Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 2
2 12. október 2018FRÉTTIR E inar Gunnar Birgisson, öryrki á sextugsaldri, stend­ ur á krossgötum hvað hús­ næðisleit varðar. Um þessar mundir dvelur hann ásamt eigin­ konu sinni á heimili vinar síns. Þennan vanda vill hann gjarnan leysa með kaupum á hjólhýsi en Einar hefur töluverða reynslu af þeim lífsstíl, sem hann segir vera gríðarlega misskilinn. Telur Einar að borgaryfirvöld líti almennt niður til fólks í slíkri neyð og segir hann forgangsröðun meirihluta vera í tómu tjóni. „Í stað þess að henda peningum í enn eitt snittu­ og snobbhúsið væri hægt að nota þá til þess að kaupa hundruð hjól­ hýsi handa fólki,“ segir Einar og vísar í braggann í Nauthólsvík. „Ég fór og skoðaði þennan forljóta bragga og það er algjör brandari hvað borgin eyðir miklu í það sem við eigum nóg af fyrir, einhverja ölstofu og tilheyrandi skreytingar. Yfirvöld gera sér ekki grein fyrir kvíða og vandræðum fólks sem er í húsnæðisvanda, hvað þetta er mikill öryggisventill.“ Þá bætir hann við lokun tjald­ svæðisins í Laugardal yfir vetrar­ tímann sé vægast sagt hamlandi fyrir mann í hans stöðu. Tjald­ svæðið verður lokað um vetur­ inn og einungis rekinn skamm­ tímaþjónusta fyrir ferðafólk, en þarna bjuggu hátt í tuttugu heim­ ilislausir einstaklingar í fyrra yfir vetrartímann. Þegar Einar frétti af þessu hafði hann samband við Fé­ lagsmálastofnun síðastliðið sum­ ar sem sýndi aðstæðunum lítinn skilning hans sögn. „Þeim var aug­ ljóslega alveg sama og ég fékk það svar að ég gæti þá flutt á Laugar­ vatn eða á gistiheimili og borgað hundrað þúsund krónur fyrir bedda,“ segir hann. „Þetta voru einu svörin sem við fengum úr borgarkerfinu. Það er verið að hrekja heimilislaust fólk, sem vill bara lifa góðu lífi, út af höfuðborgarsvæðinu og hjólhýsi eru ódýrasta húsnæði sem þú finn­ ur. Þetta er lausn sem ég hvet ungt fólk til þess að kynna sér betur, frekar en að troða sér einhverjar kompur í neyð fyrir morðfjár.“ Að sögn Einars eru hjólhýsi lausn sem borgaryfirvöld hafa litið fram hjá og þykir honum miður að fólk í hjólhýsagörðum sé oft álitið vera „eitthvert hyski“. Einar segir fólk sem býr í hjólhýsum oft sett sem hliðstæðu við vandræða­ fólk eða fátækt, þetta svonefnda „trailer trash“. Einar telur þessa staðalmynd yfirleitt litaða af svæð­ um þar sem ekki eru gerðar miklar kröfur til góðrar umgengni. Hann segir að hjólhýsagarðar þurfi að búa yfir sambærilegum umgengn­ isreglum og fjölbýlishús til að allt gangi upp og leyna þau mörg á sér víða um heim. „Ég hef búið í hjólhýsagörðum í Bandaríkjunum, til að mynda í Colorado, og mér fannst mann­ lífið þar alveg frábært,“ segir Ein­ ar. „Minn draumur er að það sé til hjólhýsagarður í landinu. Þá get ég keypt mér hjólhýsi sjálfur og lifað góðu lífi í stað þess að vera alltaf í húsnæðishrakningum.“ n Á þessum degi, 12. október 1492 – Leiðangur Kristófers Kólumbus tekur land á Bahamaeyjum í Karíbahafi. Kristófer stóð í þeirri trú að hann væri kominn til Indíalanda. hlutir sem flestir bjuggust við að myndu þurrka út mannkynið Nýjustu fregnir herma að tími mannkyns varðandi við- brögð við loftslagsvandanum sé á þrotum og ef ekki verði gripið til tafarlausra aðgerða muni stór landsvæði á heimskringlunni verða óbyggileg. Um er að ræða eitt stærsta verkefni samtímans. DV tók saman fimm hluti sem áttu að þurrka mannkynið út en bægja tókst hættunni frá, að minnsta kosti í bili. Kjarnorkuváin Allt frá því að Banda- ríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengjum á Nagasaki og Hiros- hima hefur mannkynið óttast eyðileggingar- mátt vopnanna. Aldrei þó meira en meðan á kalda stríðinu stóð frá lokum heimsstyrj- aldarinnar síðari til ársins 1991. Hættan er að sjálfsögðu enn til staðar en ber þó ekki ábyrgð á andvökunóttum um alla veröld. Ósonlagið Árið 1985 uppgötvað- ist gat í ósonlaginu yfir Suðurskautslandinu. Næstu ár bárust fregnir af yfirvof- andi hörmungum fyrir mannkynið og plánetuna. Árið 1987 var Montreal-bókunin gerð og eftir 1995 hefur framleiðsla á klórflúorkolefni verið bönnuð í flestum þróuðum ríkjum. Nýjustu fregnir herma að ósonlagið sé smátt og smátt að lagast. Tvöþúsund- vandinn Í aðdraganda aldamótaársins 2000 bárust fregnir af því að helstu tölvukerfi heims væru í hættu. Ástæðan var sú að flest kerfi notuðu aðeins tvo síðustu stafina til þess að aðgreina ár og þannig gætu tölvukerfi ekki aðgreint árið 2000 frá árinu 1900. Spáð var miklum hörmungum og umfangsmiklar aðgerðir voru settar í gang. Loks sló klukkan 00:00:01 þann 1. jan- úar 2000 og lífið hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist. Eyðni Á níunda áratug síðustu aldar gaus upp alheimseyðn- ifaraldur og bjugg- ust flestir við hinu versta enda sjúk- dómurinn ólæknandi. Eyðni er enn í dag stórt vandamál víða um heim en öflug lyf hafa gert það að verkum að sjúkdómurinn er ekki lengur sá dauðadómur sem hann var áður. Nú þarf bara að tryggja að allir smitaðir fái aðgang að þessum lyfjum. Svínaflensan Nýr stofn H1N1-inn- flúensuveirunnar uppgötvaðist í mars 2009 og í kjölfarið fjölluðu fjölmiðlar ítrekað um hættuna sem sannarlega stafaði af veirunni og hræðilegar afleiðingar sem heimsfaraldurinn gæti haft í för með sér. Hlutfallslega hafa þó mjög fáir látið lífið vegna veirunnar og í ágúst 2010 lýsti Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin því yfir að faraldurinn væri liðinn hjá. 1773 – Fyrsta geðsjúkrahæli Bandaríkj- anna er opnað. 1810 – Oktoberfest er haldin í fyrsta skipti; Aðallinn í Bæjaralandi bauð almenningi München til hátíðarhalda vegna giftingar Loðvíks, krónprins af Bæjaralandi, og prinsessunnar Theresu von Sachsen-Hildburghausen. 1928 – Svonefnt járnlunga er notað í fyrsta skipti á barnaspítala í Boston í Bandaríkjunum. 1960 – Sjónvarpsáhorfendur í Japan sjá morðið á Inejiro Asanuma, leiðtoga Japanska sósíalistaflokksins, í beinni útsendingu. Síðustu orðin „Einn drykk að lokum.“ – Jasper Newton „Jack“ Daniel (sept. 1850–okt. 1911), stofnandi viskígerðarfyrirtækisins Jack Daniel’s. „Það er verið að hrekja heimilislaust fólk út af höfuðborgarsvæðinu Tjaldsvæðið í Laugardal Hjólhýsafólk stimplað sem „trailer trash“. n Segir fordóma ríkja gagnvart því n Lokun tjaldsvæðisins slæm Einar vill búa í tjaldvagni Tómas Valgeirsson tomas@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.