Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 58
58 FÓLK 22. júní 2018 H M í knattspyrnu er í algleymi og Ísland nánast nötrar af spennu. Framundan er ótrúlega mikilvægur leikur Íslands gegn Nígeríu og síðan enn mikilvægari leikur gegn Króatíu. Jafnvel þó að Íslandi gangi allt í mót gegn Afríkuþjóðinni mun sigur gegn ógnarsterkum Króötum lík- lega koma íslenska liðinu í 16 liða úrslitin. En DV velti fyrir sér hvort stjörnumerki landsliðsmanna spili inn í árangur liðsins. Er kostur að hafa kappsfullan og baráttuglað- an hrút í marki? Er æskilegt að hafa tvíbura í liðinu, þeir vita sjaldnast hvort þeir eru að koma eða fara. Hentar ljóninu, konungi frum- skógarins, yfirleitt vel að vera í hóp- íþrótt? Þetta eru ágengar spurn- ingar sem erfitt er að ráða í. Þegar 23ja manna leikhópur Ís- lands er skoðaður í heild má sjá að stjörnumerkin Naut og Tvíburar eru með flesta leikmenn, fjóra og fjóra. Steingeit, Hrútur, Krabbi, Vog og Meyja eiga sér bara einn fulltrúa hvert merki og sérstaka athygli vek- ur að enginn Bogmaður er í liðinu, merkið sem sér um veiðarnar, í þessu tilviki að sækja (veiða) mörk. Þegar líklegt 11 manna byrjun- arlið Íslands er skoðað má sjá að það er vel skipað og með gott jafn- vægi. Nautið Hannes er í marki, en helsta einkenni nautsins er ein- beiting og hæfileikinn til að útiloka það sem skiptir ekki máli. Nautið er þrjóskt og fast fyrir og ætti Hannes því ekki að eiga í neinum vandræð- um með að sinna sínu hlutverki, fylgjast með boltanum og hindra að andstæðingurinn nái að koma honum í markið. Gulldrengurinn Messi er enn í sárum eftir viðureign sína við íslenska bolann. Varnarmennirnir fjórir bæta hver annan upp, en tilheyra eigi að síður fjórum ólíkum merkjum. Sporðdrekinn Birkir Már er fastur fyrir og kvikur. Hann er einbeittur og alvörugefinn. Tvíburinn Ragn- ar er fjölhæfur og finnst frábært að vera á mikilli hreyfingu. Tvíburinn veit stundum ekki hvort hann er að koma eða fara, sem telst líklega ókostur í hópboltaíþrótt, en þegar hann er búinn að ákveða hvorn kostinn hann ætlar að velja, klár- ar hann verkið án tafa, helst í gær! Í vafa má líka alltaf gefa boltann á næsta leikmann. Vogin er, eins og nafnið gefur til kynna, dálítið í því að vega og meta alla hluti áður en ákvörðun er tekin. Það hljómar sem tímafrek iðja en sem betur fer tekur Vogin Kári Árnason skjótar og undantekningalaust réttar ákvarð- anir! Vatnsberinn Hörður er fastur fyrir og félagslyndur, en vill þó vera óbundinn hópnum. Hörður hef- ur stundum átt það til að fara út úr stöðu sinni en með reynsluboltana Ragnar og Kára sér við hlið og garg- andi nautið í markinu þá er sá veik- leiki að engu orðinn. Sama gildir um miðjumennina: fjórir leikmenn, fjögur ólík merki. Í stað sSporðdrekans Jóhanns Bergs mun fiskurinn Rúrik Gíslason lík- lega taka stöðu hans. Eins og æst- ir Instagram fylgjendur hafa kom- ist að þá er Rúrik fegursti fiskurinn í sjónum en þeir eiga eftir að komast að því á næstunni að hann er frá- bær fótboltamaður að auki. Það er skrifað í stjörnurnar. Tvíburanum Birki Bjarnasyni hentar vel að hafa nóg að gera og vinna hratt. Hann er orkumikill og bjartsýnn og hef- ur tröllatrú á sjálfum sér og liðinu. Nautin eru þekkt fyrir stöðugleika, ákveðni og áreiðanleika, þess vegna henta þau vel í hópi. Nautið Aron Einar smellpassar í hlutverk fyrir- liðans og miðjumannsins með eig- inleikum sínum. Þá er oft talað um hryggjarsúlur liða og það verður ekki traustara en að hafa tvö naut, Aron Einar og Hannes þar. Meyj- ur eru þekktar fyrir fullkomnunar- áráttu sína og Gylfi Þór er þar engin undantekning, óaðfinnanlegur innan sem utan vallar. Hann hefur lagt mikið á sig til þess að ná fram því besta úr hæfileikum sínum. Sóknarmennirnir tveir sem gætu byrjað gegn Nígeríu, Alfreð og Jón Daði eru eins og dagur og nótt, vatnsberinn Alfreð sem er fastur fyrir og tvíburinn Jón Daði, sem fer vel að vera með mörg verkefni í gangi í einu. Það er kannski ekki að undra þó að Jón Daði sé bæði frábær í vörn og sókn. Bæði merk- in eru þó lítið gefin fyrir endur- tekningu, Tvíburinn bjartsýnn og orkumikill og Vatnsberinn upp- finningasamur og gjarn á að finna nýjar leiðir. Saman gætu þeir, með stuðningi hinna, uppskorið sögu- legan árangur Íslands á HM. n Veltur gengi Íslands á stjörnunum? n Naut og tvíburar eru fyrirferðarmestir í landsliðshópnum n Meyjan Gylfi leitar að fullkomnun HRÚTUR Ólafur Ingi Skúlason, 01.04.83 LJÓN Sverrir Ingi Ingason, 05.08.93 Hólmar Örn Eyjólfsson, 06.08.90 BOGMAÐUR Enginn NAUT Hannes Þór Halldórsson, 27.04.84 Ari Freyr Skúlason, 14.05.87 Aron Einar Gunnarsson, 22.04.89 Arnór Ingvi Traustason, 30.04.93 MEYJA Gylfi Þór Sigurðsson, 08.09.89 STEINGEIT Frederik Schram, 19.01.95 TVÍBURI Ragnar Sigurðsson, 19.06.86 Birkir Bjarnason, 27.05.88 Jón Daði Böðvarsson, 25.05.92 Albert Guðmundsson, 15.06.97 VOG Kári Árnason, 13.10.82 VATNSBERI Rúnar Alex Rúnarsson, 18.02.95 Hörður Björgvin Magnússon, 11.02.93 Alfreð Finnbogason, 01.02.89 KRABBI Emil Hallfreðsson, 29.06.84 SPORÐDREKI Birkir Már Sævarsson, 11.11.84 Jóhann Berg Guðmundsson, 27.10.90 FISKUR Samúel Kári Friðjónsson, 22.02.96 Rúrik Gíslason, 25.02.88 Björn Bergmann Sigurðarson, 26.02.91 Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.