Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Qupperneq 58
58 FÓLK 22. júní 2018
H
M í knattspyrnu er í algleymi
og Ísland nánast nötrar
af spennu. Framundan er
ótrúlega mikilvægur leikur
Íslands gegn Nígeríu og síðan enn
mikilvægari leikur gegn Króatíu.
Jafnvel þó að Íslandi gangi allt í mót
gegn Afríkuþjóðinni mun sigur
gegn ógnarsterkum Króötum lík-
lega koma íslenska liðinu í 16 liða
úrslitin. En DV velti fyrir sér hvort
stjörnumerki landsliðsmanna spili
inn í árangur liðsins. Er kostur að
hafa kappsfullan og baráttuglað-
an hrút í marki? Er æskilegt að hafa
tvíbura í liðinu, þeir vita sjaldnast
hvort þeir eru að koma eða fara.
Hentar ljóninu, konungi frum-
skógarins, yfirleitt vel að vera í hóp-
íþrótt? Þetta eru ágengar spurn-
ingar sem erfitt er að ráða í.
Þegar 23ja manna leikhópur Ís-
lands er skoðaður í heild má sjá að
stjörnumerkin Naut og Tvíburar
eru með flesta leikmenn, fjóra og
fjóra. Steingeit, Hrútur, Krabbi, Vog
og Meyja eiga sér bara einn fulltrúa
hvert merki og sérstaka athygli vek-
ur að enginn Bogmaður er í liðinu,
merkið sem sér um veiðarnar, í
þessu tilviki að sækja (veiða) mörk.
Þegar líklegt 11 manna byrjun-
arlið Íslands er skoðað má sjá að
það er vel skipað og með gott jafn-
vægi. Nautið Hannes er í marki, en
helsta einkenni nautsins er ein-
beiting og hæfileikinn til að útiloka
það sem skiptir ekki máli. Nautið er
þrjóskt og fast fyrir og ætti Hannes
því ekki að eiga í neinum vandræð-
um með að sinna sínu hlutverki,
fylgjast með boltanum og hindra
að andstæðingurinn nái að koma
honum í markið. Gulldrengurinn
Messi er enn í sárum eftir viðureign
sína við íslenska bolann.
Varnarmennirnir fjórir bæta
hver annan upp, en tilheyra eigi
að síður fjórum ólíkum merkjum.
Sporðdrekinn Birkir Már er fastur
fyrir og kvikur. Hann er einbeittur
og alvörugefinn. Tvíburinn Ragn-
ar er fjölhæfur og finnst frábært að
vera á mikilli hreyfingu. Tvíburinn
veit stundum ekki hvort hann er
að koma eða fara, sem telst líklega
ókostur í hópboltaíþrótt, en þegar
hann er búinn að ákveða hvorn
kostinn hann ætlar að velja, klár-
ar hann verkið án tafa, helst í gær!
Í vafa má líka alltaf gefa boltann á
næsta leikmann. Vogin er, eins og
nafnið gefur til kynna, dálítið í því
að vega og meta alla hluti áður en
ákvörðun er tekin. Það hljómar
sem tímafrek iðja en sem betur fer
tekur Vogin Kári Árnason skjótar og
undantekningalaust réttar ákvarð-
anir! Vatnsberinn Hörður er fastur
fyrir og félagslyndur, en vill þó vera
óbundinn hópnum. Hörður hef-
ur stundum átt það til að fara út úr
stöðu sinni en með reynsluboltana
Ragnar og Kára sér við hlið og garg-
andi nautið í markinu þá er sá veik-
leiki að engu orðinn.
Sama gildir um miðjumennina:
fjórir leikmenn, fjögur ólík merki. Í
stað sSporðdrekans Jóhanns Bergs
mun fiskurinn Rúrik Gíslason lík-
lega taka stöðu hans. Eins og æst-
ir Instagram fylgjendur hafa kom-
ist að þá er Rúrik fegursti fiskurinn í
sjónum en þeir eiga eftir að komast
að því á næstunni að hann er frá-
bær fótboltamaður að auki. Það er
skrifað í stjörnurnar. Tvíburanum
Birki Bjarnasyni hentar vel að hafa
nóg að gera og vinna hratt. Hann
er orkumikill og bjartsýnn og hef-
ur tröllatrú á sjálfum sér og liðinu.
Nautin eru þekkt fyrir stöðugleika,
ákveðni og áreiðanleika, þess vegna
henta þau vel í hópi. Nautið Aron
Einar smellpassar í hlutverk fyrir-
liðans og miðjumannsins með eig-
inleikum sínum. Þá er oft talað um
hryggjarsúlur liða og það verður
ekki traustara en að hafa tvö naut,
Aron Einar og Hannes þar. Meyj-
ur eru þekktar fyrir fullkomnunar-
áráttu sína og Gylfi Þór er þar engin
undantekning, óaðfinnanlegur
innan sem utan vallar. Hann hefur
lagt mikið á sig til þess að ná fram
því besta úr hæfileikum sínum.
Sóknarmennirnir tveir sem
gætu byrjað gegn Nígeríu, Alfreð og
Jón Daði eru eins og dagur og nótt,
vatnsberinn Alfreð sem er fastur
fyrir og tvíburinn Jón Daði, sem
fer vel að vera með mörg verkefni
í gangi í einu. Það er kannski ekki
að undra þó að Jón Daði sé bæði
frábær í vörn og sókn. Bæði merk-
in eru þó lítið gefin fyrir endur-
tekningu, Tvíburinn bjartsýnn og
orkumikill og Vatnsberinn upp-
finningasamur og gjarn á að finna
nýjar leiðir. Saman gætu þeir, með
stuðningi hinna, uppskorið sögu-
legan árangur Íslands á HM. n
Veltur gengi Íslands á stjörnunum?
n Naut og tvíburar eru fyrirferðarmestir í landsliðshópnum n Meyjan Gylfi leitar að fullkomnun
HRÚTUR
Ólafur Ingi Skúlason, 01.04.83
LJÓN
Sverrir Ingi Ingason, 05.08.93
Hólmar Örn Eyjólfsson, 06.08.90
BOGMAÐUR
Enginn
NAUT
Hannes Þór Halldórsson, 27.04.84
Ari Freyr Skúlason, 14.05.87
Aron Einar Gunnarsson, 22.04.89
Arnór Ingvi Traustason, 30.04.93
MEYJA
Gylfi Þór Sigurðsson, 08.09.89
STEINGEIT
Frederik Schram, 19.01.95
TVÍBURI
Ragnar Sigurðsson, 19.06.86
Birkir Bjarnason, 27.05.88
Jón Daði Böðvarsson, 25.05.92
Albert Guðmundsson, 15.06.97
VOG
Kári Árnason, 13.10.82
VATNSBERI
Rúnar Alex Rúnarsson, 18.02.95
Hörður Björgvin Magnússon, 11.02.93
Alfreð Finnbogason, 01.02.89
KRABBI
Emil Hallfreðsson, 29.06.84
SPORÐDREKI
Birkir Már Sævarsson, 11.11.84
Jóhann Berg Guðmundsson, 27.10.90
FISKUR
Samúel Kári Friðjónsson, 22.02.96
Rúrik Gíslason, 25.02.88
Björn Bergmann Sigurðarson, 26.02.91
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is