Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 34
Þorláksmessa 21. desember 2018KYNNINGARBLAÐ HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR: Skemmtileg og öðruvísi gjöf sem heldur áfram að gefa Á gjafabréfasíðu Hjálparstarfs kirkjunnar, gjofsemgefur.is, finnur þú frumlega og skemmtilega gjöf fyrir vini og ætt- ingja og um leið styrkir þú – og sá sem gjafabréfið fær – fjölskyldu sem býr við erfiðar aðstæður hvort sem er hér heima á Íslandi eða á verkefnasvæðum Hjálparstarfs kirkjunnar erlendis. Þegar þú kaupir gjafabréf á gjof- semgefur.is byrjar þú á því að velja gjöf og skrifar svo kveðju á gjafa- bréfið til viðtakanda þess. Í næsta skrefi getur þú valið að fá gjafa- bréfið sent til þín með tölvupósti til að prenta út heima. En þú getur líka valið að fá það prentað á silkipappír á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar á Háaleitisbraut 66 í Reykjavík og að það verði sent beint til viðtak- anda. Unnið með fólki „Hjálparstarf kirkjunnar hjálpar þar sem þörfin er mest og alltaf í samstarfi við fólkið sem aðstoðina fær og staðbundin hjálparsamtök á svæðunum þar sem við vinnum. Það fólk þekkir best vandann sem glímt er við og leiðir til að leysa hann. Okkar hugmyndum og lausnum er ekki þröngvað upp á fólk og þess vegna eru allar gjafirnar á gjof- semgefur.is eitthvað sem örugg- lega vantar og örugglega kemur að gagni,“ segir Kristín Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi Hjálparstarfs kirkj- unnar. Hvert fer andvirði gjafabréfsins? „Þegar fólk kaupir gjafabréf á gjofsemgefur.is ákveður það í hvað peningarnir fara en til þess að áhugi okkar verði ekki þörfinni yfirsterk- ari höfum við sett gjafirnar saman í flokka. Þannig er hægt að hafa nauðsynlegan sveigjanleika í stuðn- ingi okkar við þá sem þurfa á hjálp okkar að halda,“ segir Kristín. „Ef þú kaupir gjafabréfið Geit handa vini eða ættingja geturðu verið viss um að andvirði þess fer beint í húsdýra- og jarðrækt- arverkefni okkar. Þegar allir sem eiga að fá geit, samkvæmt áætlun verkefnisins, hafa fengið hana fer peningurinn næst í að kaupa verk- færi og fræ og svo framvegis. Eins ef þú kaupir Vatn fyrir 20 manns þá veistu að fyrir þína peninga verður fólki útvegað hreint vatn eða ann- að það sem stuðlar að betri heilsu þess. Við gröfum brunna og vatns- þrær og setjum upp vatnstanka. En þegar því er lokið samkvæmt áætlun hvers árs, fara peningarnir í fræðslu um mikilvægi hreinlætis og hvernig hægt er að koma í veg fyrir smitsjúkdóma.“ n Kveðjurnar sem fólk skrifar á gjafabréfin eru margskonar. Þær eru hlýlegar, fyndn- ar, einlægar og jafnvel í vísuformi, allt eftir tilefninu, fólkinu sem gefur og fólkinu sem fær gjafabréfin. Nýleg kveðja hljóðar svona: Kæra afmælisbarn! Við vonum að þessi afmælisgjöf megi gleðja þig jafnt sem þá sem hennar njóta. Megi komandi ár verða þér gæfurík. Á gjofsemgefur.is eru yfir fjörutíu mismunandi gjafabréf en hvert þeirra lýsir verkþætti í verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar á Íslandi og á verkefnasvæðum erlendis. www.gjofsemgefur.is Gjafab réf Andv irði þ essa gjaf abré fs ge fur h lutde ild í brun ni. Hrein t, tær t og fr ískan di vat n er u ndirst aða alls líf s í he iminu m. Þó hafa 800 milljón ir mann a ek ki að gang að hreinu vatn i. Brunn ur br eytir þessu fyrir allt a ð 60 0 mann s, til f ramb úðar. Í þorp i í Ma laví m un lífið ta ka sta kkask iptum . Heil su far batna r og vin nuála g á s túlk um og k on um verð ur minna , því þ að er þeirra hlut v erk að sækj a vatn. Stúlk ur fá loksin s tím a til a ð gan ga í skól a og konur fá m eiri tím a til a ð sinn a börnu m, ræ ktun o g velf erð fjö l skyld unnar . Þetta gjafa bréf g efur 2 0 ma nns h lutdei ld í brunn i og þ ar me ð vatn til ára tuga. Hrein t vatn fyrir 2 0 man ns Gjafabré f fyrir fjö lskyldu í Afrík u. Fyrir a ndvirð i þess a gjaf abréfs verðu r fátækr i fjölsk yldu í Úgand a eða Malav í gefin g eit. Fjö lskyldu rnar, þ .á m. mun­ aðarla us bö rn sem búa ein, ta ka þá tt í þró unarve rkefni með Hjálp a rstarfi kirkjun nar. F yrst er vatns aflað og þa ð svo ný tt til a ð veita á akr a, til a ð gera fiskiræ ktartja rnir eð a til að halda skepn ur. Geit g efur a f sér m jólk, ta ð til á burðar , afkvæ mi og skinn sem ýmist má no ta heima eða s elja fyr ir nauð þurftum . Taðið bætir uppsk eruna, fæða n verð ur fjöl ­ breytt a ri með prótín um ge ita afur ð anna og he ilsan batnar . Afk oman verður örugga ri en með upp sk erunni einn i saman og lífs gæðin meiri. Geit Gjafabréf Andvirði þessa gjafabréf s fer til kaupa á skólagö gnum fyrir börn á Íslandi. Það er leikur að læra Það verður leikur að læ ra með nauðsyn­ legar bækur, ritföng, skjólgóða úlpu, tölvu og skól a gjöldin g reidd í fram halds­ skóla. Með þessu gja fa bréfi sérð þú til þess að unglingur frá efnalítilli fjölskyldu á Íslandi hafi þetta allt með ferðis og sé klár í skólann. Þú dreg ur úr líkum á því að unglingurinn hætti í skóla og lendi í vítahring lítillar menntun ar, lágra launa og fátæktar – að barn líði fyrir stöðu foreldra sinna. Gjöf til skólabyrju nar er góð gjöf. Gjöf sem Gefur Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu á Íslandi eða erlendis um nauðsynjar. Gefðu frumlega og skemmtilega gjöf sem getur breytt miklu fyrir fólk sem þarf á aðstoð að halda. „Elsku systir, þú hefur gefið fjölskyldu í Afríku vatnsbrunn“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.