Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Page 30
 22. júní 2018KYNNINGARBLAÐNorðausturland Gistihúsið Skúlagarður er stað-sett í Kelduhverfi, við þjóðveg-inn, um 45 km frá Húsavík. Í næsta nágrenni eru nokkrar af helstu náttúruperlum landsins, Dettifoss, Vatnajökulsþjóðgarður, Ásbyrgi og Hljóðaklettar – náttúruperlur sem eru þessu virði að verja góðum tíma í að upplifa og njóta. Vinsælar gönguleiðir á svæðinu geta tekið marga daga að fara þó að sumir kjósi styttri göngu. „Það eru skipulagðar gönguferðir á vegum þjóðgarðsins en svo er líka hægt að notast við kort hér og ganga á eigin vegum,“ segir Helga Sturlu- dóttir í Skúlagarði en hún nýtur þess að starfa í þessu ægifagra umhverfi og eiga samskipti við ferðamenn frá öllum heimshornum. Skúlagarður er afar heppilegur gististaður fyrir þá sem vilja taka sér tíma til að njóta þeirrar stórkostlegu og fjölskrúðugu náttúrufegurðar sem þetta svæði býður upp á. Gistihús- ið er opið frá 1. maí til 31. október. Sautján tveggja manna herbergi eru í gistihúsinu og tekur það því 34 gesti í einu. Einnig er hægt að bæta við aukarúmi fyrir börn í sumum her- bergjunum. „Við lokum yfir veturinn vegna þess að enn sem komið er kallar mark- aðurinn bara eftir þessum tíma. Við erum öll að bíða eftir nýja Dettifoss- veginum, þá verður þetta einn hringur þar sem hægt verður að keyra frá Mývatnssveit hingað niður í Keldu- hverfi framhjá Dettifossi og í gegnum þjóðgarðinn og svo um Tjörnes til Húsavíkur,“ segir Helga. Meirihluti gesta í Skúlagarði eru erlendir ferðamenn sem gjarnan bóka í hópum á bókunarsíðum á netinu. Skúlagarður er þó engu síður heppilegur gistikostur fyrir Íslendinga sem vilja njóta þess besta sem íslensk náttúra býður upp á. Skúlagarður býður einnig upp á góða fundaraðstöðu með skjávar- pa sem margskonar hópar nýta sér. Ennfremur er góð veisluaðstaða á staðnum sem mörg fyrirtæki nýta sér fyrir starfsmannaskemmtanir, hvataferðir og árshátíðir. Frábær matur úr héraði Veitingastaðurinn í Skúlagarði er öllum opinn og kjörið fyrir þá sem eiga leið um svæðið að stoppa þar í mat eða kaffi og eiga góða stund. Morgunverður fylgir gistingu og í há- deginu eru það mest ferðahópar sem fylla matsalinn. Síðdegis er gott að stoppa í kaffibolla og vöfflu eða köku- sneið. Eldhúsið er síðan opnað aftur kl. 18 og er opið til 21. Lögð er áhersla á ferskt hráefni úr héraðinu, til dæmis lambakjöt, bleikju og grænmeti. Hægt er að bóka á booking.com og gistihúsið Skúlagarður er einnig á síðunni Hey Iceland og er með Face- book síðu undir nafninu Gistihúsið Skúlagarður. Einnig er hægt að bóka í gegnum netfangið skulagardur@ hotmail.com. SKÚLAGARÐUR: Gisting og veitingar í nálægð við ægifagrar náttúruperlur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.