Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 68
68 FÓLK - VIÐTAL 12. október 2018
TÖKUM AÐ OKKUR MERKINGAR
OG FATAVIÐGERÐIR
EINNIG FRAMLEIÐSLU Á MINNI OG STÆRRI VERKEFNUM
MALARHÖFÐA 2, 110 REYKJAVÍK
I
ngvar Þór Gylfason hefur vak-
ið verðskuldaða athygli fyrir
einstakar myndir sem hann
hefur málað síðastliðin tvö
ár, en hann er sjálfmenntaður í
listinni. Af þeim málverkum sem
hann hefur málað er þó eitt sem
stendur hjarta hans nær en önn-
ur, Ljósið, málverk sem hann færði
ljósmæðrum sem þakklætisvott
fyrir að koma syni hans heilbrigð-
um í heiminn.
„Það eru tvö ár síðan ég byrj-
aði að mála á striga, en ég hef
teiknað síðan ég var barn. Ég hef
alltaf verið góður að teikna og ver-
ið í alls konar list í gegnum árin,“
segir Ingvar aðspurður um þenn-
an hæfileika sem hann opinber-
aði fyrir tveimur árum, en hann
vinnur sem verkfræðingur hálfan
daginn og ver hinum helmingnum
í að mála, smíða og skapa það sem
honum finnst skemmtilegt.
„Þetta byrjaði þannig að ég,
Ragna Sólveig Þórðardóttir,
unnusta mín, systir hennar og
dóttir mín, vorum í útilegu árið
2016. Við keyptum liti og pappír
fyrir stelpurnar til að lita og í ein-
hverju gríni málaði ég vatnslita-
mynd af norn. Þá sagði unnusta
mín að ég yrði að kaupa liti og
striga og fara að mála af alvöru.
Hún ýtti mér í að opna Facebook-
-síðu og síðan þá er þetta búið að
vera eins og einhver lygasaga. Við-
tökurnar hafa verið mjög góðar og
oft eru myndirnar seldar áður en
ég er búinn að mála þær. Þetta er
ótrúlegt fyrir mig.“
Ingvar málar flestallt, og mikið
eftir pöntunum, þótt honum finn-
ist skemmtilegra að mála frjálst
og á tveimur árum er hann búinn
að mála og selja eða gefa um 200
myndir. „Ég mála dansara, ball-
erínur, hesta, fugla, Star Wars-
myndir. Ég hef prófað landslag,
maður prófar flest allt.“
Ljósmæður veittu Ingvari Þór
og Rögnu einstakan kærleik og
þjónustu
Í lok september í fyrra kom sonur
Ingvars Þórs og Rögnu í heiminn,
annað barn hans og fyrsta barn
hennar. „Það þurfti inngrip, þar
sem hann var í erfiðleikum með að
komast í ljósið. Unnusta mín var
svæfð og þurfti að gangast undir
bráðakeisara og það var mikill
hamagangur,“ segir Ingvar Þór.
„Við þurftum að reiða okkur á
ljósmæður bæði í fæðingunni og í
eftirleiknum, bæði upp á andlega
heilsu hennar og mína, og hún
með líkamann. Það var ótrúlegt
og maður átti aldrei orð yfir hvað
maður fékk mikinn kærleik og
þjónustu frá þeim. Ellen Bára var
með okkur í heimaþjónustunni
og það var ótrúleg lukka að hafa
hana. Hún bjargaði okkur bara –
maður kom heim úr svona rosa
inngripi og konan gat ekki hlúð að
barninu. Ég sá bara að það hefði
verið auðvelt að fara einhverja erf-
iða leið andlega. Einnig var fjöldi
spurninga sem brann á okkur.
Maður skilur ekki hvað þetta er
dýrmætt fyrr en maður þarf á því
að halda. Ellen Bára kom til okkar
að kvöldi til. Hún sendi mig út að
kaupa lyf og var svo heilt kvöld hjá
okkur af því að hún sá að við þurft-
um á aðstoð að halda.“
Þegar kjarabarátta ljósmæðra
stóð sem hæst fékk Ingvar Þór þá
hugmynd að mála mynd handa
þeim og gera eftirprentun af henni
til að selja og ágóðinn færi í verk-
fallssjóð ljósmæðra. Eftir að þær
sömdu ákvað hann hins vegar að
gefa þeim málverkið sem þakk-
lætisvott. Verkið hangir þar sem
gengið er inn á sængurlegu- og
fæðingardeild Landspítalans.
Ingvar Þór hefur einnig dugleg-
ur að gefa myndir og bjóða upp
málverk fyrir margs konar málefni.
„Í fyrra bauð ég upp eina mynd í
mánuði og gaf til Krabbameins-
félagsins um 900 þúsund krónur.
Það er mikilvægt að gefa af sér.“ n
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
MYND KRISSY
Ingvar Þór
þakklátur ljósmæðrum
n Komu syni hans heilbrigðum í heiminn n Færði þeim málverk að gjöf