Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 43
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Suitup Reykjavik er ein mest spennandi herrafataversl-un Reykjavíkur í dag. Versl-
unin sérhæfir sig í sérsaumuðum
jakkafötum, skyrtum og yfirhöfnum
í bland við vandaða aukahluti. Í
sérsaumnum er mikil áhersla lögð
á vönduð efni og fullkomið snið en
þeir Egill og Jökull, eigendur Suitup
Reykjavik, kaupa öll efni í jakkafötin
og skyrturnar frá stærstu og virt-
ustu ullarframleiðendum Ítalíu og
Bretlands.
„Efnin kaupum við næstum öll
frá Biella á Ítalíu en þar eru allir
stærstu efnaframleiðendur Ítalíu
með sínar verksmiðjur. Við leggjum
mikla áherslu á að nota einungis
hágæða efni og notum aldrei gervi-
efni eða ullarblöndur. Uppistaðan í
efnunum sem við notum er áströlsk
merinóull en við hana blandast oft
kasmír, silki, hör og fleiri skemmtileg
efni,“ segir Jökull Vilhjálmsson. Þeir
félagar eru ungir menn, 26 og 27
ára, en hafa alla tíð haft brennandi
áhuga á vönduðum fatnaði sem er
mikilvægt í þessum bransa.
„Við leggjum mikla áherslu á
vandað og fullkomið snið og eyðum
miklum tíma í að fullkomna mæl-
ingarnar fyrir hvern og einn við-
skiptavin. Við trúum því að fötin eigi
að passa þér, en ekki öfugt og við
sendum aldrei frá okkur flík nema
bæði við og viðskiptavinurinn séum
fullkomlega sáttir við sniðið.“
Að sögn Jökuls eru viðskipta-
vinirnir á öllum aldri og fjölbreyttur
hópur. „Við afgreiðum allt frá
fermingar- og brúðkaupsfötum yfir
í vinnuföt,“ segir Jökull en köflótt og
önnur mynstruð föt eru hvað vin-
sælust um þessar mundir.
Suitup Reykjavik býður ekki bara
upp á sérsniðin jakkaföt og skyrtur,
heldur afar vandaða skó frá bæði
Spáni og Ítalíu og gott úrval auka-
hluta sem nær allir eru framleiddir
á Ítalíu undir þeirra eigin merki.
Hanskar, treflar, bindi, vasaklútar og
fleiri aukahlutir prýða verslun Suitup
Reykjavik að Grandagarði 9.
„Við erum með virkilega gott úrval
af aukahlutum sem eru fullkomnir
í jólapakkann. En okkar allra vin-
sælasta jólagjöf er án nokkurs vafa
jakkafata- og skyrtugjafabréfin. Sá
sem fær g jafabréfið að gjöf mæt-
ir síðan til okkar á Grandagarð og
velur úr hundruðum efna, er mæld-
ur frá toppi til táar og hefur síðan
tækifæri til að gera flíkina að sinni
með ýmsum smáatriðum, s.s. vali
á mismunandi krögum, tölum og
fleiru.“
„Við erum nýlega búnir að opna
hér nýja og betri Suitup Reykjavik á
Grandanum, einu mest spennandi
svæði Reykjavíkur. Við kunnum
afar vel við okkur á Grandanum
og fylgjumst spenntir með þeirri
uppbyggingu sem mun eiga sér stað
á svæðinu á næstu mánuðum og
árum.“
KLÆÐSKERALISTIN Í ÖNDVEGI:
Gefðu sérsniðna jólagjöf
GJAFABRÉFIN ER HÆGT AÐ PANTA BEINT AF
VEFNUM WWW.SUITUP.IS OG ERU ÞAU HEIMSEND
AÐ KOSTNAÐARLAUSU. EINNIG ER HÆGT AÐ
NÁLGAST GJAFABRÉFIN Í GLÆSILEGRI VERSLUN
SUITUP REYKJAVIK AÐ GRANDAGARÐI 9.