Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 60
60 22. júní 2018BLEIKT - KYNLÍF „Ég snerti hana og hún finnur að mig langar og svo koll af kolli. Frumkvæðið hefur alltaf verið mitt, en núna í seinni tíð, sérstaklega síð- ustu tvö árin, hef- ur hún nánast alltaf sýnt mér að hún vilji ekki snertingu, sem þýðir þá að hana langar ekki. Hæ Ragga Ég er giftur karlmaður í vanda. Eða kannski væri réttara að segja að við hjónin eigum í vanda. Við höfum ekki stund- að kynlíf nema kannski tvisvar á síðustu tólf mánuðum, og það er of lítið að mínu mati. Ég er algjörlega kominn í þrot en hún virðist ekki þurfa meira. Bakgrunnur okkar: Við kynntumst fyrir 22 árum og byrjuðum strax saman. Fljótlega kom fyrsta barnið undir og við giftum okkur fjórum árum eftir fyrstu kynni. Börnin eru þrjú núna, öll búa enn heima. Í byrjun var kynlífið fínt, og ég held að við höf- um bæði fengið það sem við vildum. Við vor- um samt aldrei neitt villt og líklega mundir þú telja kynlífið okkar ósköp venjulegt. Hvorki þá né núna höfum við rætt um kynlíf okkar – en með árunum höfum við lært að skilja hvort annað. Ég snerti hana og hún finnur að mig langar og svo koll af kolli. Frumkvæðið hef- ur alltaf verið mitt, en núna í seinni tíð, sér- staklega síðustu tvö árin, hefur hún nánast alltaf sýnt mér að hún vilji ekki snertingu, sem þýðir þá að hana langar ekki. Ég stunda sjálfsfróun í einrúmi, en mér líður ekkert vel með það, og efast um að hún geri slíkt hið sama. Mig langar ofboðslega mikið í kynlíf og finn að ég er farinn að líta öðruvísi á konur í kringum mig. Konur sem vinna með mér kveikja allt í einu í mér og ég stend mig að því að dagdreyma um kynlíf með þeim. Samviskubitið er gríðarlegt, því ég hef aldrei haldið framhjá konunni minni og langar ekki að gera það. Kæra Ragga, getur þú gefið mér einhver ráð um hvernig hægt er að laga ástandið? Á ég kannski bara að sætta mig við að kynlífi mínu sé lokið? Ég er samt alls ekki sáttur við það enda rétt kominn yfir fertugt og finn að orkan er ennþá mikil. Hvað get ég gert? Bestu kveðjur, Óli Sæll Óli Alveg er ég viss um að margir lesendur þekkja sig í frásögn þinni. Ástandið sem þú lýsir læðist aftan að fólki, og sambönd eins og ykkar, þar sem kynlífið er aldrei rætt, eru kannski í mestri hættu. Allt er í sóma og blóma í upphafi á meðan nýjabrumið blæs lífi í kynorkuna, en þegar frá líður hellist hinn banvæni hversdagsleiki yfir fólk. Við verðum eins og froskurinn í pottinum sem hefur ekki rænu á að bjarga lífi sínu ef vatnið er hitað smám saman í stað þess að vera sjóðheitt frá byrjun. Hann slakar á í hlýjunni en fyrr en var- ir er vatnið komið að suðumarki og froskurinn steindauður. En ekki örvænta elsku Óli minn. Ef það ríkir ennþá hlýja, virðing og ást á milli ykkar má vel vera að hægt sé að endurlífga það sem eitt sinn ríkti ykkar á milli. Mér finnst skelfilegt að þú sért að íhuga að leggja kynlífsárar í bát á þínum aldri. Einhvern veginn þarf að leysa málið því þú ert ekki fullnægður, og greinilega ekki að lifa lífinu eins og þú helst vildir. Að því sögðu vil ég líka nefna að órar þínir eru afskaplega eðli- legir og sjálfsfróunin sjálfsögð og nauðsynleg. Reyndar eru órar eðlilegir hjá öllum, líka fólki í einkvænissamböndum – munurinn er sá að þar hefur verið gefið loforð um að órarnir verði ekki færð- ir yfir í aðgerðir. Sjálfsfróun er líka holl og ætti að vera hluti kynlífs okkar á hvaða aldri sem er, óháð sambandsstöðu. En til þess að hægt sé að vinna í málinu þarftu að nálgast konuna þína og opna umræðuna. Gættu þess að gera það ekki í ásökunartóni, og ekki gera það í rúminu. Talaðu um sjálfan þig og þínar tilfinningar í stað þess að reyna að lesa hennar. Hún þarf sjálf að tjá sína hlið. Ef grundvöll- ur reynist til að vinna í málun- um og reyna koma kynferðislegu straumunum í gang á ný gæti verið sniðugt að ræða við ráð- gjafa. Bestu kveðjur, Ragga Ragga Eiríks svarar lesendum: „Á ég kannski að sætta mig við að kynlífi mínu sé lokið?“ Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi. raggaeiriks.com raggaeiriks@gmail.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.