Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 10
10 21. desember 2018
F
yrsta dag næsta árs verður
Jair Bolsonaro settur í emb
ætti forseta Brasilíu. Ef þessi
63 ára fyrrverandi kapteinn
úr brasilíska hernum stendur við
kosningaloforð sín mun jörðin
öll finna fyrir áhrifum þeirra að
mati sérfræðings. Bolsonaro er
talinn vera öfgahægrimaður og
eitt af kosningaloforðum hans var
að afnema vernd sem Amazon,
stærsti regnskógur heims, nýtur í
Brasilíu. Skógurinn hefur oft verið
nefndur lungu heimsins en hann
skiptir miklu máli fyrir súrefnis
framleiðslu jarðarinnar og upp
töku gróðurhúsalofttegunda. Það
var þó ekki þetta kosningaloforð
sem heillaði Brasilíumenn heldur
loforð hans um að taka á landlægri
spillingu í landinu.
Skóglendið sem um ræðir og
Bolsonaro vill hætta að vernda
fyrir ágangi skógarhöggsmanna,
bænda og námueigenda er tæp
lega 20 sinnum stærra en Þýska
land. Vistkerfi svæðisins er fjöl
breytt og stendur undir um 20
prósentum af því súrefni sem
er losað út í andrúmsloftið á
jörðinni og því er oft talað um það
sem lungu heimsins. Bolsonaro
lofaði einnig að leggja hraðbraut
ir í gegnum Amazon. Stór hluti
skógarins er einnig verndarsvæði
frumbyggja Brasilíu en Bolsonaro
hefur einnig ráðist gegn þeim
og hefur meðal annars sagt að
verndarsvæðin standi í vegi fyrir
þróun.
Eins og kosningaloforð hans
bera með sér er hann efasemda
maður um loftslagsbreytingarnar
og hefur því að auki í hyggju að
veikja umhverfisverndarstofn
anir landsins, svipað og Donald
Trump hefur gert í Bandaríkjun
um, þannig að þær geti ekki lengur
framfylgt lögum um vernd Ama
zon með því að „skrifa sektir alls
staðar“ eins og hann hefur sjálfur
sagt. Það er athyglisvert í því sam
bandi að hann sjálfur hefur ekki
greitt sekt upp á sem nemur um
300.000 íslenskum krónum fyrir
að hafa stundað veiðar á friðuðu
svæði í Amazon.
Bolsonaro hefur líka í hyggju
að fylgja fordæmi Trump og draga
Brasilíu út úr Parísarsáttmálanum
um loftslagsbreytingarnar og að
gerðir gegn þeim. Ljóst er að ein
hverjar breytingar verða í þess
um málaflokki því í síðustu viku
tilkynntu brasilísk stjórnvöld að
landið væri hætt við að halda lofts
lagsráðstefnu Sameinuðu þjóð
anna á næsta ári og því þarf að
finna nýjan gestgjafa.
Bolsonaro hefur útnefnt Ernesto
Araujo, sem er mikill efasemdar
maður um loftslagsbreytingarnar,
sem utanríkisráðherra. Araujo
hefur meðal annars sagt að lofts
lagsbreytingarnar séu ekkert ann
að en samsæri marxista sem sé
notað sem yfirvarp til að rétt
læta fleiri lög og reglugerðir sem
íþyngja efnahagslífinu og færi al
þjóðlegum stofnunum meira vald
yfir einstökum ríkjum heims. Þetta
kyrki hagvöxt í kapítalískum lýð
ræðisríkjum og ýti undir hagvöxt
í Kína.
Alþjóðlegur þrýstingur
Amazon (Amazonas) þekur um
sex milljónir ferkílómetra lands í
SuðurAmeríku. Stærsti hlutinn,
um 60 prósent, er í Brasilíu en
restin er í Venesúela, Kólumbíu,
Ekvador, Perú og Bólivíu. Skóg
urinn er rúmlega helmingur þess
regnskógar sem eftir er á jörðinni
og þar býr rúmlega helmingur
þeirra plöntu og dýrategunda
sem til eru. Skógarhögg hefur ver
ið sívaxandi vandamál frá sjöunda
áratugnum en það náði hámarki
á tíunda áratugnum þegar svæði
á stærð við Spán var rutt til búa til
beitiland fyrir kýr og ræktun soja
bauna.
Það gæti þó dregið úr fram
kvæmdagleði Bolsonaro við að
efna þessi kosningaloforð að að
gangur Brasilíu að evrópskum
mörkuðum kynni að lokast, en
þeir eru mikilvægir fyrir nauta
kjöt og sojabaunir. Nýlega gerði
Emmanuel Macron, forseti Frakk
lands, það ljóst að ef Brasilía
drægi sig út úr Parísarsáttmálan
um myndi hann ekki skrifa und
ir fríverslunarsamning ESB og
Mercusur, sem er fríverslunar
bandalag Brasilíu, Argentínu,
Paragvæ og Úrúgvæ, en hann er
nær frágenginn. Macron sagðist
ekki geta beðið franska bændur
og verkamenn um að breyta fram
leiðsluaðferðum sínum eingöngu
til að hann gæti skrifað undir við
skiptasamning við ríki sem fara
aðrar leiðir.
Ekkert hefur heyrst frá Bol
sonaro um þessi orð Macron.
En hvað sem því líður er ljóst að
mikil stefnubreyting er að verða í
Brasilíu. Brasilíumenn voru gest
gjafar þegar fulltrúar ríkja heims
funduðu í fyrsta sinn 1992 og
ræddu þörfina á sameiginleg
um aðgerðum vegna loftslags
breytinga og umhverfismála.
Landið lék stórt hlutverk á lofts
lagsráðstefnunni í París 2015 og
átti stóran þátt í að Parísarsátt
málinn varð að veruleika. Brasilía
er sjöundi stærsti losandi gróður
húsalofttegunda í heiminum og
er því mjög mikilvægt ríki á þessu
sviði. Aðgerðir landsins til að
vernda Amazon hafa einnig lengi
verið lofsamaðar sem dæmi um
góðan árangur í baráttunni við að
bjarga regnskógum jarðar.
Frá 2004 til 2014 dróst
skógarhögg mikið saman en það
er eitt af lykilatriðunum í loftslags
baráttunni því Amazon tekur mik
ið magn koltvísýrings í sig. Þróun
in hefur snúist við á síðustu árum.
Eftirlitskerfi landsins veiktust í
kjölfar óróans í kringum Dilma
Rousseff forseta og brottvikningu
hennar úr forsetaembætti. Á síð
asta ári voru 8.000 ferkílómetr
ar skóglendis brenndir eða felldir
en það er 13,7 prósenta aukning
frá árinu áður. Nú óttast margir að
þessi þróun muni halda áfram og
verða hraðari. n
FRÉTTIR - ERLENT
„Aðgerðir landsins til að
vernda Amazon hafa einnig
lengi verið lofsamaðar sem dæmi
um góðan árangur í baráttunni til
að bjarga regnskógum heimsins
FEGURÐ
ENDING
MÝKT
Kostirnir eru ótvíræðir:
• Fallegra hús
• Ekkert viðhald
Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is
VEGGKLÆÐNINGAR
Fyrir allar gerðir húsa, ný
jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða
Jair
Bolsonaro
Hefur verið
líkt við Donald
Trump.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Nýr hægrisinnaður forseti Brasilíu
hyggst hætta að vernda Amazon
n Stærsti regnskógur heims n Lungu heimsins