Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Síða 60
60 22. júní 2018BLEIKT - KYNLÍF
„Ég snerti hana og
hún finnur að mig
langar og svo koll af kolli.
Frumkvæðið hefur alltaf
verið mitt, en núna í seinni
tíð, sérstaklega síð-
ustu tvö árin, hef-
ur hún nánast alltaf
sýnt mér að hún vilji
ekki snertingu, sem
þýðir þá að hana
langar ekki.
Hæ Ragga
Ég er giftur karlmaður í vanda. Eða kannski væri réttara að
segja að við hjónin eigum í vanda. Við höfum ekki stund-
að kynlíf nema kannski tvisvar á síðustu tólf mánuðum,
og það er of lítið að mínu mati. Ég er algjörlega kominn í
þrot en hún virðist ekki þurfa meira.
Bakgrunnur okkar: Við kynntumst fyrir 22 árum og
byrjuðum strax saman. Fljótlega kom fyrsta barnið
undir og við giftum okkur fjórum árum eftir fyrstu
kynni. Börnin eru þrjú núna, öll búa enn heima.
Í byrjun var kynlífið fínt, og ég held að við höf-
um bæði fengið það sem við vildum. Við vor-
um samt aldrei neitt villt og líklega mundir þú
telja kynlífið okkar ósköp venjulegt. Hvorki þá
né núna höfum við rætt um kynlíf okkar – en
með árunum höfum við lært að skilja hvort
annað. Ég snerti hana og hún finnur að mig
langar og svo koll af kolli. Frumkvæðið hef-
ur alltaf verið mitt, en núna í seinni tíð, sér-
staklega síðustu tvö árin, hefur hún nánast
alltaf sýnt mér að hún vilji ekki snertingu,
sem þýðir þá að hana langar ekki.
Ég stunda sjálfsfróun í einrúmi, en mér
líður ekkert vel með það, og efast um að hún
geri slíkt hið sama. Mig langar ofboðslega
mikið í kynlíf og finn að ég er farinn að líta
öðruvísi á konur í kringum mig. Konur sem
vinna með mér kveikja allt í einu í mér og ég
stend mig að því að dagdreyma um kynlíf með
þeim. Samviskubitið er gríðarlegt, því ég hef
aldrei haldið framhjá konunni minni og langar
ekki að gera það.
Kæra Ragga, getur þú gefið mér einhver
ráð um hvernig hægt er að laga ástandið? Á ég
kannski bara að sætta mig við að kynlífi mínu sé
lokið? Ég er samt alls ekki sáttur við það enda
rétt kominn yfir fertugt og finn að orkan er
ennþá mikil. Hvað get ég gert?
Bestu kveðjur,
Óli
Sæll Óli
Alveg er ég viss um að margir lesendur þekkja sig í frásögn þinni.
Ástandið sem þú lýsir læðist aftan að fólki, og sambönd eins og
ykkar, þar sem kynlífið er aldrei rætt, eru kannski í mestri hættu.
Allt er í sóma og blóma í upphafi á meðan nýjabrumið blæs lífi í
kynorkuna, en þegar frá líður hellist hinn banvæni hversdagsleiki
yfir fólk. Við verðum eins og froskurinn í pottinum sem hefur ekki
rænu á að bjarga lífi sínu ef vatnið er hitað smám saman í stað þess
að vera sjóðheitt frá byrjun. Hann slakar á í hlýjunni en fyrr en var-
ir er vatnið komið að suðumarki og froskurinn steindauður. En
ekki örvænta elsku Óli minn. Ef það ríkir ennþá hlýja, virðing og
ást á milli ykkar má vel vera að hægt sé að endurlífga það sem eitt
sinn ríkti ykkar á milli.
Mér finnst skelfilegt að þú sért að íhuga að leggja kynlífsárar í
bát á þínum aldri. Einhvern veginn þarf að leysa málið því þú ert
ekki fullnægður, og greinilega ekki að lifa lífinu eins og þú helst
vildir.
Að því sögðu vil ég líka nefna að órar þínir eru afskaplega eðli-
legir og sjálfsfróunin sjálfsögð og nauðsynleg. Reyndar eru órar
eðlilegir hjá öllum, líka fólki í einkvænissamböndum – munurinn
er sá að þar hefur verið gefið loforð um að órarnir verði ekki færð-
ir yfir í aðgerðir. Sjálfsfróun er líka holl og ætti að vera hluti kynlífs
okkar á hvaða aldri sem er, óháð sambandsstöðu.
En til þess að hægt sé að vinna í málinu
þarftu að nálgast konuna þína og opna
umræðuna. Gættu þess að gera það
ekki í ásökunartóni, og ekki gera það
í rúminu. Talaðu um sjálfan þig og
þínar tilfinningar í stað þess að
reyna að lesa hennar. Hún þarf
sjálf að tjá sína hlið. Ef grundvöll-
ur reynist til að vinna í málun-
um og reyna koma kynferðislegu
straumunum í gang á ný gæti
verið sniðugt að ræða við ráð-
gjafa.
Bestu kveðjur,
Ragga
Ragga Eiríks svarar lesendum:
„Á ég kannski að sætta mig
við að kynlífi mínu sé lokið?“
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjafi.
raggaeiriks.com
raggaeiriks@gmail.com