Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Side 64
64 22. júní 2018FRÉTTIR - EYJAN
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM DÝNUM
OG SVAMPI
E
ins og svo oft áður voru
Barry Sweeney, 10 ára, og
Frannie Hopkins, 12 ára, að
spila fótbolta á grasbletti þar
sem kaþólska Tuam barnaheim-
ilið á Írlandi hafði verið til húsa.
Þetta var 1975. Í grasinu var steypt
plata á stærð við sófaborð. Eins
og ungra drengja er von þá voru
þeir forvitnir og lyftu plötunni
uppi. Þetta reyndist vera hlemm-
ur og undir honum sáu þeir hrúgu
af beinagrindum af börnum. Þeir
sögðu sárafáum frá þessu en þó
einhverjum og yfirvöld voru látin
vita. Þau brugðust ekki við og
leyndu þessu enda voru ítök kaþ-
ólsku kirkjunnar mikil á Írlandi á
þessum tíma.
Frannie Hopkins sagði síðar að
prestur hafi haldið tölu yfir beina-
grindunum sem voru síðan huldar
á nýjan leik. Par, sem bjó á svæð-
inu, gætti þess síðan næstu 35 árin.
Þau sáðu grasi og plöntuðu blóm-
um og reistu minnismerki um
látnu börnin. Þarna hafði barna-
heimilið Mother Secours Mother
and Baby Home (yfirleitt kallað
St. Mary‘s eða The Home) verið
til húsa. Þar réðu kaþólskar nunn-
ur ríkjum. Barnshafandi konur,
sem ekki voru giftar, gátu leitað til
heimilisins og fengið húsaskjól fyr-
ir sig og barn sitt. Konurnar fengu
síðan að dvelja áfram þar eftir að
þær höfðu alið börn sín en þeim
var haldið aðskildum í sitt hvorum
helmingi hússins. Mörg barnanna
voru síðan gefin til ættleiðinga
og nunnurnar lugu að mörgum
mæðranna og sögðu þeim að börn
þeirra væru látin þrátt fyrir að þau
væru á lífi.
Það var ekki fyrr en á síðasta
ári sem málið tók að skýrast af
alvöru en þagnarhjúpur hafði
verið sveipaður um það. Það var
vegna þrjósku sagnfræðings-
ins Catherine Corless sem málið
komst í hámæli. Í grein í tímaritinu
Journal of the Old Tuam Soci-
ety fjallaði hún fyrst um málið og
börnin 796. Grein hennar vakti
ekki mikla athygli nema í Tuam.
Fram kom að frá 1925 til 1961
voru 796 dauðsföll skráð á „The
Home“ í Tuam. Árið 2012 hafði
Corless tekist að grafa fæðingar-
og dánarvottorð barnanna upp
auk ýmissa annarra upplýsinga.
Á dánarvottorðunum kom fram
að ýmsir sjúkdómar, ónóg gæsla
og umönnun barnanna drógu þau
til dauða, auk vannæringar. En af-
hjúpunum Corless var ekki þar
með lokið. Hún sá að aðeins tvö
af þessum börnum höfðu verið
jarðsett í kirkjugarðinum í Tuam.
Engar upplýsingar lágu fyrir um
hvað hafði verið gert við hin 794
börnin. Corless var sannfærð um
að þau hefðu verið grafin nærri
heimilinu. Það var síðan 2014 að
Barry Sweeney skýrði The Irish
Times frá því hvað hann og vin-
ur hans höfðu fundið. Þetta var
tveimur árum eftir að Corless
hafði skýrt frá því sem hún hafði
fundið.
„Beinagrindum hafði verið
hent niður í steypukassa. Þær lágu
út um allt, þær voru ekki í neinu og
það voru engar kistur. En það voru
engar 800 beinagrindur þarna.
Ekki nærri því. Ég veit ekki hvaðan
sú tala kemur,“ sagði hann.
Þegar málið var kannað árið
1975 töldu menn að holan eða
tankurinn, sem piltarnir fundu,
hefði verið rotþró eða hluti af hol-
ræsakerfi. Ekki er enn vitað hvort
tankurinn var í notkun þegar lík-
in voru sett þar niður. Á síðasta
ári lauk uppgreftri á svæðinu en
hann hófst eftir að sérstök rann-
sóknarnefnd var skipuð til að
rannsaka málið ofan í kjölinn.
Við uppgröftinn fannst rotþró en
engar beinagrindur voru í henni.
Um 20 steinsteypt neðanjarðar-
rými fundust og í þeim mikið af
beinagrindum.
Breska dagblaðið The Guardi-
an hefur eftir Corless að hún telji
að flest börnin hafi verið grafin á
svæði þar sem nú er búið að út-
búa stórt leiksvæði í tengslum við
íbúðarhverfi sem var byggt eftir
að barnaheimilið var rifið. Börn-
in hafa líklegast fengið útför að
kristnum sið. Hugsanlegt er talið
að svæðið hafi ekki verið merkt
sem kirkjugarður eða krossar sett-
ir á leiðin til að koma í veg fyrir að
fólk sem kom til að ættleiða börn
sæi ekki sæg af krossum. Rann-
sóknir benda til að börnin hafi
dáið frá 35. viku meðgöngu til
þriggja ára aldurs. Flestar bein-
grindanna eru frá sjötta áratugn-
um.
Bon Secure reglan, sem rak
barnaheimilið í Tuam, hefur
ekki verið sérlega samvinnuþýð
við rannsókn málsins en hefur
margoft neitað að vita nokkuð um
fjöldagröf.
Í samtali við The Guardian árið
2015 sagði Corless að reglan hafi
talið sig hafna yfir lög á sínum tíma
og telji enn. n
n 794 barnslík hurfu sporlaust frá kaþólsku barnaheimili á Írlandi
HNEYKSLIÐ UM
HORFNU BÖRNIN
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Catherine Corless, sagnfræðingur í Tuam. MYND/PA
Frannie Hopkins á staðnum þar sem hann
fann beinagrindurnar ásamt vini sínum
Barry Sweeney. MYND/LE MONDE
Tuam í dag. MYND/DAILY BEAST