Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 23
KYNNING Sætir snúðar á Frakkastígnum ÍSLENSK STEMNING MEÐ BANDARÍSKUM KEIM: „Við náum rosa- lega vel saman á öllum öðrum sviðum, þannig að af hverju ekki bara prófa að ná vel saman í rekstri?“ Kanill er ekki bara kanill, vilja sannir bakarasnillingar meina. Það skiptir höfuðmáli hvernig hann er notaður í bakstur og hvern- ig meðhöndlun hans er háttað með tilliti til alls þess sem hann gefur frá sér. Þessari aðferðarfræði er Danival Örn Egilsson hjartanlega sammála, en hann er annar stofnandi matar- vagnsins Sætir snúðar og segir verk- ferlana á bakvið góðan bakstur vera margvíslega. Þessi litli, blái bakkelsisvagn stendur efst á Frakkastíg, við Hall- grímskirkju, í hjarta Reykjavíkur og býður upp á gómsæta, ferska og heita kanilsnúða, matreidda beint frá hjarta og ástríðu tveggja feðga. Saman reka þeir Danival Örn og Egill Helgi Lárusson, faðir Danivals, þennan matarvagn sem spratt upp úr áhuga þeirra fyrir ljúffengum mat, nýjungum, sjálfstæðum störfum og sameiginlegu verkefni sem hefur síðan sameinað þá feðga með nýjum hætti. „Þetta gerðist í raun alveg óvart,“ segir Danival um tilurð vagnsins. „Við pabbi vorum saman í London árið 2016 og fórum á stað sem var með nýbakaða kanilsnúða sem kölluðu alveg til okkar. Stuttu eftir ferðina fer pabbi að spreyta sig í bakstri á snúðum og prófa ýmislegt með mjög góðum árangri.“ Áður en feðgarnir vissu af voru viðtökurnar farnar fram úr björtustu vonum þeirra og þeir báðir farnir að framleiða kanilsnúða fyrir veislur og afmæli hjá vinum og ættingjum. „Við- brögðin voru frábær, segir Danival. „Við vorum ekki að leitast eftir hrósi en fólk varð mjög opið með að vilja meira. Þá datt okkur í hug að vera með matarvagn með þessa sérþekk- ingu, nýbakaða og ferska kanilsnúða. Svona blanda af íslenskri stemningu og bandarískum sjarma.“ Sterkir saman Danival útskrifaðist úr Flensborg árið 2015 og hefur mikið ferðast um og hefur lengi haft metnað fyrir því að gera eitthvað sjálfur. Hann segir stefnu vagnsins hafa verið að taka ekki hugmyndina og ímyndina of alvarlega en samt heldur ekki fara of langt í hina áttina, heldur bara finna hinn gullna meðalveg. Þetta sést vel á skemmtilegum myndskreytingum sem prýða vagninn sjálfan og frum- legum nöfnum á snúðunum á borð við Jökulinn, Sebruna og Ítalann. „Pabbi hefur alltaf verið mikill hobbýkarl og hellir sér í allt sem hann kemst í,“ segir Danival um ákvörðun- ina að leggja í þessa viðskiptahug- mynd af fullum krafti, en þegar Egill stendur ekki vaktina með syni sínum kennir hann viðskiptagreinar við Verslunarskóla Íslands. „Pabbi hefur mikla reynslu í að gera deig og hefur lengi verið þekktur fyrir að gera gríðarlega góðar pitsur. Hann hafði þetta alveg í sér. Hann hefur þróað sig stöðugt áfram í upp- skriftum,“ mælir Danival. „Við töluðum lengi um að gera eitt- hvað saman. Við náum rosalega vel saman á öllum öðrum sviðum, þannig að af hverju ekki bara prufa að ná vel saman í rekstri?“ Jökullinn heitastur „Það var margt sem þurfti að huga að þegar við byrjuðum á þessu. Hvernig er til dæmis hægt að tryggja það að þetta væri tilbúið á hverj- um degi og koma því alltaf fersku til fólks,“ mælir Danival og segir það hafa komið sér á óvart hvað einfaldur rekstur eins og matavagn felur í sér margar hraðahindranir, en þeim tóku feðgarnir fagnandi. „Okkur fannst ákveðinn skortur á þessu hér á landi. Auðvitað eru aðrir aðilar sem selja bakkelsi og svona en það eru ekki margir að selja bakkelsi í matarvögnum. Okkur fannst alveg vera pláss fyrir okkur á markaðinum. Hingað til hefur það gengið ágætlega hjá okkur.“ Þrátt fyrir að vagninn hafi ekki verið opinn lengi segir Danival ekki fara á milli mála hvaða snúður hefur reynst vinsælastur. „Sá heitasti er Jökullinn. Að hluta til er það af því að hann er svona klassískur kanilsnúður í amerískum stíl en ekki svona eins og Íslendingar eru vanir, sem er meira í líkingu við skandinavískt sætabrauð. Jökullinn hefur þetta upprunalega útlit sem kallar til fólks, en svo eru auðvitað aðrir sem sætta sig ekki við annað en Ítalann, og það er Nutellan sem kallar þar sterkt.“ Hugað að umhverfinu Danival segir mörg íslensk fyrirtæki, sérstaklega í seinni tíð, vera fullmikið að einblína á alþjóðlegt heiti og vill hann meina að það ræni útlending- ana ákveðinni upplifun sem fylgir því að koma til Íslands. „Ef ég færi til Serbíu og fengi mér mat, þá vildi ég sjá eitthvað skilti sem ég skil ekki og þurfa að spyrja og hafa smá stemn- ingu í því. Það var það sem við vildum alltaf gera. Þannig varð í rauninni nafnið okkar, Sætir snúðar, til,“ segir hann. „Ég var með skýra stefnu í því að hafa nafnið á vagninum íslenskt. Í rauninni eru mörg fyrirtæki að fórna íslenskunni fyrir ensku til að höfða til ferðamannanna.“ Aðspurður hverju þeir feðgar svara erlendum ferða- mönnum varðandi heiti vagnsins svarar Danival kátur: „Sweet buns.“ Að mati feðganna skiptir einnig gríðarlega miklu máli að huga að umhverfinu og leggja þeir þess vegna mikla vinnu í það. „Við erum nán- ast búnir að ná því markmiði,“ segir Danival. „Þó svo að við séum með plastlok á glösunum og plaströr á Kókómjólkinni, þá erum við fyrir utan það með trégafla, endurvinnanlegan pappír, bakka og pappa. Plastnotkun er auðvitað mjög heit umræða í dag og skiptir alla máli. Við viljum tryggja það að við séum eins umhverfisvænir og hægt er.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.