Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 35
 22. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Langanesið býr yfir mikilli nátt-úrufegurð sem heillar bæði innlenda og erlenda ferðamenn. Gistiheimilið Ytra Lón Farm Lodge er vel í sveit sett fyrir slíka ferðalanga en það er staðsett á miðju Langanesinu og um 15 km frá Þórshöfn. Mirjam Blekkenhorst er hollensk kona sem búið hefur á Íslandi í 30 ár og talar hún reiprennandi íslensku. Hún og maður hennar, Sverrir Möller, hafa selt gistingu á Ytra Lóni síðan árið 1998. Að sögn Mirjam eru erlendir ferðamenn í meirihluta gesta á Ytra Lóni en Íslendingum fer þó töluvert fjölgandi: „Hingað koma margir sem búa á Húsavík, Akureyri og Egilsstöðum í helgarferðir til að skoða Langanesið. Einnig koma gönguhópar hingað, kannski hópar sem ganga á Horn- strandir eitt árið og á Langanesið það næsta. Þá geri ég þeim gjarnan hagstæð tilboð. Auk gistingar og veitinga er leiðsögn í boði og sumir hópar þiggja leiðsögn einn dag en eru að öðru leyti á eigin vegum,“ segir Mirjam. Í boði eru ferðir á Land Rover bíl um Langanesið sem einnig geta hentað ferðalöngum sem gista ekki. En gönguferðir með leiðsögn eru partur af gistipakkanum. Að sögn Mirjam er oftast hægt að panta gistingu á Ytra Lóni með frekar litlum fyrirvara. Veitingar eru innifaldar fyrir þá sem það vilja en margir komast af án þeirra. „Þetta eru alls níu stúdíóíbúð- ir sem hver um sig rúmar ágæt- lega 2-4 manneskjur, t.d. par eða fjögurra manna fjölskyldu. Í hverri íbúð er baðherbergi og lítið eldhús. Því hefur fólk allt til alls og margir kjósa að elda bara sjálfir og vera út af fyrir sig, þá getur verið gaman að kaupa lambakjötið frá Ytra Lóni og grilla,“ segir Mirjam. Stutt er í matvöruverslun og aðra þjónustu á Þórshöfn. Mirjam og Sverrir reka sauðfjárbú á staðnum en auk sauðfjárins eru á bænum hestar, hænur, köttur og fjór- ir til fimm Border Collie hundar sem hjálpa til við alla vinnu við féð. Dýra- lífið kryddar dvölina á Ytra Lóni og er gestum til yndis. Fram hjá bænum rennur vinsæl silungsá, Lónsá, en veiðileyfi í hana eru pöntuð á veiditorg.is. Hægt er að panta gistingu eða afla sér frekari upplýsinga á vefnum ytralon.is en einnig með tölvupósti á netfangið mirjam@ytralon.is eða í síma 846 6448. Þess má geta að enn eru nokkur laus pláss í Langanes- ferðina 1.-5. júlí næstkomandi. Það er gönguferð um friðsæla byggð sem var og eyðiþorp með mikla sögu, um lífleg fuglabjörg og út á ysta odda Langaness. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og tryggja sér pláss. Norðausturland YTRA LÓN FARM LODGE: Heillandi sveitagisting og ægifegurð Langaness HJÁLEIGAN – KAFFIHÚS: Ekta íslenskt kaffibrauð og húsdýr í garðinum Hjáleigan er einstaklega huggu-legt sveitakaffihús, staðsett við Minjasafnið á Bustarfelli, í Hofsárdalnum, skammt frá Vopna- firði. Þetta fallega hús tekur um 25-30 manns í sæti en auk þess er veitingasvæði á verönd fyrir utan sem er vinsælt þegar vel viðrar. Hjáleigan er opin frá 1. júní til 10. september frá kl. 10 til 17 alla daga vikunnar. Rekstraraðilar eru Petra Jörgensdóttir og Hörður Sigurjóns- son og eitt helsta einkenni veitinga staðarins er heimabakað brauð úr ofni Petru. Eingöngu er í boði íslenskt heimabakað brauðmeti á staðnum og mikið af því er séríslenskt kaffibrauð á borð við kleinur, skonsur, flatkök- ur, vöfflur, formkökur og alls konar tertur. Kaffibrauðið á Hjáleigunni er rómað víða og gestir hæla því yfir- leitt í hástert. Einnig eru í boði tvær tegundir af heimagerðum ís. Meðal drykkja í boði eru kaffi, kakó og te. Lítill húsdýra- garður og Bu- starfellsdagur- inn Eitt aðdráttarafl Hjáleigunnar – sem gerir staðinn mjög fjölskylduvænan – er vísir að húsdýragarði fyrir utan kaffihúsið og er ókeypis aðgangur að honum. Þarna eru nú lítill kálfur, tvö lítil lömb og kanína. Þá eru geitur væntanlegar í garðinn. Bustarfellsdagurinn verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 8. júlí og þá verða fleiri dýr flutt í garðinn frá bæjum í héraðinu. Þannig dag verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá og meðal annars verða gamlar verk- hefðir sýndar. Nánari upplýsingar um Hjáleiguna kaffihús er að finna á Facebook-síð- unni Hjáleigan Kaffihús. Börnin skemmta sér alltaf vel á Bustarfellsdeginum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.