Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Síða 23
KYNNING
Sætir snúðar á
Frakkastígnum
ÍSLENSK STEMNING MEÐ BANDARÍSKUM KEIM:
„Við náum rosa-
lega vel saman á
öllum öðrum sviðum,
þannig að af hverju
ekki bara prófa að ná
vel saman í rekstri?“
Kanill er ekki bara kanill, vilja sannir bakarasnillingar meina. Það skiptir höfuðmáli hvernig
hann er notaður í bakstur og hvern-
ig meðhöndlun hans er háttað með
tilliti til alls þess sem hann gefur frá
sér. Þessari aðferðarfræði er Danival
Örn Egilsson hjartanlega sammála,
en hann er annar stofnandi matar-
vagnsins Sætir snúðar og segir verk-
ferlana á bakvið góðan bakstur vera
margvíslega.
Þessi litli, blái bakkelsisvagn
stendur efst á Frakkastíg, við Hall-
grímskirkju, í hjarta Reykjavíkur og
býður upp á gómsæta, ferska og
heita kanilsnúða, matreidda beint
frá hjarta og ástríðu tveggja feðga.
Saman reka þeir Danival Örn og
Egill Helgi Lárusson, faðir Danivals,
þennan matarvagn sem spratt upp
úr áhuga þeirra fyrir ljúffengum mat,
nýjungum, sjálfstæðum störfum og
sameiginlegu verkefni sem hefur
síðan sameinað þá feðga með nýjum
hætti.
„Þetta gerðist í raun alveg óvart,“
segir Danival um tilurð vagnsins. „Við
pabbi vorum saman í London árið
2016 og fórum á stað sem var með
nýbakaða kanilsnúða sem kölluðu
alveg til okkar. Stuttu eftir ferðina
fer pabbi að spreyta sig í bakstri á
snúðum og prófa ýmislegt með mjög
góðum árangri.“
Áður en feðgarnir vissu af voru
viðtökurnar farnar fram úr björtustu
vonum þeirra og þeir báðir farnir að
framleiða kanilsnúða fyrir veislur og
afmæli hjá vinum og ættingjum. „Við-
brögðin voru frábær, segir Danival.
„Við vorum ekki að leitast eftir hrósi
en fólk varð mjög opið með að vilja
meira. Þá datt okkur í hug að vera
með matarvagn með þessa sérþekk-
ingu, nýbakaða og ferska kanilsnúða.
Svona blanda af íslenskri stemningu
og bandarískum sjarma.“
Sterkir saman
Danival útskrifaðist úr Flensborg
árið 2015 og hefur mikið ferðast um
og hefur lengi haft metnað fyrir því
að gera eitthvað sjálfur. Hann segir
stefnu vagnsins hafa verið að taka
ekki hugmyndina og ímyndina of
alvarlega en samt heldur ekki fara of
langt í hina áttina, heldur bara finna
hinn gullna meðalveg. Þetta sést vel
á skemmtilegum myndskreytingum
sem prýða vagninn sjálfan og frum-
legum nöfnum á snúðunum á borð
við Jökulinn, Sebruna og Ítalann.
„Pabbi hefur alltaf verið mikill
hobbýkarl og hellir sér í allt sem hann
kemst í,“ segir Danival um ákvörðun-
ina að leggja í þessa viðskiptahug-
mynd af fullum krafti, en þegar Egill
stendur ekki vaktina með syni sínum
kennir hann viðskiptagreinar við
Verslunarskóla Íslands.
„Pabbi hefur mikla reynslu í að
gera deig og hefur lengi verið þekktur
fyrir að gera gríðarlega góðar pitsur.
Hann hafði þetta alveg í sér. Hann
hefur þróað sig stöðugt áfram í upp-
skriftum,“ mælir Danival.
„Við töluðum lengi um að gera eitt-
hvað saman. Við náum rosalega vel
saman á öllum öðrum sviðum, þannig
að af hverju ekki bara prufa að ná vel
saman í rekstri?“
Jökullinn heitastur
„Það var margt sem þurfti að huga
að þegar við byrjuðum á þessu.
Hvernig er til dæmis hægt að tryggja
það að þetta væri tilbúið á hverj-
um degi og koma því alltaf fersku til
fólks,“ mælir Danival og segir það
hafa komið sér á óvart hvað einfaldur
rekstur eins og matavagn felur í sér
margar hraðahindranir, en þeim tóku
feðgarnir fagnandi.
„Okkur fannst ákveðinn skortur á
þessu hér á landi. Auðvitað eru aðrir
aðilar sem selja bakkelsi og svona en
það eru ekki margir að selja bakkelsi
í matarvögnum. Okkur fannst alveg
vera pláss fyrir okkur á markaðinum.
Hingað til hefur það gengið ágætlega
hjá okkur.“
Þrátt fyrir að vagninn hafi ekki
verið opinn lengi segir Danival ekki
fara á milli mála hvaða snúður hefur
reynst vinsælastur. „Sá heitasti er
Jökullinn. Að hluta til er það af því að
hann er svona klassískur kanilsnúður
í amerískum stíl en ekki svona eins og
Íslendingar eru vanir, sem er meira í
líkingu við skandinavískt sætabrauð.
Jökullinn hefur þetta upprunalega
útlit sem kallar til fólks, en svo eru
auðvitað aðrir sem sætta sig ekki við
annað en Ítalann, og það er Nutellan
sem kallar þar sterkt.“
Hugað að umhverfinu
Danival segir mörg íslensk fyrirtæki,
sérstaklega í seinni tíð, vera fullmikið
að einblína á alþjóðlegt heiti og vill
hann meina að það ræni útlending-
ana ákveðinni upplifun sem fylgir
því að koma til Íslands. „Ef ég færi til
Serbíu og fengi mér mat, þá vildi ég
sjá eitthvað skilti sem ég skil ekki og
þurfa að spyrja og hafa smá stemn-
ingu í því. Það var það sem við vildum
alltaf gera. Þannig varð í rauninni
nafnið okkar, Sætir snúðar, til,“ segir
hann.
„Ég var með skýra stefnu í því að
hafa nafnið á vagninum íslenskt. Í
rauninni eru mörg fyrirtæki að fórna
íslenskunni fyrir ensku til að höfða til
ferðamannanna.“ Aðspurður hverju
þeir feðgar svara erlendum ferða-
mönnum varðandi heiti vagnsins
svarar Danival kátur: „Sweet buns.“
Að mati feðganna skiptir einnig
gríðarlega miklu máli að huga að
umhverfinu og leggja þeir þess vegna
mikla vinnu í það. „Við erum nán-
ast búnir að ná því markmiði,“ segir
Danival. „Þó svo að við séum með
plastlok á glösunum og plaströr á
Kókómjólkinni, þá erum við fyrir utan
það með trégafla, endurvinnanlegan
pappír, bakka og pappa. Plastnotkun
er auðvitað mjög heit umræða í dag
og skiptir alla máli. Við viljum tryggja
það að við séum eins umhverfisvænir
og hægt er.“