Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 46
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018KYNNINGARBLAÐ
BJÓRBÖÐIN Á ÁRSKÓGSSANDI:
Einstök heilsulind fyrir alla
og öðruvísi gjöf í jólapakkann
Bjórböðin á Árskógssandi voru opnuð 2017, en þau höfðu þá lengi verið draumur Agnesar
Önnu Sigurðardóttur eftir að hún
heimsótti slíkt bað í Tékklandi 2008
ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Þresti
Ólafssyni.
„Þarna var bruggsmiðja þeirra
Kaldi orðin tveggja ára og þau heim-
sóttu Tékkland ásamt bruggmeistara
sínum. Bjórbaðið var síðan ofarlega í
huga Agnesar, en aldrei gafst tími til
eða færi á að opna slíkt hér heima,“
segir Ragnheiður Ýr Guðjónsdóttir,
tengdadóttir Agnesar og Ólafs, sem
á fyrirtækið með þeim ásamt eigin-
manni sínum og syni þeirra, Sigurði
Braga Ólafssyni.
„Árið 2014 kom umræðan upp aft-
ur og þá sögðumst við vera til í þetta
með þeim og við fórum á fullt í þessa
vinnu. Bjórböðin voru síðan opnuð
2017.“
En hverjir eru kostir bjórbaðs
fyrir líkamann? „Gerið er stútfullt af
B-vítamínum og steinefnum, sem
er einstaklega gott fyrir húð, hár og
neglur. Bjórböðin eru heilsulind, húðin
verður eins og silki.“
Innifalið í baðgjaldinu er sloppur
og handklæði. Mælt er með að koma
tímanlega og fara í útipottana áður
en farið er í bjórbaðið. Sjö ker eru á
staðnum og er hvert þeirra einka-
herbergi, þannig að gestir eru alveg
í næði. Hvert ker er tveggja manna.
Hitastigið er 39–40 gráður, ef fólk vill
hafa kaldara eða heitara, þá er hægt
að óska eftir því.
„Síðan slakar þú á í 25 mínútur.
Svo er gestum fylgt upp á aðra hæð
í slökunarherbergi og þar er viðkom-
andi í 25 mínútur. Slökunarherbergið
er teppalagt og allt mjög notalegt.
Við mælum með að sleppa sturtu í
3–4 klukkustundir eftir bað, þannig að
bjórinn geri það sem hann á að gera.
Þú verður ekki klístraður eða angandi
af bjór á eftir, fólk þarf ekki að hafa
áhyggjur af því, maður er sléttur og
mjúkur á eftir.“
Bjórböðin hafa verið vel sótt bæði
af heimamönnum og ferðamönnum,
Íslendingar mæta frekar seinni part-
inn og um helgar, meðan ferðamenn
mæta frekar að degi til. „Við erum
með nokkra fastagesti, sem dæmi má
nefna hjón sem hafa komið nokkrum
sinnum til okkar, en eiginmaðurinn er
með psoriasis og honum finnst böðin
hjálpa sér. Við fáum gríðarlega mikið
af hópum til okkar og eru starfs-
mannahópar sérstaklega vinsælir.“
Baðið er fyrir alla, þungaðar konur
og börn hafa komið í böðin. Hins
vegar er 20 ára aldurstakmark,
eins og lög gera ráð fyrir, í að neyta
bjórsins. Bjórinn í bjórböðunum er
3–5 daga gamall og því ekki orðinn
áfengur og því öllum óhætt að fara
ofan í.
Bjórböðin eru einstök heilsulind, en
eftir því sem Ragnheiður veit best eru
böðin þau einu á Norðurlöndum. „Það
koma margir Danir, Norðmenn og
Þjóðverjar, og þeir síðasttöldu hafa
flestir aldrei heyrt um þetta, þrátt
fyrir að böðin séu vinsælust í Tékk-
landi.“
Gjafabréf, sápur og fleira í jólapakk-
ann
„Við erum með bjórsápur. Við notum
bjórsalt og bjórólíur ofan í böðin, sem
gefa einnig góða lykt. Við eigum líka
sjampó, hárnæringu, og fleira. Fyrir
jólin munum við bjóða upp á gjafa-
pakka. Einnig eru gjafabréf í boði,
sem sníða má eftir vali hvers og eins,
hvort sem er ákveðin upphæð eða
meðferð.“
Tilvalin fyrirtækjagjöf.
Gisting er ekki í boði á staðnum, en
í nágrenninu er fjöldi gistimöguleika
og leiðbeina eigendur Bjórbaðanna
gestum um það. Flestir bjóða þeir
upp á akstur fram og til baka.
Allar upplýsingar má fá í síma
414-2828, netfanginu bjorbod-
in@bjorbodin.is og á heimasíðunni:
bjorbodin.is.