Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 8
8 12. október 2018FRÉTTIR
Gylfaflöt 6 - 8
S. 587 - 6688
fanntofell.is
BORÐPLÖTUR
& SÓLBEKKIR
ÍSLENDINGAR SEM BENDLAÐIR VORU VIÐ FRÆGT FÓLK
Þ
au eiga það sameiginlegt
að hafa daðrað við fræga
fólkið eða verið í löngum
eða stuttum sambönd-
um með því. Listinn gæti ver-
ið lengri en samböndin sem eru
hér talin upp voru öll áberandi á
síðum dagblaðanna. Íslendingar
slúðruðu um þau, öfunduðust eða
styttu sér stundir við að lesa um
ævintýri þeirra.
Ágúst Aðalsteinsson
og Pink
Stórsöngkonan Pink hélt tónleika
á Íslandi árið 2004 sem voru hluti
af Evrópuferð hennar. Pink fór
mikinn hér á
landi og
vakti óskipta athygli hvar
sem hún fór. Meðal annars
lenti, hún í útistöðum við
þáverandi Ijósmyndara
Víkurfrétta, Atla Má Gylfason.
En hún varð einnig skotin í
strák. Ágúst Aðalsteins-
son, kallaður Gústi,
var á þessum
árum
skemmt-
anastjóri veitingastaðarins 22.
Tókust náin kynni með Pink og
Gústa.
„Ég ætla ekkert að tjá mig um
þetta mál. Hallærislegt að vera að
tala um þetta í fjölmiðlum. Þetta
er bara hress stelpa sem kíkti á
klakann,“ sagði Gústi þegar DV
óskaði eftir viðtali árið 2004.
Heimildir DV herma að Gústa hafi
verið boðið í heimsókn til Los
Angeles. Í frétt DV sagði:
„Þau sáust kveðjast innilega
aðfaranótt fimmtudags fyrir fram-
an Nordica Hotel. Þá var Pink á
leið frá landinu. Þess má svo geta
að Gústi gifti sig á haustmánuðum
er hann játaðist Hildi Guðmunds-
dóttur. Hún er dóttir Guðmundar
Árna Stefánssonar, sendiherra og
fyrrverandi ráðherra.
Íris Björk Jóhannesdóttir
og Chris Pine
Íris Björk var valin fegurst í keppn-
inni Ungfrú Reykjavík árið 2010. Í
janúar árið 2014 greindi Vísir frá
því að hún hefði eytt áramótunum
á Kostaríku ásamt bandaríska
leikaranum Chris Pine. Chris var
þekktastur fyrir að leika Kaftein
Kirk í kvikmyndunum Star Trek og
Star Trek: Into Darkness. Þá lék
hann aðalhlutverk í einni kvik-
myndinni um njósnarann Jack
Ryan. Í nóvember það sama ár
staðfesti síðan leikarinn að hann
væri á lausu.
Kristrún Ösp Barkardóttir
og Dwight Yorke
Það var fyrst árið 2009 sem fregnir
bárust af því að Kristrún Ösp Bark-
ardóttir og knattspyrnukappinn
Dwight Yorke, sem gerði garðinn
frægan með Manchester United,
væru að stinga saman nefjum.
Yorke þótti á sínum tíma einn af
betri framherjum heims. Yorke
sagði í viðtali um ári síðar:
„Eina ráðið mitt í sambandi
við konur er að halda við tvær eða
þrjár.“ Þegar Kristrún var spurð
út í þessi ummæli svaraði hún:
„Ég geri mína hluti og hann gerir
sína.“ Parið hætti síðan saman og
Kristrún hóf samband með Sveini
Andra Sveinssyni lögmanni. Árið
2011 greindi DV svo frá því að
Kristrún væri hætt með Sveini
Andra. Um sambandsslitin sagði
Kristrún Ösp við Morgunblaðið:
„Ég held bara að hann sé ekki
tilbúinn til að gefa piparsveina-
lífið upp á bátinn. Ég skil það al-
veg því hann var giftur lengi. En
það er einhvern veginn ekki mál-
ið að vera með manni sem er
alltaf að reyna við annað kvenfólk
á Facebook.“ Fór Kristrún aftur í
faðm knattspyrnukappans. Sagði
Kristrún í samtali við Pressuna:
„Ég held að Dwight Yorke hafi ver-
ið afbrýðisamur út í Svein Andra
þegar ég sagði honum frá því sam-
bandi en hann fyrirgaf mér.“ Veltu
Kristrún og Yorke fyrir sér að taka
saman aftur en ekkert varð úr því.
Fjölnir Þorgeirsson og Mel B
Fjölnir Þorgeirsson og hin heims-
fræga kryddpía Mel B voru par á
árunum 1997 og 1998. Mel B er í
dag einn af dómurum í America’s
Got Talent. Spice Girls voru á há-
punkti frægðarinnar á þessum
tíma og vinsælasta stúlknaband
heims. Þann 31. mars greindi DV
frá því að parið væri hætt saman.
Mel B lýsti sambandi þeirra á
þessa leið í ævisögu sinni:
„Eftir þetta byrjaði ég með
Fjölni frá Íslandi sem ég kynntist
einnig í Blackpool. Ég féll kylliflöt
fyrir honum en síðan flutti hann
aftur til Íslands. Samband okkar
var mjög ástríðufullt.“
Fjölnir sagði í samtali við DV:
„Það er rétt að við erum hætt
saman. Þetta var sameigin leg
ákvörðun okkar og við skiljum
sem vinir. Þetta á sér langan að-
draganda og er út af persónuleg-
um ástæðum sem ég get ekki tjáð
mig frekar um. Þetta hefur ekkert
með framhjáhald að gera. Þetta
hefur verið góður tími og að mér