Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 30
22. júní 2018KYNNINGARBLAÐNorðausturland
Gistihúsið Skúlagarður er stað-sett í Kelduhverfi, við þjóðveg-inn, um 45 km frá Húsavík. Í
næsta nágrenni eru nokkrar af helstu
náttúruperlum landsins, Dettifoss,
Vatnajökulsþjóðgarður, Ásbyrgi og
Hljóðaklettar – náttúruperlur sem eru
þessu virði að verja góðum tíma í að
upplifa og njóta. Vinsælar gönguleiðir
á svæðinu geta tekið marga daga að
fara þó að sumir kjósi styttri göngu.
„Það eru skipulagðar gönguferðir
á vegum þjóðgarðsins en svo er líka
hægt að notast við kort hér og ganga
á eigin vegum,“ segir Helga Sturlu-
dóttir í Skúlagarði en hún nýtur þess
að starfa í þessu ægifagra umhverfi
og eiga samskipti við ferðamenn frá
öllum heimshornum.
Skúlagarður er afar heppilegur
gististaður fyrir þá sem vilja taka sér
tíma til að njóta þeirrar stórkostlegu
og fjölskrúðugu náttúrufegurðar sem
þetta svæði býður upp á. Gistihús-
ið er opið frá 1. maí til 31. október.
Sautján tveggja manna herbergi eru
í gistihúsinu og tekur það því 34 gesti
í einu. Einnig er hægt að bæta við
aukarúmi fyrir börn í sumum her-
bergjunum.
„Við lokum yfir veturinn vegna þess
að enn sem komið er kallar mark-
aðurinn bara eftir þessum tíma. Við
erum öll að bíða eftir nýja Dettifoss-
veginum, þá verður þetta einn hringur
þar sem hægt verður að keyra frá
Mývatnssveit hingað niður í Keldu-
hverfi framhjá Dettifossi og í gegnum
þjóðgarðinn og svo um Tjörnes til
Húsavíkur,“ segir Helga.
Meirihluti gesta í Skúlagarði eru
erlendir ferðamenn sem gjarnan
bóka í hópum á bókunarsíðum á
netinu. Skúlagarður er þó engu síður
heppilegur gistikostur fyrir Íslendinga
sem vilja njóta þess besta sem íslensk
náttúra býður upp á.
Skúlagarður býður einnig upp á
góða fundaraðstöðu með skjávar-
pa sem margskonar hópar nýta sér.
Ennfremur er góð veisluaðstaða á
staðnum sem mörg fyrirtæki nýta
sér fyrir starfsmannaskemmtanir,
hvataferðir og árshátíðir.
Frábær matur úr héraði
Veitingastaðurinn í Skúlagarði er
öllum opinn og kjörið fyrir þá sem
eiga leið um svæðið að stoppa þar
í mat eða kaffi og eiga góða stund.
Morgunverður fylgir gistingu og í há-
deginu eru það mest ferðahópar sem
fylla matsalinn. Síðdegis er gott að
stoppa í kaffibolla og vöfflu eða köku-
sneið. Eldhúsið er síðan opnað aftur
kl. 18 og er opið til 21. Lögð er áhersla
á ferskt hráefni úr héraðinu, til dæmis
lambakjöt, bleikju og grænmeti.
Hægt er að bóka á booking.com
og gistihúsið Skúlagarður er einnig á
síðunni Hey Iceland og er með Face-
book síðu undir nafninu Gistihúsið
Skúlagarður. Einnig er hægt að bóka
í gegnum netfangið skulagardur@
hotmail.com.
SKÚLAGARÐUR:
Gisting og veitingar í nálægð
við ægifagrar náttúruperlur