Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Qupperneq 28
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018KYNNINGARBLAÐ Það verður sífellt vinsælla að gefa upplifun og vellíðan í jóla-gjöf og þar koma gjafabréfin sterk inn. Gjafabréf í Abaco Heilsu- lind á Akureyri er jólagjöf sem gleður marga. Vinsælust eru gjafabréf í nudd, fótsnyrtingu, andlitsmeðferðir og baðstofudekur. Dekurdagar eru líka vinsælir en þar er búið að setja saman vinsælustu meðferðirnar á staðnum og er þá gefinn afsláttur eftir því hvað keypt er fyrir háa upp- hæð, 5–15% afsláttur. Einnig er vin- sælt að kaupa fyrir ákveðna upphæð og viðkomandi getur ráðið hvað hann gerir. Þess má geta að hægt er að nota gjafabréfin í annað en það sem á þeim stendur ef eigandi bréfsins óskar þess. Gjafabréfin eru til sölu á staðnum, að Hrísalundi 1, en einnig er hægt að hringja í síma 462-3200 eða senda fyrirspurn á netfangið abaco@abaco. is. Húðslípun er afar öflug og örugg húðmeðferð sem Abaco Heilsulind á Akureyri býður upp á. Meðferðin er framkvæmd með Silk Peel húð- slípunartæki. Þetta er heildræn húð- meðferð þar sem ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun örsmárra kristalla og demanta. Árangurinn er sléttari, mýkri og þéttari húð, auk þess sem áferð húðarinnar verður fallegri. Húðslípun er meðferð sem hentar fólki á öllum aldri og er örugg fyrir allar húðgerðir. Strax eftir fyrstu meðferð fær húðin ferskan blæ, verð- ur þéttari, mýkri, hreinni og unglegri. Þessi einstaka húðmeðferð lætur húðina líta betur út og endurheimta ljóma sinn. Dauðar húðfrumur eru fjarlægðar, blóðflæði örvað og vöxtur nýrra fruma og bandvefur örvast. Meðferðin bætir áferð og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Eldri húð sem farin er að þynnast styrkist og þéttist. Meðferðin veitir örugga hreinsun á yfirborði húðarinnar, dregur úr húð- stíflum og opnar húðholur dragast saman. Sjáanlegur munur á húðinni er eftir hvert skipti og verða stöðugar framfarir á ástandi hennar. Húðslípun vinnur meðal annars á eftirtöldum vandamálum: Ótímabær öldrun Fínar línur og hrukkur Ör eftir skurði og bólur Hörundslýti og húðþykkildi Unglingabólur og óhrein húð Exemhúð Húðslit Mælt er með að farið sé í þrjár meðferðir með u.þ.b. tveggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Fjöldi meðferða fer þó alltaf eftir því hvaða vandamáli er verið að vinna á. Eitt skipti frískar verulega upp á húðina og gefur ljóma og gott útlit. Fyrir óhreina og bólótta húð er mælt með að lágmarki 6 meðferðum með tveggja til þriggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sama á við um meðferð við húðsliti. Eftirmeðferð Bera skal rakakrem á meðferðar- svæði og nota rakamaska fyrstu dagana eftir meðferð. Forðast ber sól og ljósabekki í a.m.k. þrjá sólarhringa eftir meðferð. Forðast jafnframt sund og heita potta í a.m.k. þrjá sólar- hringa. Sleppa skal líkamsrækt sama dag og meðferð á sér stað. Nota á SPF 30 sólarvörn eða sterkari í viku eftir meðferð. Um Abaco Heilsulind Abaco Heilsulind er til húsa að Hrísa- lundi 1 á Akureyri. Þetta er ein best búna heilsulind landsins, einstakur staður til að slaka á, endurnærast og njóta lífsins. Abaco býður viðskipta- vinum sínum upp á herðanudd og kaldsteinanudd ofan í heitum potti. Steinanuddið er einstakt og mjög sérstök upplifun: Herðar, háls, bringa og andlit eru nudduð með köldum steinum, sem vekur mikla vellíðan. Þetta hentar fyrir pör og hópa. Einnig er boðið upp á andlitsmaska í pottin- um. Viðskiptavinir Abaco eru hvattir til að nýta sér aðgang að baðstofunni þegar komið er í nudd eða snyrtimeð- ferð, en aðgangur er innifalinn í öllum meðferðum. Vínveitingaleyfi er á staðnum og gestir geta hresst sig á víni, bjór eða gosdrykkjum. Í Abaco Heilsulind er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir, eins og litun og plokkun, hand- og fót- snyrtingu, vaxmeðferðir, Guinot andlitsmeðferðir og demantshúðslíp- un. Abaco Heilsulind er eina stofan á Akureyri sem býður upp á St.Tropez brúnkumeðferðir. Auk þess eru í boði lasermeðferðir til háreyðingar og til að vinna á háræðasliti. Enn fremur er til staðar frystipenni sem virkar á húðflipa og vörtur. Dömulegt tilboð: Laserlyfting Abaco býður upp á laser-lyftingu sem er náttúruleg andlitslyfting án skurðaðgerðar. Meðferðin veldur því að yfirborð húðarinnar verður stinnara, þéttara og sléttara. Blóð- streymi í húðinni eykst, frumuskipti aukast og verða hraðari sem gefur fallegri og mýkri húð. Sjá nánar upplýsingar á meðfylgjandi mynd. Boðið er upp á flestar tegundir af nuddi, eins og slökunarnudd, heilsunudd, íþróttanudd, ilmolíu- nudd og heit- og kaldsteinanudd. Einnig er í boði meðgöngunudd en á stofunni er sérstakur meðgöngu- bekkur. Paranudd: Tilvalin jólagjöf fyrir hjón eða pör Abaco býður núna upp á nudd fyrir hjón og pör. Tekið er á móti pörum í nudd í sama herbergi. Þetta er til- valin hugmynd að gjafabréfi handa hjónum eða pari sem þér þykir vænt um. Í Abaco starfa hjúkrunarfræðing- ur, snyrtifræðingar og nuddarar. Þá má geta þess að á staðnum er til sölu úrval húðsnyrtivara, með- al annars frá Guinot, Sothys, Al- essandro, St. Tropez og margt fleira. Símanúmer hjá Abaco Heilsu- lind er 462-3200 og netfangið er abaco@abaco.is. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni abaco.is. Gjafabréf í vellíðan og dekur er jólagjöf sem gleður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.