Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 64
64 22. júní 2018FRÉTTIR - EYJAN Síðumúla 30 - Reykjavík Hofsbót 4 - Akureyri 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM DÝNUM OG SVAMPI E ins og svo oft áður voru Barry Sweeney, 10 ára, og Frannie Hopkins, 12 ára, að spila fótbolta á grasbletti þar sem kaþólska Tuam barnaheim- ilið á Írlandi hafði verið til húsa. Þetta var 1975. Í grasinu var steypt plata á stærð við sófaborð. Eins og ungra drengja er von þá voru þeir forvitnir og lyftu plötunni uppi. Þetta reyndist vera hlemm- ur og undir honum sáu þeir hrúgu af beinagrindum af börnum. Þeir sögðu sárafáum frá þessu en þó einhverjum og yfirvöld voru látin vita. Þau brugðust ekki við og leyndu þessu enda voru ítök kaþ- ólsku kirkjunnar mikil á Írlandi á þessum tíma. Frannie Hopkins sagði síðar að prestur hafi haldið tölu yfir beina- grindunum sem voru síðan huldar á nýjan leik. Par, sem bjó á svæð- inu, gætti þess síðan næstu 35 árin. Þau sáðu grasi og plöntuðu blóm- um og reistu minnismerki um látnu börnin. Þarna hafði barna- heimilið Mother Secours Mother and Baby Home (yfirleitt kallað St. Mary‘s eða The Home) verið til húsa. Þar réðu kaþólskar nunn- ur ríkjum. Barnshafandi konur, sem ekki voru giftar, gátu leitað til heimilisins og fengið húsaskjól fyr- ir sig og barn sitt. Konurnar fengu síðan að dvelja áfram þar eftir að þær höfðu alið börn sín en þeim var haldið aðskildum í sitt hvorum helmingi hússins. Mörg barnanna voru síðan gefin til ættleiðinga og nunnurnar lugu að mörgum mæðranna og sögðu þeim að börn þeirra væru látin þrátt fyrir að þau væru á lífi. Það var ekki fyrr en á síðasta ári sem málið tók að skýrast af alvöru en þagnarhjúpur hafði verið sveipaður um það. Það var vegna þrjósku sagnfræðings- ins Catherine Corless sem málið komst í hámæli. Í grein í tímaritinu Journal of the Old Tuam Soci- ety fjallaði hún fyrst um málið og börnin 796. Grein hennar vakti ekki mikla athygli nema í Tuam. Fram kom að frá 1925 til 1961 voru 796 dauðsföll skráð á „The Home“ í Tuam. Árið 2012 hafði Corless tekist að grafa fæðingar- og dánarvottorð barnanna upp auk ýmissa annarra upplýsinga. Á dánarvottorðunum kom fram að ýmsir sjúkdómar, ónóg gæsla og umönnun barnanna drógu þau til dauða, auk vannæringar. En af- hjúpunum Corless var ekki þar með lokið. Hún sá að aðeins tvö af þessum börnum höfðu verið jarðsett í kirkjugarðinum í Tuam. Engar upplýsingar lágu fyrir um hvað hafði verið gert við hin 794 börnin. Corless var sannfærð um að þau hefðu verið grafin nærri heimilinu. Það var síðan 2014 að Barry Sweeney skýrði The Irish Times frá því hvað hann og vin- ur hans höfðu fundið. Þetta var tveimur árum eftir að Corless hafði skýrt frá því sem hún hafði fundið. „Beinagrindum hafði verið hent niður í steypukassa. Þær lágu út um allt, þær voru ekki í neinu og það voru engar kistur. En það voru engar 800 beinagrindur þarna. Ekki nærri því. Ég veit ekki hvaðan sú tala kemur,“ sagði hann. Þegar málið var kannað árið 1975 töldu menn að holan eða tankurinn, sem piltarnir fundu, hefði verið rotþró eða hluti af hol- ræsakerfi. Ekki er enn vitað hvort tankurinn var í notkun þegar lík- in voru sett þar niður. Á síðasta ári lauk uppgreftri á svæðinu en hann hófst eftir að sérstök rann- sóknarnefnd var skipuð til að rannsaka málið ofan í kjölinn. Við uppgröftinn fannst rotþró en engar beinagrindur voru í henni. Um 20 steinsteypt neðanjarðar- rými fundust og í þeim mikið af beinagrindum. Breska dagblaðið The Guardi- an hefur eftir Corless að hún telji að flest börnin hafi verið grafin á svæði þar sem nú er búið að út- búa stórt leiksvæði í tengslum við íbúðarhverfi sem var byggt eftir að barnaheimilið var rifið. Börn- in hafa líklegast fengið útför að kristnum sið. Hugsanlegt er talið að svæðið hafi ekki verið merkt sem kirkjugarður eða krossar sett- ir á leiðin til að koma í veg fyrir að fólk sem kom til að ættleiða börn sæi ekki sæg af krossum. Rann- sóknir benda til að börnin hafi dáið frá 35. viku meðgöngu til þriggja ára aldurs. Flestar bein- grindanna eru frá sjötta áratugn- um. Bon Secure reglan, sem rak barnaheimilið í Tuam, hefur ekki verið sérlega samvinnuþýð við rannsókn málsins en hefur margoft neitað að vita nokkuð um fjöldagröf. Í samtali við The Guardian árið 2015 sagði Corless að reglan hafi talið sig hafna yfir lög á sínum tíma og telji enn. n n 794 barnslík hurfu sporlaust frá kaþólsku barnaheimili á Írlandi HNEYKSLIÐ UM HORFNU BÖRNIN Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Catherine Corless, sagnfræðingur í Tuam. MYND/PA Frannie Hopkins á staðnum þar sem hann fann beinagrindurnar ásamt vini sínum Barry Sweeney. MYND/LE MONDE Tuam í dag. MYND/DAILY BEAST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.