Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Side 70

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Side 70
70 FÓLK 22. júní 2018 Rúrik Gíslazone Fanzone Fanzone Fifa world cup Höfundur: Konráð Jónsson Teiknari: Guðfinna Berg Í byrjun mars sögðum við frá Axel Frey Hafsteinssyni, fjögurra ára dreng, sem er með sjaldgæfan ónæmissjúkdóm sem nefnist ADEM og útleggst á íslensku sem bráða-, dreifð heila- og mænu- bólga og söfnun sem hrundið var af stað til að koma honum undir læknishendur í Bandaríkjunum. Safnaðist nóg fyrir Axel og foreldra hans, Ölmu Rut Ásgeirsdóttur og Hafstein Frey Gunnarsson, til að þau kæmust til Bandaríkjanna. „Það er magnað hvað fólk er yndislega hjartahlýtt og gott, það er með ólíkindum,“ segir Alma í samtali við DV. „Íslendingar eru svo falleg og góð þjóð,“ en viðtal birtist við hana í DV í nóvember í fyrra. „Ég mun aldrei geta fund- ið orð yfir það hversu þakklát ég er. Þvílík samstaða, þvílík góð- mennska, þvílík hjálpsemi og kær- leikur,“ segir Alma. „Við stóðum frammi fyrir því að eiga ekki pening, enda búin að borga mjög mikið síðustu tvö ár, kostnaðurinn við það að vera með langveikt barn er ekkert grín,“ seg- ir Alma, en fyrir eiga þau synina Viktor, fæddan 2001, og Sindra, fæddan 2004. „Við töluðum við sjúkratryggingar og fleira og sáum fram á að við myndum sjálf þurfa að dekka hluta kostnaðar og leggja út fyrir sumum hlutum. Við áttum ekki þann pening og höfum ekki fjárhagslega sterkt stuðningsnet nálægt okkur þannig að við ákváð- um að reyna að safna á Facebook og náðum að safna fyrir ferðinni út. Í tvö ár höfum við verið inn og út af spítala, erum oft í inn- lögn og Haffi, sem er lærður smið- ur þurfti að minnka allverulega við sig vinnu, við komum okkur í skuldir og á vanskilakrá út af því að við vorum að borga svo mikið og með litla innkomu, við höfum verið í stappi við kerfið frá fyrsta degi þrátt fyrir að Axel sé á þessum tíma búinn að lamast tímabund- ið, hann er lögblindur, varanlega sjónskertur, hefur fengið flog, fests í krampa, verið á gjörgæslu í inn- lögnum og fleira,“ segir Alma. Sjálf hefur Alma verið að mestu heima með Axel eftir að hann veiktist. „Ég er í Keili í fjarnámi í háskólabrú og er útskrifuð úr bæði Ráðgjafaskólanum og Forvarnar- skólanum. Þegar Axel varð veikur var ég að vinna mikið sjálfboða- starf. Ég var heima með Axel í al- veg 15 mánuði og ennþá í dag get- ur hann verið mjög tak- markað á leik- skóla, því þó hann sé með 100 prósent stuðning þar þá hefur hann svo lítið þol og er oft þreyttur og orkulaus á nokkrum lyfjum og fær oft stera í æð og ónæmisbælandi meðferðir.“ Fjölskyldan býr í íbúð sem hentar vel fyrir Axel. „Við fluttum hingað í þessa íbúð áður en Axel varð veikur og erum í raun mjög heppin að búa hér því þessi íbúð hentar mjög vel fyrir hann út af sjóninni; ekki þröskuldar og slíkt. Við fundum hóp á Facebook með foreldrum barna með adem og fólk sem var sjálft með adem. Í hópnum eru rétt undir 1000 manns, enda er þetta mjög sjald- gæft og afar fáir með adem. Út frá hópnum fundum við sérfræðinga úti og lyf sem við ræddum við lækninn okkar um hvort myndu vera góð fyrir Axel, við erum að reyna þau og hafa þau náð sjón- inni upp um nokkur prósent en svo fer hún aftur niður. Við rædd- um við okkar lækni um að setja sig í samband við lækninn úti sem hann gerði og þeir tóku ákvörðun um að við myndum fara út til að hitta hann.“ Þrátt fyrir að safnast hafi fyr- ir ferðinni á skömmum tíma, þá þurfti að bíða eftir dagsetningu og „go“ frá læknunum erlend- is, sú bið er nú loksins á enda og fjölskyldan komin með farmiða í hendurnar og á leiðinni út í lok júní. Á meðan að fjölskyldan beið eftir að komast út sá Alma gler- augu sem heita esight. Axel fékk gleraugu til að prófa og henta þau honum fullkomlega. Gleraugun eru ekki flokkuð sem hjálpartæki hér á landi og því ekki niðurgreidd og ákvað hún að reyna að safna fyrir þeim líka, en þau kosta eina milljón auk gjalda við að koma þeim hingað til lands. „Ég ákvað að safna fyrir þeim með því að tala við listamenn og hafa uppboð á málverkum og með því, auk fram- laga frá einstaklingum, náðum við að safna fyrir gleraugunum,“ segir Alma. „Takk yndislega þjóð, ég mun svo gera allt til að gera eitthvað gott á móti og hjálpa eins og ég get þegar betur stendur á hjá okkkur og lífið okkar kemst í réttan far- veg. Þá mun ég gera allt sem ég get til að hjálpa þeim sem þurfa, með einhverju móti á einhvern hátt. Það er ykkur að þakka að við komumst með barnið okkar út, það er ykkur að þakka og engum öðrum.“ Í Facebookhópnum Axel og Adem, má fylgjast með fréttum af Axel og fjölskyldu hans. n Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Vel tekið í söfnun fyrir Axel Frey - „Það er ykkur að þakka að við komumst með barnið okkar út“ Reikningur Axels er enn opinn og verður það sem á honum er notað til að greiða ferðina og gleraugun. „Reikningurinn er notaður til að kaupa og borga það sem þarf fyrir Axel, enda fáum við ekki fullar umönnunarbætur og höfum til þessa fengið synjun við öllum beiðnum um hjálpartæki.“ Reikningur: 0370-13-001580, kennitala: 240382-5639.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.