Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 39
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Ljómyndarinn Jón Páll hefur verið mjög virkur í ljósmyndun hér á landi allt frá því hann lauk námi í faginu frá Brooks Institute of Photography í Kaliforníu árið 1995. Einnig hefur hann starfað á erlendri grundu, meðal annars sem ljósmyndari í Mílanó, hjá tískukónginum Giorgio Armani. Viðfangsefni Jóns Páls eru afar fjölbreytt, allt frá því að mynda börn og fjölskyldur upp í stórar og flóknar aug- lýsingamyndatökur fyrir stærstu fyrir- tæki landsins. Hann hefur sérstakt lag á að mynda börn og unglinga og gerir sér far um að láta þau slaka á og líða vel því þannig fást bestu myndirnar. „Ég legg áherslu á að fólk fái vand- aðar og innbundnar myndabækur frá mér, þeir sem þess óska, en stafrænar myndir fylgja líka. Oftast eru myndirnar svo flottar og fólk svo ánægt að það vill fá sínar mynda- bækur og engar refjar. En stafrænar myndir fylgja líka og það er gott að eiga hvort tveggja, ekki síst þegar um er að ræða fallegar og dýrmætar myndir af fjölskyldunni úti í íslenska vorinu,“ segir Jón Páll. Fjölbreytt gjafakort í myndatöku Gjafakort í myndatöku er persónuleg gjöf sem endist ævilangt. Jón Páll býður upp á margs konar útfærslu af gjafa- kortum og myndatökum til að gefa í gjöf. Þar er meðal annars gert ráð fyrir fjölskyldumyndum, barnamyndum og sérstökum jólamyndatökum. Enn frem- ur bumbu-, nýbura- eða ungbarna- myndatökur. Margvísleg önnur tilefni eru inni í þessum tillögum. Sjá nánar á vefsíðunni ljosmyndastofa.is undir efnishlutanum „Gjafakort“. GJAFAKORT Í MYNDATÖKU: Persónuleg gjöf sem endist ævilangt!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.