Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Qupperneq 68

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Qupperneq 68
68 FÓLK - VIÐTAL 12. október 2018 TÖKUM AÐ OKKUR MERKINGAR OG FATAVIÐGERÐIR EINNIG FRAMLEIÐSLU Á MINNI OG STÆRRI VERKEFNUM MALARHÖFÐA 2, 110 REYKJAVÍK I ngvar Þór Gylfason hefur vak- ið verðskuldaða athygli fyrir einstakar myndir sem hann hefur málað síðastliðin tvö ár, en hann er sjálfmenntaður í listinni. Af þeim málverkum sem hann hefur málað er þó eitt sem stendur hjarta hans nær en önn- ur, Ljósið, málverk sem hann færði ljósmæðrum sem þakklætisvott fyrir að koma syni hans heilbrigð- um í heiminn. „Það eru tvö ár síðan ég byrj- aði að mála á striga, en ég hef teiknað síðan ég var barn. Ég hef alltaf verið góður að teikna og ver- ið í alls konar list í gegnum árin,“ segir Ingvar aðspurður um þenn- an hæfileika sem hann opinber- aði fyrir tveimur árum, en hann vinnur sem verkfræðingur hálfan daginn og ver hinum helmingnum í að mála, smíða og skapa það sem honum finnst skemmtilegt. „Þetta byrjaði þannig að ég, Ragna Sólveig Þórðardóttir, unnusta mín, systir hennar og dóttir mín, vorum í útilegu árið 2016. Við keyptum liti og pappír fyrir stelpurnar til að lita og í ein- hverju gríni málaði ég vatnslita- mynd af norn. Þá sagði unnusta mín að ég yrði að kaupa liti og striga og fara að mála af alvöru. Hún ýtti mér í að opna Facebook- -síðu og síðan þá er þetta búið að vera eins og einhver lygasaga. Við- tökurnar hafa verið mjög góðar og oft eru myndirnar seldar áður en ég er búinn að mála þær. Þetta er ótrúlegt fyrir mig.“ Ingvar málar flestallt, og mikið eftir pöntunum, þótt honum finn- ist skemmtilegra að mála frjálst og á tveimur árum er hann búinn að mála og selja eða gefa um 200 myndir. „Ég mála dansara, ball- erínur, hesta, fugla, Star Wars- myndir. Ég hef prófað landslag, maður prófar flest allt.“ Ljósmæður veittu Ingvari Þór og Rögnu einstakan kærleik og þjónustu Í lok september í fyrra kom sonur Ingvars Þórs og Rögnu í heiminn, annað barn hans og fyrsta barn hennar. „Það þurfti inngrip, þar sem hann var í erfiðleikum með að komast í ljósið. Unnusta mín var svæfð og þurfti að gangast undir bráðakeisara og það var mikill hamagangur,“ segir Ingvar Þór. „Við þurftum að reiða okkur á ljósmæður bæði í fæðingunni og í eftirleiknum, bæði upp á andlega heilsu hennar og mína, og hún með líkamann. Það var ótrúlegt og maður átti aldrei orð yfir hvað maður fékk mikinn kærleik og þjónustu frá þeim. Ellen Bára var með okkur í heimaþjónustunni og það var ótrúleg lukka að hafa hana. Hún bjargaði okkur bara – maður kom heim úr svona rosa inngripi og konan gat ekki hlúð að barninu. Ég sá bara að það hefði verið auðvelt að fara einhverja erf- iða leið andlega. Einnig var fjöldi spurninga sem brann á okkur. Maður skilur ekki hvað þetta er dýrmætt fyrr en maður þarf á því að halda. Ellen Bára kom til okkar að kvöldi til. Hún sendi mig út að kaupa lyf og var svo heilt kvöld hjá okkur af því að hún sá að við þurft- um á aðstoð að halda.“ Þegar kjarabarátta ljósmæðra stóð sem hæst fékk Ingvar Þór þá hugmynd að mála mynd handa þeim og gera eftirprentun af henni til að selja og ágóðinn færi í verk- fallssjóð ljósmæðra. Eftir að þær sömdu ákvað hann hins vegar að gefa þeim málverkið sem þakk- lætisvott. Verkið hangir þar sem gengið er inn á sængurlegu- og fæðingardeild Landspítalans. Ingvar Þór hefur einnig dugleg- ur að gefa myndir og bjóða upp málverk fyrir margs konar málefni. „Í fyrra bauð ég upp eina mynd í mánuði og gaf til Krabbameins- félagsins um 900 þúsund krónur. Það er mikilvægt að gefa af sér.“ n Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is MYND KRISSY Ingvar Þór þakklátur ljósmæðrum n Komu syni hans heilbrigðum í heiminn n Færði þeim málverk að gjöf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.