Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 8
8 22. júní 2018FRÉTTIR Þ ann 9. júní síðastliðinn fannst Kristján Steinþórs- son, 26 ára, látinn í her- berginu sínu sem hann hafði á leigu í Hafnarfirði. Krist- ján hafði glímt við þunglyndi og önnur andleg vandamál um langt skeið og hafði sokkið í mikla fíkni- efnaneyslu. Á sínum yngri árum var hann afburðanemandi, sá besti í skólanum, og hafði allt til brunns að bera til að eiga gæfuríkt og gott líf en kerfið brást honum á öllum stigum. Þegar hann grát- bað um aðstoð á sinni myrkustu stund mættu honum sinnuleysi og hroðvirknisleg vinnubrögð. Afleiðingin er sár, bæði fyrir fjöl- skyldu hans og vini og samfélag- ið allt. Mistök og skeytingarleysi í móttöku geðdeildar „Kristján heiti ég og er fíkill. Ég mætti niður á geðdeild Landspít- alans fimmtudaginn 3. maí í slæmu ástandi vegna vímu. Þá var mér tjáð að það væru engin laus pláss á deild 33a, þar sem ég sótti um að komast inn, en hringt yrði á mánudaginn 7. maí og mér boðin innlögn.“ Þetta eru orð Kristjáns Stein- þórssonar, 26 ára, þegar hann var mjög langt niðri þann 15. maí síð- astliðinn og sendi DV bréf. Krist- ján hafði glímt við þunglyndi, kvíða og félagsfælni um langt skeið og sautján ára fór hann að leita í fíkniefni til að deyfa sárs- aukann. Í kringum jólin árið 2017 var hann farinn að leita í harðari efni og sökk hratt niður í dýpi þunglyndis og fíkniefnaneyslu. „Við biðum og biðum á mánu- deginum og ekkert kom símtalið, þannig að við ákváðum að fara aft- ur niður á bráðamóttöku. Þar var ekki tekið vel á móti okkur, en ekki illa heldur þannig séð, og okkur tjáð að sú sem tók á móti okkur á fimmtudeginum hefði sent beiðn- ina á vitlausan stað og ég var ekki kominn inn í kerfið. Í millitíðinni höfðum við sam- band við bæði Vog og Hlaðgerðar- kot og ég fékk pláss á Hlaðgerðar- koti. Samningur er í gildi á milli Hlaðgerðarkots og geðdeildarinn- ar um að þeir sem eru með stað- fest pláss þar gangi fyrir á biðlist- anum á deild 33a. Þá fórum við aftur á bráðamót- töku geðsviðs á miðvikudaginn og hjúkrunarfræðingurinn þar hafði aldrei heyrt um þann samning. Ég talaði við yfirlækni og hann staðfesti að ég ætti að ganga fyr- ir. Í dag var hringt og ekkert laust pláss fyrir mig og ég var ekki einu sinni kominn á biðlista til að kom- ast á deild 33a. Ég hótaði þá að hoppa fram af svölunum og fékk aðeins svarið: „Já, það er þá bara þitt mál.“ Í hvert skipti sem ég þarf að mæta á bráðamóttökuna kostar það mig 6.400 krónur, og fyrir fík- ilinn mig sem er með skuldir upp fyrir haus er það enginn smá pen- ingur.“ Fannst látinn eftir að hann komst ekki inn á Teig Dagbjört Þráinsdóttir, móðir Kristjáns, og systir hennar Andr- ea sögðu blaðamönnum DV frá ævi Kristjáns og hvernig kerfið brást honum. Þær kenna engum einum um og eru ekki að leita að sökudólgi. En samkvæmt þeim er kerfið í rúst og eitthvað verður að gerast því annars verða fleiri að- standendur í sömu sporum og þær. Dagbjört segir: „Það voru gerð endalaus mis- tök á geðdeildinni. Kristján átti að fara á biðlista en hann var búinn að mæta þrisvar sinnum þegar það kom í ljós að það hafði aldrei verið gert og hann var alltaf send- ur heim eftir það. Þennan dag áttu þeir að hafa samband við hann en þeir hringdu ekki þannig að hann hringdi sjálfur. Þá fékk hann þær fréttir að hann þyrfti að bíða í ein- hverja daga til viðbótar.“ Andrea bætir við: „Þá var hann búinn að gefast upp og missa alla von. Hann vildi komast inn núna og sagði konunni sem hann talaði við að hann gæti ekki beðið lengur.“ Kristján komst loksins inn á geðdeild Landspítalans og var þar í eina viku. Eftir þá dvöl átti hann að komast í fíknimeðferð á Teig og var bjartsýnn á að komast þar inn. Taka átti einn hóp inn á Teig áður en sumarfríin hefðust og með- ferðarheimilinu yrði lokað í heilan mánuð. En þegar honum var tjáð að hann hann kæmist ekki inn fyrr en í haust var það slíkur skellur að hann byrjaði aftur í harðri neyslu. Andrea segir: „Við vorum alveg vissar um að hann vildi hætta í neyslu því að LÉST EFTIR LANGA BARÁTTU VIÐ ÞUNGLYNDI OG KVÍÐA n Kerfið brást afburðanemandanum Kristjáni n Var ári á undan í skóla vegna námshæfileika sinna Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Ég sagði við hann að nú gæti sú staða komið upp að hann yrði ekkert endi- lega hæstur í bekknum en hann gerði sér lítið fyrir og varð samt langhæstur þó hann hefði sleppt heilu ári. Ég hótaði þá að hoppa fram af svölunum og fékk aðeins svarið: „Já, það er þá bara þitt mál.“ Dagbjört og Kristján.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.