Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 42
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018KYNNINGARBLAÐ
NUDD OG VELLÍÐAN:
Nudd er frábær jólagjöf
Nudd er mjög góð leið til að slaka á og endurnærast bæði líkamlega og andlega. Nudd
var m.a. notað af Grikkjum og Róm-
verjum til forna og kunnu þeir vel að
meta áhrif þess. Sjálfur Júlíus Sesar
er sagður hafa krafist þess að fá nudd
daglega til að halda líkamlegu og
andlegu jafnvægi. Líf margra í dag er
hins vegar uppfullt af streitu og áreiti.
Símhringingar, tölvupóstur, samfélags-
miðlar, fréttir, umferðin, vinnan, skólinn,
allt veldur þetta streitu og þreytu. Það
getur reynst þrautin þyngri að slíta sig
frá þessum streituvöldum og finna tíma
til að slaka á og endurnærast bæði
líkamlega og andlega.
Birtingarmynd streitu og álags getur
oft verið líkamleg einkenni s.s. vöðva-
bólga og verkir í baki, hálsi og herðum.
Gjafabréf í nudd er frábær gjöf fyrir
öll tilefni, svo sem jólagjöf eða afmæl-
isgjöf. Í nuddmeðferð er markmiðið að
ná fullkominni slökun bæði andlega og
líkamlega. Nuddarar hjá Nudd og vellíð-
an eru sérfræðingar í að finna streitu í
líkamanum og losa um hana. Nudd eyk-
ur jafnframt blóðflæði til vöðva og vefja
sem hefur margvíslegan ábata. Þetta
er gert í rólegu og notalegu umhverfi
þar sem viðskiptavinir eru einangraðir
frá öllu ytra áreiti. Allt þetta hjálpar lík-
amanum og huganum til þess að slaka
á, hvílast og endurnærast. Nudd og
vellíðan býður upp á nokkrar tegundir
af hágæðanuddi á sanngjörnu verði.
Slökunarnudd er meðal þess sem
í boði er, en það er endurnærandi og
slakandi nudd sem mýkir vöðva og
dregur úr spennu í líkamanum. Slök-
unarnudd getur verið fimmtíu eða
áttatíu mínútur. Slökunarnudd er
heilnudd sem þýðir að allur líkaminn er
tekinn fyrir. Slökunarnudd hjá Nudd og
vellíðan er einstakt að því leytinu til að
hver meðferð er sérhæfð að þörfum
hvers og eins viðskiptavinar. Þannig fá
engir tveir viðskiptavinir nákvæmlega
sömu meðferðina. Starfsfólk Nudd og
vellíðan býr yfir margra ára reynslu og
er sérfræðingar í að finna nákvæmlega
hvað hver og einn viðskiptavinur hefur
þörf fyrir.
Fyrir þá sem ekki hafa mikinn tíma
aflögu er einnig í boði partanudd, sem
er aðeins 30 mínútur. Í partanuddi er
lögð áhersla á ákveðin svæði og lík-
amshluta eftir þörfum hvers og eins.
Lúxusmeðferðin er svo steinanudd.
Steinanudd er alltaf áttatíu mínútur
að lengd. Í steinanuddi eru sérstakir
steinar notaðir til að hita lykilpunkta á
líkamanum, til að slaka á vöðvum og
auka blóðflæði. Sérstakri nuddtækni
er síðan beitt samhliða þessu. Steina-
nudd er gott fyrir þá sem vilja fá djúpa
vöðvaslökun án þess að föstum strok-
um sé beitt.
Nudd og vellíðan býður falleg
gjafabréf í nudd á hagstæðu verði.
Gjafabréfin er hægt að panta á vefsíðu
nuddstofunnar, nuddogvellidan.is/
kaupa-gjafabref, og eru þau yfirleitt
tilbúin til afgreiðslu samdægurs.
Nudd og vellíðan er til til húsa að
Hlíðasmára 2, Kópavogi. Nánari upp-
lýsingar, tímabókanir og gjafakort eru á
vefsíðunni nuddogvellidan.is. Einnig er
hægt að panta með tölvupósti á net-
fanginu nudd@nuddogvellidan.is og fá
nánari upplýsingar í síma 788-0070.