með sál og sjarma