Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Qupperneq 43
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Suitup Reykjavik er ein mest spennandi herrafataversl-un Reykjavíkur í dag. Versl- unin sérhæfir sig í sérsaumuðum jakkafötum, skyrtum og yfirhöfnum í bland við vandaða aukahluti. Í sérsaumnum er mikil áhersla lögð á vönduð efni og fullkomið snið en þeir Egill og Jökull, eigendur Suitup Reykjavik, kaupa öll efni í jakkafötin og skyrturnar frá stærstu og virt- ustu ullarframleiðendum Ítalíu og Bretlands. „Efnin kaupum við næstum öll frá Biella á Ítalíu en þar eru allir stærstu efnaframleiðendur Ítalíu með sínar verksmiðjur. Við leggjum mikla áherslu á að nota einungis hágæða efni og notum aldrei gervi- efni eða ullarblöndur. Uppistaðan í efnunum sem við notum er áströlsk merinóull en við hana blandast oft kasmír, silki, hör og fleiri skemmtileg efni,“ segir Jökull Vilhjálmsson. Þeir félagar eru ungir menn, 26 og 27 ára, en hafa alla tíð haft brennandi áhuga á vönduðum fatnaði sem er mikilvægt í þessum bransa. „Við leggjum mikla áherslu á vandað og fullkomið snið og eyðum miklum tíma í að fullkomna mæl- ingarnar fyrir hvern og einn við- skiptavin. Við trúum því að fötin eigi að passa þér, en ekki öfugt og við sendum aldrei frá okkur flík nema bæði við og viðskiptavinurinn séum fullkomlega sáttir við sniðið.“ Að sögn Jökuls eru viðskipta- vinirnir á öllum aldri og fjölbreyttur hópur. „Við afgreiðum allt frá fermingar- og brúðkaupsfötum yfir í vinnuföt,“ segir Jökull en köflótt og önnur mynstruð föt eru hvað vin- sælust um þessar mundir. Suitup Reykjavik býður ekki bara upp á sérsniðin jakkaföt og skyrtur, heldur afar vandaða skó frá bæði Spáni og Ítalíu og gott úrval auka- hluta sem nær allir eru framleiddir á Ítalíu undir þeirra eigin merki. Hanskar, treflar, bindi, vasaklútar og fleiri aukahlutir prýða verslun Suitup Reykjavik að Grandagarði 9. „Við erum með virkilega gott úrval af aukahlutum sem eru fullkomnir í jólapakkann. En okkar allra vin- sælasta jólagjöf er án nokkurs vafa jakkafata- og skyrtugjafabréfin. Sá sem fær g jafabréfið að gjöf mæt- ir síðan til okkar á Grandagarð og velur úr hundruðum efna, er mæld- ur frá toppi til táar og hefur síðan tækifæri til að gera flíkina að sinni með ýmsum smáatriðum, s.s. vali á mismunandi krögum, tölum og fleiru.“ „Við erum nýlega búnir að opna hér nýja og betri Suitup Reykjavik á Grandanum, einu mest spennandi svæði Reykjavíkur. Við kunnum afar vel við okkur á Grandanum og fylgjumst spenntir með þeirri uppbyggingu sem mun eiga sér stað á svæðinu á næstu mánuðum og árum.“ KLÆÐSKERALISTIN Í ÖNDVEGI: Gefðu sérsniðna jólagjöf GJAFABRÉFIN ER HÆGT AÐ PANTA BEINT AF VEFNUM WWW.SUITUP.IS OG ERU ÞAU HEIMSEND AÐ KOSTNAÐARLAUSU. EINNIG ER HÆGT AÐ NÁLGAST GJAFABRÉFIN Í GLÆSILEGRI VERSLUN SUITUP REYKJAVIK AÐ GRANDAGARÐI 9.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.