Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 47
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
PALLI HNÍFASMIÐUR:
Listaverk til notkunar
Þegar land var skógi vaxið frá landnámi til 1200–1300 var hægt að búa til kol hér og framleiða
stál. En eftir tímabil kulda og afáts á
landinu hurfu skógarnir og þá var ekki
hægt að vinna kol hér. Þar með var ekki
hægt að framleiða stál og því voru allir
hnífar innfluttir næstu aldirnar,“ segir
Páll Kristjánsson, Palli hnífasmiður, sem
býr til hnífa í smiðju sinni að Álafossvegi
og eru þeir miklir listagripir.
Þessir gripir eru mjög vinsælir hjá
erlendum ferðamönnum og hjá þeim
gengur Palli undir nafninu The Kni-
femaker og kynnir framleiðslu sína á
vefsíðu sem er á ensku. „Það er miklu
minni hefð fyrir hnífum hjá Íslendingum
en meðal annarra þjóða og raunar
minni hefð fyrir því að kaupa handverk,“
segir Páll.
Engir tveir hnífar eru eins
„Ég kaupi blöðin að utan en sköftin bý
ég til úr innlendum efnivið og með þeim
hætti að það eru engir tveir hnífar
eins,“ segir Palli en hann notar meðal
annars íslenskt tré, hreindýrshorn, hófa
og klaufir, hrútshorn, hvaltennur og
hvalbein og fleira sem efnivið.
„Ég er annars vegar með veiðihnífa
og hins vegar eldhúshnífa. Ég geri
veiðihnífana sjálfur en kona að nafni
Soffía Alice Sigurðardóttir gerir eldhús-
hnífana,“ segir Palli. Þessir fallegu gripir
kosta sitt enda er þetta engin fjölda-
framleiðsla. Ódýrustu veiðihnífarnir
kosta 25.000 kr. og ódýrustu eldhús-
hnífarnir eru frá 45.000 kr. En fólk er
að fá einstakan grip í hendurnar.
„Þetta eru listaverk til notkunar,“
segir Palli og með því á hann við að
samhliða því hnífarnir henti til hagnýtr-
ar notkunar séu þeir listagripir.
Sjáðu listamanninn að störfum
Listagripir Palla eru til sýnis og sölu á
tveimur stöðum, annars vegar í versl-
uninni Brynju við Laugaveg, en hins
vegar í smiðju hans að Álafossvegi 29 í
Mosfellsbæ. Þar má sjá listasmiðinn að
störfum og spjalla við hann og úrvalið
er öllu meira þar en í Brynju. Opið er
að Álafossveginum frá kl. 9 til 18 virka
daga.
Gjafabréf eru í boði fyrir þá sem vilja
gefa ástvini einstakan smíðisgrip og
nytjahlut í jólagjöf.
Þess má geta að Palli býður upp á
helgarnámskið þar sem fólk smíðar hníf
og slíðrar hann. Námskeiðið er einnig
tilvalið sem gjöf. Verð er 30.000 kr. Ef
næg þátttaka fæst mun Palli halda
sams konar námskeið úti á landi.
Nánari upplýsingar í síma 899-
6903 og á vefsíðunni knifemaker.is.