Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 43
 22. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Snæfellsjökulshlaupið verður haldið í áttunda sinn þann 30. júní næstkomandi. Hlaupin er 22 km leið frá Arnarstapa, eftir Snæ- fellsjökli og inn á Ólafsvík þar sem hlaupið endar í miðbænum. Ólafsvík er í þægilegri, tveggja og hálfs klukku- stundar akstursfjarlægð frá Reykja- vík og undanfarin ár hafa margir hlauparar úr höfuðborginni, sem og víða annars staðar af landinu, spreytt sig á Snæfellsjökulshlaupinu, enda er það mikil upplifun með dýrlegu útsýni. Hjónin Rán Kristinsdóttir og Fannar Baldursson stofnuðu hlaupið fyrir átta árum og segir Rán að þetta hafi bara verið hugmynd sem kviknaði hjá þeim, umhverfið þarna sé mjög heillandi og sjálf hafi þau hlaupið töluvert um ævina. „Vinsældir hlaupsins hafa farið stigvaxandi. Fyrsta árið voru þátt- takendur um 50 en í fyrra voru þeir komnir upp í 211,“ segir Rán, en fyrir marga er þetta hlaup töluverð áskor- un á meðan vanir hlauparar fara kannski þokkalega létt í gegnum það. Hlaupatími hjá flestum er 2-3 klukkutímar en tíminn er að jafn- aði lakari en í götuhlaupi, þar sem undirlagið er erfiðara. „Þetta byrjar í upphækkun og þannig eru fyrstu sjö kílómetrarnir. Þetta er 800 metra hækkun. Þá geta allt að sex kílómetrar verið í snjó og eitthvað jafnvel í drullu, þannig að þetta tekur á,“ segir Rán. Margir hlauparar hafa hins vegar gaman af að kljást við svo fjölbreytt undirlag. Stór hluti hlaupaleiðarinnar er á möl og lokaspölurinn á malbiki. Ræst verður klukkan 12 á hádegi laugardaginn 30. júní. Rán segir að hingað til hafi þau haft opið fyrir skráningu alveg fram að keppnisdegi en ef fjöldinn verður mjög mikill núna gætu þau þurft að loka fyrir skrán- ingu fyrr. Einnig er boðið upp á rútu- ferð frá Ólafsvík að Arnarstapa sem stór hluti keppenda nýtir sér og þarf að skrá sig í rútuna fyrirfram. Yfirleitt þarf 2-3 rútur til að ferja þann hluta keppenda sem velur þennan kost. Rán segir að þau hafi verið mjög heppin með veður í hlaupinu hingað til og vonar hún innilega að sú verði raun- in líka að þessu sinni. „Ef það er tært yfir jöklinum þá er útsýnið alveg geggj- að og þetta er meiriháttar upplifun enda hlaupaleiðin afskaplega falleg.“ Nánari upplýsingar og skráning eru á hlaup.is Sumarhlaup SNÆFELLSJÖKULSHLAUPIÐ: Einstaklega falleg hlaupaleið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.