Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 34
22. júní 2018KYNNINGARBLAÐNorðausturland
Báran er eini veitingastaðurinn á Þórshöfn og einn allra helsti veitingastaðurinn á stórum
hluta Norðausturlands. Á sama stað
er rekið fyrirtækið Þórshöfn Kayak
sem býður upp á kayakleigu og
kayakferðir um nágrenni Þórshafnar
og Langaness.
Maðurinn á bak við þetta skemmti-
lega framtak er af erlendu bergi
brotinn, Nikola Zdenko Peros heitir
hann og er fæddur í New York, hann
er bandarískur í móðurættina og
króatískur í föðurættina. Nik, eins og
hann er oftast kallaður, kom fyrst til
Íslands árið 1992 sem skiptinemi í
Stykkishólmi og stofnaði þá til tengsla
við Íslendinga sem ekki hafa rofnað
síðan.
Nik hefur starfað mikið að mál-
efnum skiptinema og komið þeim í
kynni við Ísland. Sú viðleitni
leiddi til þess að hann
festi rætur á Þórshöfn og
opnaði veitingastaðinn
Báruna.
Báran er staðsett við
Eyrarveg 3 á Þórshöfn.
Hún er í senn notalegt
kaffihús og hinn fullkomni
staður fyrir góða máltíð.
Mikil áhersla er lögð á að
notast við ferskt hráefni
úr héraði og er meðal annars boðið
uppá lambakjöt, nautakjöt og fisk úr
nágrenninu. Ævintýragjarnir matar-
gestir geta prófað hvalkjöt og lunda.
Boðið er upp á handgerða ham-
borgara og pitsur bakaðar í eldofni.
Báran er
opnuð kl. 8 á
morgnana og
þá er tilvalið
að kíkja í morgunmat. Það eru líka
allir velkomnir í hádegismat, gott er
að tylla sér inn á Báruna í eftirmið-
daginn til að fá sér kaffi og kökur, og
kvöldverðurinn svíkur engan.
Staðurinn er staðsettur við höfnina
og má fylgjast með hafnarlífinu úr
matsalnum. Ef veður leyfir er hægt
að sitja úti á verönd. Á kvöldin er bar-
inn opinn og oft er lifandi tónlist eða
aðrar skemmtilegar uppákomur.
Kayakferðirnar og Kayakleiga eru í
boði í allt sumar og alveg út septem-
ber. Allur nauðsynlegur öryggisbún-
aður er útvegaður og blautbúningur
er innifalinn í verði ferðarinnar. Siglt
er að sveita-
bænum
Sætúni og aftur til baka. Fjölbreytt
fugla- og dýralíf Norðausturlands ber
fyrir augu í ferðinni og möguleiki er á
því að sjá seli.
Upplýsingar og pantanir í þessar
ferðir eru á vefsíðunni baran.is og
þar eru einnig allar upplýsingar um
veitingastaðinn.
VEITINGASTAÐURINN BÁRAN OG ÞÓRSHÖFN KAYAK:
Fyrir góðar stundir
á Norðausturlandi