Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 4
4 21. desember 2018FRÉTTIR
Sjúkraflutningamaður keyrði
eftir að hafa misst ökuleyfið
n Slökkviliðsstjóri frétti af því í gegnum slúður
S
júkraflutningamaður í
Reykjanesbæ keyrði án öku-
réttinda. Hann hafði verið
sviptur þeim vegna ölv-
unaraksturs á einkabíl en mætti
í störf fyrir Brunalið Suðurnesja
sem varaliðsmaður. Þegar lög-
reglan stöðvaði hann var hann lát-
inn skipta við sessunaut sinn en
slökkviliðsstjóri var ekki látinn vita.
Fór umræddur sjúkraflutninga-
maður því í nokkur útköll eftir þetta
en sagði upp eftir að upp komst um
málið innan brunaliðsins.
Slökkviliðsstjóri ekki látinn vita
Umræddur varaliðsmaður Bruna-
liðs Suðurnesja var stöðvaður
seinni partinn í ágústmánuði
árið 2017 þar sem hann keyrði
sjúkrabifreið. Við hlið hans sat
kona sem hefur starfað fyrir bæði
brunaliðið og lögregluna. Hún tók
við akstrinum eftir að sjúkrabíll-
inn var stöðvaður og fóru þau upp
á slökkviliðsstöðina.
Að vera tekinn án ökuréttinda
er alvarlegt umferðarlagabrot og
heimildir í lögum fyrir því að gera
bifreiðina upptæka. Sérstaklega
alvarlegt þykir þetta ef um akstur
atvinnubifreiðar er að ræða.
„Hann hætti strax í kjölfarið,“
segir Jón Guðlaugsson, slökkviliðs-
stjóri Brunaliðs Suðurnesja, í sam-
tali við DV. Jón segir að hann hafi
ekki verið upplýstur um atvikið,
hvorki af lögreglunni né þeim sem
komu að málinu.
„Ég hafði ekki hugmynd um að
hann væri próflaus. Um leið og ég
frétti af því, kallaði ég í hann og
hann gerði sér grein fyrir málinu
strax. Hann kom svo með upp-
sagnarbréf og lét af störfum sam-
stundis.“
Hver lét þig vita af þessu?
„Ég bara frétti þetta, eins og
maður fréttir svona hluti. Með ein-
hverjum kjaftagangi og slúðri. Ég
hafði ekki minnsta grun um þetta
fram að því.“
Í útköll eftir að vera tekinn
Jón segist ekki vita hversu langur
tími leið frá því að sjúkraflutninga-
maðurinn var tekinn af lögreglu og
þangað til honum var gert viðvart
um atvikið. Hann segir þó að það
hafi ekki verið löngu seinna.
„Ég er ekki með það á hreinu.
Hann var ekki í fastri vinnu heldur í
afleysingum.“
En búinn að fara í einhver útköll
eftir þetta?
„Já. Það er bara þannig.“
Jón segist hafa haft samband
við Lögregluna á Suðurnesjum og
spurst fyrir um hvers vegna hann
hafi ekki verið látinn samstundis
vita af þessu.
„Ég átti samtal við lögregluna
og þeir höfðu sínar ástæður fyrir
því,“ segir Jón. „Þeir hafa einhverjar
vinnureglur um þetta og trúnað
í einhverjum málum. Þeir geta
kannski ekki verið að tilkynna um
einhverja ákveðna hluti. Í þessu
tilfelli var maðurinn ekki í fastri
vinnu hjá okkur. Ég get ekki skýrt
það nánar.“
„Einhver misskilningur“
Gunnar Schram, hjá Lögreglunni á
Suðurnesjum, segist ekki hafa skýr-
ingar á því hvers vegna slökkviliðs-
stjórinn var ekki látinn vita, aðrar
en þær að um misskilning hafi ver-
ið að ræða.
„Málið var afgreitt með venju-
bundnum hætti. Væntanlega lokið
með sektargreiðslu.“
Var slökkviliðsstjórinn ekki lát-
inn vita?
„Nei, það var nú það einkenni-
lega í þessu máli. Vegna einhvers
misskilnings fór engin tilkynning
frá lögreglu til hans. En hann fékk
spurnir af þessu fljótlega.“
Ekki hefur náðst í lögreglukon-
una sem var í bílnum. Sjúkraflutn-
ingamaðurinn sem um er rætt vildi
ekki tjá sig um málið þegar DV
hafði samband. n
„Vegna
einhvers
misskilnings fór
engin tilkynning
frá lögreglu til
hans
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Jón Guðlaugsson Slökkviliðsstjóri
á Suðurnesjum.Hver er
hann
n Hann er fæddur
árið 1956 og hefur verið
duglegur að halda upp á
afmæli sitt með stæl.
n Móðir hans var dönsk
og pabbi hans hálfíslenskur og
hálfnorskur.
n Hann tók virkan þátt í ýmsum
mótmælafundum veturinn 2008
vegna bankahrunsins.
n Haustið 2015 gaf hann út ljóða-
bókina Öskraðu gat á myrkrið.
n Hann er fæddur í tvíburamerk-
inu.
SVAR: BUBBI MORTHENS.
Það er
staðreynd að…
Í Hawaii er jólasveinninn kallaður
Kanakaloka.
Gervijólatré hafa verið söluhærri en
ósvikin tré á heimsvísu síðan árið 1991.
Hátt í þrjátíu Legósett eru seld á
hverri sekúndu á háannatíð jólanna.
White Christmas er söluhæsta jóla-
lag allra tíma, það var upphaflega
samið af tónskáldinu Irving Berlin.
Í nýlegri notendakönnun Yahoo
var kvikmyndin Home Alone kosin
vinsælasta jólamynd allra tíma. Í
öðru sæti er Prúðuleikaramyndin
The Muppet Christmas Carol og hin
sígilda It’s a Wonderful Life lenti í
þriðja.
Óþolandi gól í síbylju
S
varthöfði verður seint kall-
aður jólabarn. Jólin eru ekki
alslæm, þau eru tækifæri til
að rifja upp hvaða ættingjar
eru enn lifandi og samfélagið gef-
ur fólki grænt ljós á að háma í sig
reyktan mat. Jólastússið er hins
vegar löngu orðið þreytt í byrjun
desember og er Svarthöfði búinn
að átta sig á að jólabjór er einmitt
til þess að maður geti gleymt
jólunum.
Svarthöfði tók eftir því í miðri
umferðarteppu að eitís flass-
bakk-útvarpsstöðin er orðin að
Jólaflassbakk. Í fyrsta sinn í langan
tíma fór hann að flakka á milli
stöðva og tók eftir því að það eru
heilar þrjár útvarpsstöðvar sem
sérhæfa sig í að spila nánast ekkert
nema Last Christmas í sífellu.
Það að hlusta á útvarp fyrir jólin
2018 og hata þetta heimska lag er
vægast sagt örðugt. Þetta er eins
og eltingarleikur. Það eru fréttir
og svo Last Christmas. Þá er skipt
um stöð. Eitt „fyndið“ lag með
Baggalút og svo Last Christmas.
Næsta stöð. „Línan er laus, þú
heitir?“ … Og apakötturinn sem
hringir inn er að hlusta á Last
Christmas.
Eina athvarfið ku vera Rás 1. Þá
vill Svarthöfði nú frekar láta skera
sig í tvennt aftur og henda sér ofan
í eldfjall.
Ef það er ekki þetta Last
Christmas-gól í síbylju þá er það
Helgi Björns að syngja um eitthvað
sem hann nennir ekki. Það hjálpar
reyndar til að vita að þetta er ein-
hver sýra þýdd úr einhverju ítölsku
Eurovision-lagi.
Sum lög eru hrikaleg ef þau
eru hugsuð til enda. Snæfinn-
ur snjókarl beinlínis drepst í lok-
in á laginu um sig. Bráðnar eins
og nasisti í lokin á fyrstu Indiana
Jones. Þetta er verið að syngja á
leikskólum.
Svo er líka óþolandi þegar Snjó-
korn falla fer að heyrast og svo
byrjar einhver útlendingur að
gaula á útlensku, en ekki Laddi að
tilkynna að þau falli á allt og alla.
Og hvaða krakki segir „Ég
hlakka svo til“? Allir krakkaormar
sem Svarthöfði hefur komið ná-
lægt segja „Mér hlakkar“.
Þetta er allt vonlaust, en þó
skömminni skárra en katta-
vælið sem við munum senda í
Eurovision og verður spilað lát-
laust allan apríl og fram á sumar. n
Svarthöfði Snæfinnur snjókarl þegar hann sér sólina. Skjáskot úr kvikmyndinni
Raiders of the Lost Ark.