Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Page 43
22. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
Snæfellsjökulshlaupið verður haldið í áttunda sinn þann 30. júní næstkomandi. Hlaupin er
22 km leið frá Arnarstapa, eftir Snæ-
fellsjökli og inn á Ólafsvík þar sem
hlaupið endar í miðbænum. Ólafsvík
er í þægilegri, tveggja og hálfs klukku-
stundar akstursfjarlægð frá Reykja-
vík og undanfarin ár hafa margir
hlauparar úr höfuðborginni, sem og
víða annars staðar af landinu, spreytt
sig á Snæfellsjökulshlaupinu, enda er
það mikil upplifun með dýrlegu útsýni.
Hjónin Rán Kristinsdóttir og Fannar
Baldursson stofnuðu hlaupið fyrir átta
árum og segir Rán að þetta hafi bara
verið hugmynd sem kviknaði hjá þeim,
umhverfið þarna sé mjög heillandi og
sjálf hafi þau hlaupið töluvert um ævina.
„Vinsældir hlaupsins hafa farið
stigvaxandi. Fyrsta árið voru þátt-
takendur um 50 en í fyrra voru þeir
komnir upp í 211,“ segir Rán, en fyrir
marga er þetta hlaup töluverð áskor-
un á meðan vanir hlauparar fara
kannski þokkalega létt í gegnum það.
Hlaupatími hjá flestum er 2-3
klukkutímar en tíminn er að jafn-
aði lakari en í götuhlaupi, þar sem
undirlagið er erfiðara. „Þetta byrjar í
upphækkun og þannig eru fyrstu sjö
kílómetrarnir. Þetta er 800 metra
hækkun. Þá geta allt að sex kílómetrar
verið í snjó og eitthvað jafnvel í drullu,
þannig að þetta tekur á,“ segir Rán.
Margir hlauparar hafa hins vegar
gaman af að kljást við svo fjölbreytt
undirlag. Stór hluti hlaupaleiðarinnar
er á möl og lokaspölurinn á malbiki.
Ræst verður klukkan 12 á hádegi
laugardaginn 30. júní. Rán segir að
hingað til hafi þau haft opið fyrir
skráningu alveg fram að keppnisdegi
en ef fjöldinn verður mjög mikill núna
gætu þau þurft að loka fyrir skrán-
ingu fyrr. Einnig er boðið upp á rútu-
ferð frá Ólafsvík að Arnarstapa sem
stór hluti keppenda nýtir sér og þarf
að skrá sig í rútuna fyrirfram. Yfirleitt
þarf 2-3 rútur til að ferja þann hluta
keppenda sem velur þennan kost.
Rán segir að þau hafi verið mjög
heppin með veður í hlaupinu hingað til
og vonar hún innilega að sú verði raun-
in líka að þessu sinni. „Ef það er tært
yfir jöklinum þá er útsýnið alveg geggj-
að og þetta er meiriháttar upplifun
enda hlaupaleiðin afskaplega falleg.“
Nánari upplýsingar og
skráning eru á hlaup.is
Sumarhlaup
SNÆFELLSJÖKULSHLAUPIÐ:
Einstaklega
falleg hlaupaleið