Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 34
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018KYNNINGARBLAÐ
Náttúrufegurðin sem
blasir við Borgarnesi
Í hjarta Borgarness, í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavíkurborg, situr B59 Hotel.
Þar má finna glænýja og glæsilega
stemningu með hönnun sem er inn-
blásin af hinni stórfenglegu náttúru
sem umlykur hótelið og nesið. Capital
Hotels rekur B59 Hotel, sem dregur
nafn sitt af staðsetningunni mið-
svæðis í bænum að Borgarbraut 59,
beint á móti Hyrnutorgi.
„Við erum mjög ánægð með ná-
lægðina við Reykjavík og viðtökurnar
sem við höfum fengið,“ segir Jóel
Hjálmarsson hótelstjóri. Jóel er með
BA-gráðu í alþjóðlegri hótelstjórnun
og ferðamálafræði frá IHTTI í Sviss.
Hann hefur meðal annars starfað
fyrir Starwood Hotels and Resorts,
Hakkasan Ltd., Hilton International
Hotels og Icelandair Hotels.
Að sögn Jóels hefur reksturinn á
B59 gengið vonum framar frá opn-
uninni í sumar á þessu ári og segir
hann allan gang vera á hótelgestum.
„Það er mikið af Íslendingum sem
kemur til okkar, en ekki bara erlent
ferðafólk og við höfum verið dug-
leg að bjóða upp á alls kyns pakka,
gjafabréf og höfum líka tekið á móti
hópum, ráðstefnum og fundum.“
Á B59 er veigamikið rými að finna,
með 81 herbergi auk þess að þarna
er að finna huggulegan veitingastað,
sportbar ásamt heilsulind og ýmsu.
Veitingastaðurinn, Snorri kitchen &
bar, leggur áherslu á hráefni úr
héraði og eru réttirnir almennt
með alþjóðlegu ívafi.