Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 39
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Ljómyndarinn Jón Páll hefur verið mjög virkur í ljósmyndun hér á landi allt frá því hann lauk
námi í faginu frá Brooks Institute of
Photography í Kaliforníu árið 1995.
Einnig hefur hann starfað á erlendri
grundu, meðal annars sem ljósmyndari
í Mílanó, hjá tískukónginum Giorgio
Armani.
Viðfangsefni Jóns Páls eru afar
fjölbreytt, allt frá því að mynda börn og
fjölskyldur upp í stórar og flóknar aug-
lýsingamyndatökur fyrir stærstu fyrir-
tæki landsins. Hann hefur sérstakt lag
á að mynda börn og unglinga og gerir
sér far um að láta þau slaka á og líða
vel því þannig fást bestu myndirnar.
„Ég legg áherslu á að fólk fái vand-
aðar og innbundnar myndabækur frá
mér, þeir sem þess óska, en
stafrænar myndir fylgja
líka. Oftast eru
myndirnar svo
flottar og fólk
svo ánægt að það vill fá sínar mynda-
bækur og engar refjar. En stafrænar
myndir fylgja líka og það er gott að
eiga hvort tveggja, ekki síst þegar um
er að ræða fallegar og dýrmætar
myndir af fjölskyldunni úti í íslenska
vorinu,“ segir Jón Páll.
Fjölbreytt gjafakort í myndatöku
Gjafakort í myndatöku er
persónuleg gjöf sem endist
ævilangt. Jón Páll býður
upp á margs konar útfærslu af gjafa-
kortum og myndatökum til að gefa í
gjöf. Þar er meðal annars gert ráð fyrir
fjölskyldumyndum, barnamyndum og
sérstökum jólamyndatökum. Enn frem-
ur bumbu-, nýbura- eða ungbarna-
myndatökur. Margvísleg önnur tilefni
eru inni í þessum tillögum. Sjá nánar
á vefsíðunni ljosmyndastofa.is undir
efnishlutanum „Gjafakort“.
GJAFAKORT Í MYNDATÖKU:
Persónuleg gjöf sem endist
ævilangt!