Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 66
66 FÓLK 12. október 2018
Jóhann keyrði aftan á bíl og
tognaði á hálsi.
Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur.
Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar.
Þau voru einu sinni pör
Fjölmiðla- og kabarettkonan Margrét Erla Maack var um
tíma í sambandi við fjölmiðlamanninn Kristin Hrafnsson.
Talsverður aldursmunur er á parinu, rúmlega 20 ár, en á móti
kemur að þetta baráttufólk á margt sameiginlegt. Margrét
hefur gert sig gildandi í metoo-umræðunni undanfarin
misseri og greint frá áreiti sem hún hefur orðið fyrir sem
skemmtikraftur. Á dögunum var síðan greint frá því að
Kristinn væri tekinn við sem ritstjóri Wikileaks.
Um tíma voru grínistinn Sóli Hólm og
fegurðardrottningin Unnur Birna par.
Barátta Sóla og sigur hans á krabbameini
vöktu mikla athygli fyrir nokkru en síðan
þá hefur grínistinn gert það gott
sem sjónvarps- og útvarpsmaður
auk þess sem uppistandssýn-
ingar hans hafa slegið í gegn.
Unnur Birna hefur haldið sig frá
sviðsljósinu undanfarin ár en
gerir það gott í réttarsölum
landsins sem útsjónarsamur
lögfræðingur.
Katrín og Davíð voru sambandi í um sjö ár ár og bjuggu
saman um tíma. Ástin kviknaði í sjónvarpsþættin-
um Gettu betur en þar var Davíð Þór spyrill en
Katrín stigavörður. Davíð Þór hefur sjálfur látið
hafa eftir sér að Katrín hafi gefist upp á honum
vegna þeirrar staðreyndar að hann var fár-
sjúkur alkóhólisti á þessum árum. Síðan þá
hafa bæði tvö blómstrað á nýjum vettvangi.
Katrín sem forsætisráðherra þjóðarinnar
en Davíð Þór sem vinsæll prestur í Vestur-
bænum.
Engilbert og Ragga voru par um tíma á síðari hluta áttunda áratugarins. Engilbert
var þá þjóðþekktur tónlistarmaður, sérstaklega fyrir sitt framlagt til hljómsveitanna
Hljóma, Óðmanna, Tilveru, Trúbrots og Ðe lónlí blú bojs. Á þessum árum var Ragga að
stíga sín fyrstu skref sem söngkona, bæði á eigin vegum en einnig með hljómsveitinni
Lummurnar. Óþarfi er síðan að rekja feril hennar enda er Ragga ein dáðasta tónlistar-
kona Íslands. Hún og Engilbert eignuðust dóttur árið 1977.
Ásgeir Kolbeinsson var um árabil einn heitasti piparsveinn landsins. Það þótti því ætíð
fréttnæmt þegar „dýrið var tamið“ eins og kom svo snyrtilega fram í umfjöllun Vísis í febrúar
2011. Þá hafði ungur laganemi, Sunna Elvíra Þorkelsdóttir, nælt sér í goðið. Samband þeirra
varði þó aðeins í skamma hríð. Eins og frægt varð fór umfjöllun um alvarlegt slys Sunnu
Elvíru og eftirmála þess sem eldur í sinu um íslenskt samfélag í byrjun árs.
Sólmundur Hólm og
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir
Engilbert Jensen og
Ragnhildur Gísladóttir
Margrét Erla Maack
og Kristinn Hrafnsson
Katrín Jakobsdóttir
og Davíð Þór Jónsson
Ásgeir Kolbeins
og Sunna Elvira