Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 8
8 12. október 2018FRÉTTIR Gylfaflöt 6 - 8 S. 587 - 6688 fanntofell.is BORÐPLÖTUR & SÓLBEKKIR ÍSLENDINGAR SEM BENDLAÐIR VORU VIÐ FRÆGT FÓLK Þ au eiga það sameiginlegt að hafa daðrað við fræga fólkið eða verið í löngum eða stuttum sambönd- um með því. Listinn gæti ver- ið lengri en samböndin sem eru hér talin upp voru öll áberandi á síðum dagblaðanna. Íslendingar slúðruðu um þau, öfunduðust eða styttu sér stundir við að lesa um ævintýri þeirra. Ágúst Aðalsteinsson og Pink Stórsöngkonan Pink hélt tónleika á Íslandi árið 2004 sem voru hluti af Evrópuferð hennar. Pink fór mikinn hér á landi og vakti óskipta athygli hvar sem hún fór. Meðal annars lenti, hún í útistöðum við þáverandi Ijósmyndara Víkurfrétta, Atla Má Gylfason. En hún varð einnig skotin í strák. Ágúst Aðalsteins- son, kallaður Gústi, var á þessum árum skemmt- anastjóri veitingastaðarins 22. Tókust náin kynni með Pink og Gústa. „Ég ætla ekkert að tjá mig um þetta mál. Hallærislegt að vera að tala um þetta í fjölmiðlum. Þetta er bara hress stelpa sem kíkti á klakann,“ sagði Gústi þegar DV óskaði eftir viðtali árið 2004. Heimildir DV herma að Gústa hafi verið boðið í heimsókn til Los Angeles. Í frétt DV sagði: „Þau sáust kveðjast innilega aðfaranótt fimmtudags fyrir fram- an Nordica Hotel. Þá var Pink á leið frá landinu. Þess má svo geta að Gústi gifti sig á haustmánuðum er hann játaðist Hildi Guðmunds- dóttur. Hún er dóttir Guðmundar Árna Stefánssonar, sendiherra og fyrrverandi ráðherra. Íris Björk Jóhannesdóttir og Chris Pine Íris Björk var valin fegurst í keppn- inni Ungfrú Reykjavík árið 2010. Í janúar árið 2014 greindi Vísir frá því að hún hefði eytt áramótunum á Kostaríku ásamt bandaríska leikaranum Chris Pine. Chris var þekktastur fyrir að leika Kaftein Kirk í kvikmyndunum Star Trek og Star Trek: Into Darkness. Þá lék hann aðalhlutverk í einni kvik- myndinni um njósnarann Jack Ryan. Í nóvember það sama ár staðfesti síðan leikarinn að hann væri á lausu. Kristrún Ösp Barkardóttir og Dwight Yorke Það var fyrst árið 2009 sem fregnir bárust af því að Kristrún Ösp Bark- ardóttir og knattspyrnukappinn Dwight Yorke, sem gerði garðinn frægan með Manchester United, væru að stinga saman nefjum. Yorke þótti á sínum tíma einn af betri framherjum heims. Yorke sagði í viðtali um ári síðar: „Eina ráðið mitt í sambandi við konur er að halda við tvær eða þrjár.“ Þegar Kristrún var spurð út í þessi ummæli svaraði hún: „Ég geri mína hluti og hann gerir sína.“ Parið hætti síðan saman og Kristrún hóf samband með Sveini Andra Sveinssyni lögmanni. Árið 2011 greindi DV svo frá því að Kristrún væri hætt með Sveini Andra. Um sambandsslitin sagði Kristrún Ösp við Morgunblaðið: „Ég held bara að hann sé ekki tilbúinn til að gefa piparsveina- lífið upp á bátinn. Ég skil það al- veg því hann var giftur lengi. En það er einhvern veginn ekki mál- ið að vera með manni sem er alltaf að reyna við annað kvenfólk á Facebook.“ Fór Kristrún aftur í faðm knattspyrnukappans. Sagði Kristrún í samtali við Pressuna: „Ég held að Dwight Yorke hafi ver- ið afbrýðisamur út í Svein Andra þegar ég sagði honum frá því sam- bandi en hann fyrirgaf mér.“ Veltu Kristrún og Yorke fyrir sér að taka saman aftur en ekkert varð úr því. Fjölnir Þorgeirsson og Mel B Fjölnir Þorgeirsson og hin heims- fræga kryddpía Mel B voru par á árunum 1997 og 1998. Mel B er í dag einn af dómurum í America’s Got Talent. Spice Girls voru á há- punkti frægðarinnar á þessum tíma og vinsælasta stúlknaband heims. Þann 31. mars greindi DV frá því að parið væri hætt saman. Mel B lýsti sambandi þeirra á þessa leið í ævisögu sinni: „Eftir þetta byrjaði ég með Fjölni frá Íslandi sem ég kynntist einnig í Blackpool. Ég féll kylliflöt fyrir honum en síðan flutti hann aftur til Íslands. Samband okkar var mjög ástríðufullt.“ Fjölnir sagði í samtali við DV: „Það er rétt að við erum hætt saman. Þetta var sameigin leg ákvörðun okkar og við skiljum sem vinir. Þetta á sér langan að- draganda og er út af persónuleg- um ástæðum sem ég get ekki tjáð mig frekar um. Þetta hefur ekkert með framhjáhald að gera. Þetta hefur verið góður tími og að mér

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.