Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 48
48 LÍFSSTÍLL - KYNLÍF 12. október 2018 M argir kannast við að hafa not- að vímuefni, lögleg eða ólögleg, til að breyta hugarástandi sínu og ef til vill getu til samskipta. Áfengi er stundum kallað fljótandi sjálfs- traust – enda eru skammtímaáhrif þess á þá leið – fullum finnst okkur við gjarn- an aðeins meira töff, aðeins meira sexí og við treystum okkur til alls konar hluta sem okkur þætti ekki alveg eins góð hug- mynd værum við bláedrú. Ef ekki væri fyrir neikvæð áhrif af langtímadrykkju og of miklu magni vínanda á líkama og sál væri kannski bara gaman að við vær- um öll rallhálf sem oftast. Mér finnst þó frekar sorglegt að heyra sögur harðfullorðins fólks sem telur áfengi forsendu þess að geta átt í róm- antískum samskiptum við aðra. Sumir geta ekki hugsað sér að skrá sig á Tind- er eða önnur rafræn stefnumótaúrræði, en drekka sig í spað um hverja helgi í von um að lenda í sleik á barnum eða í einhverju þaðan af nánara í ókunn- ugu bóli. Stundum er viljinn meiri en getan, enda hefur of mikið áfengi trufl- andi áhrif á kyngetu allra kynja, stinning verður minni, píkur blotna síður og full- nægingin heldur sig kannski alveg fjarri. Ferlega glatað einmitt þegar við upplif- um okkur kannski sem kynþokkafyllst. Þess ber þó að geta að fyrir suma eru áhrifin jákvæð, til dæmis fyrir karlmenn sem fá það eftir mjög litla örvun – þeir endast lengur – og fólk sem á erfitt með að slaka nægilega á til að fá fullnægingu alla jafna gæti hitt á passlega slökun ef ölvunin er akkúrat á því stigi. Svo eru það áhrifin á dómgreindina. Almáttugur minn hvar á ég að byrja? Í nýlegri rannsókn voru tekin djúpvið- töl við 24 einstaklinga í New York-borg um reynslu þeirra af kynlífi bæði und- ir áhrifum áfengis og kannabisefna (þó ekki samtímis). (Palamar, JJ, ofl. (2018). A Qualitative Investigation Comparing Psychosocial and Physical Sexual Ex- periences Related to Alcohol and Mari- juana Use among Adults. Archives of Sexual Behavior, 47(3), 757–770.) Rann- sóknin er agnarsmá og því ekki óhætt að fullyrða neitt út frá niðurstöðunum, en vissulega gefur hún vísbendingar um veruleikann. Meðal þess sem kom fram í rannsókninni var að kynlíf und- ir áhrifum áfengis var líklegra til að hafa neikvæð áhrif varðandi val á kynlífs- félögum. Áfengisnotkun reyndist frekar tengjast kynlífi með ókunnugum, fólki sem annars hefði alls ekki lent á radarn- um. Undir áhrifum kannabis var fólk hins vegar líklegra til að velja að stunda kynlíf með vini eða kunningja. Kannski tengist það bara staðsetningu notkunar – áfengi er löglegt vímuefni sem neytt er í almenningsrými á með- an kannabis er frekar notað í heimahús- um þar sem það er ólöglegt, eins og í New York og Reykjavík. Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Kynlíf undir áhrifum Hér eru nokkrir fleiri athyglisverðir punktar úr niðurstöðum rannsóknarinnar: Áfengi og kannabis hefur neikvæð áhrif á kynlífið „Meðal þess sem kom fram í rannsókninni var að kynlíf undir áhrifum áfengis var líklegra til að hafa neikvæð áhrif varðandi val á kynlífsfélögum Margir þátttakendur sögðust upplifa sig kyn- þokkafyllri undir áhrifum – þó var þetta líklegra við notkun áfengis en við notkun kannabisefna. Kynlíf undir áhrifum áfengis var líklegra til að valda móral og eftirsjá daginn/dagana eftir, miðað við kannabis. Mórallinn tengist þá gjarnan vali á kynlífsfélaga eða ákvörðunum í kynlífinu, eins og til að mynda að sleppa því að nota smokk. Áfengi tengdist frekar vandamálum varðandi kynsvörun og frammistöðu – líkt og nefnt er hér að framan. Undir áhrifum kannabisefna voru neikvæðu áhrifin frekar sálræn, til að mynda kvíðatil finning eða aðsóknarkennd á meðan kynlíf stóð yfir. Í báðum tilfellum voru neikvæð áhrif tengd magni efna sem neytt hafði verið. Meira áfengi og meira gras leiddu til verra kynlífs. Þátttakendur lýstu því að kannabis yki á líkamlega næmni, á meðan áfengi virkaði deyfandi. Kynlíf undir áhrifum kannabisefna virtist vara lengur – virtist er hér lykilorð, því í raun var tíminn ekki lengri en kannabis hefur brenglandi áhrif á tímaskyn neytenda. Bæði vímuefnin höfðu áhrif á fullnægingar, en í allar mögulegar áttir. Fyrir suma voru fullnægingar undir kannabisáhrifum sterkari, en aðrir upplifðu erfiðleika vegna vangetu til að halda fókus. Kannabis leiddi frekar til kynlífs í hægagangi og nánd á meðan áfengi var líklegra til að leiða til hamfara og láta í bólinu. Bæði efni virkuðu hvetj- andi á fólk til að gera hluti í kynlífi sem það hefði ekki gert edrú. Ragnheiður Haralds- og Eiríks- dóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi Spurningar og tímapantanir: raggaeiriks@gmail.com www.raggaeiriks.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.