Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 39
Þorláksmessa 21. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Ætlar að mynda ónæmi
gegn skötufnyknum!
Jónas Sig heldur útgáfutónleika í Gamla Bíói 23. des. ásamt fríðum flokki
Okkar landsþekkti Jónas Sig var að
gefa út plötuna Milda hjartað. Nafnið
segir hann koma út frá hnattrænni
þörf á almennri mildi sem gæti
mögulega bjargað heiminum. Ásamt
fríðu föruneyti mun hann halda helj-
arinnar útgáfutónleikaveislu í Gamla
Bíói á Þorláksmessu og er hann að
sögn gífurlega spenntur að fá að
spila nýtt efni fyrir eftirvæntingar-
fulla tónleikagesti. Blaðamaður tók
Jónas Sig. tali og spurði hann fáeinna
spurninga.
Til hamingju með plötuna! Viltu
segja aðeins frá henni?
„Takk! Ég er búinn að vera að vinna
þessa plötu síðustu tvö ár í góðri
samvinnu við vin minn, Ómar Guð-
jónsson, sem stýrði upptökum. Mig
langaði svo að gera „singer/songw-
riter“-plötu eins og menn gerðu
hérna áður fyrr þar sem aðaláherslan
var á sterkar lagasmíðar, frásögn og
ríkan boðskap. Helst tekið upp sem
mest í heilu lagi með hljómveit þar
sem áhersla er lögð á lifandi spila-
mennsku og mikið pláss fyrir sönginn/
sögumann. Að auki hefur mig lengi
langað að vinna með þetta þema.
Þessa hugmynd um mildi sem ég tel
vera orðið mikilvægasta fyrirbærið
sem gæti mögulega bjargað mann-
kyninu og með því heiminum okkar.
Að temja sér mildi og hlýju. Að það sé
ekki veikleiki að vera mildur með opið
hjarta. Að fólk geti verið sterkt en á
sama tíma með milt og opið hjarta.
Platan er að skoða þetta út frá mis-
munandi sjónarhornum,“ segir Jónas.
Lagið „Dansiði“ á plötunni Milda
hjartað með Jónasi sig.
Mega aðdáendur búast við samb-
ærilegu efni á nýju plötunni?
„Ég myndi segja að hljómurinn
væri frábrugðinn. Ég hef áður unnið
meira í stúdíóinu við að leggja niður
rásir til að gera hljóminn eins þéttann
og feitan og mögulegt er. Stundum
hef ég yfirhlaðið lögin í framleiðslunni
af því að mér finnst það gaman og
kann að meta svoleiðis vinnubrögð.
Þannig getur myndast mikill kraftur.
Þá hef ég líka áður unnið mikið með
sterkan brasshljóm og kraftmikla
stóra hljómsveit undir nafninu „Rit-
vélar framtíðarinnar“. Nýja platan er
hins vegar klassísk sólóplata, svolítið
í ætt við fyrstu plötuna sem ég gerði
undir eigin nafni. Hún er strípaðri og
einfaldari. Það er auðveldara að setja
hana á fóninn og taka hana beint inn
í hjartað. Ég hugsaði hana allavega
þannig. Ég vona að það sé að virka.“
Hvernig hefur fólk tekið við sér og
hefur platan selst vel fyrir jólin?
„Sölutölur í dag eru töluvert öðru-
vísi en maður átti að venjast hérna
áður í plötusölu. En í staðinn þá er
komin mikil dreifing á netinu eins og
Spotify og annað. Ég verð að segja
að platan hefur fengið frábærar við-
tökur, framúrskarandi góða umfjöllun
og mikið er verið að hlusta og tékka
á henni. Það verður svo gaman að
sjá hvernig það þróast áfram með
tímanum.“
Nú verða útgáfutónleikar í Gamla
Bíói þann 23. des. Er ekki gífurleg
eftirvænting í liðinu?
„Jú, heldur betur! Sérstaklega í
ljósi þess að við ákváðum að halda
einu tónleikana okkar í bænum, sjálfa
útgáfutónleika plötunnar, á Þor-
láksmessu. Við höfum hingað til verið
með létta og vel heppnaða tónleika
á Hard Rock Café á Þorláksmessu
sem hefur selst upp á síðustu ár, en
ákváðum að breyta til núna í kjölfar
nýju plötunnar og slá saman í útgáfu-
tónleika. Þá þurftum við auðvitað að
færa okkur í annað rými með her-
legheitin, þannig að þessir tónleikar
fara fram í Gamla Bíói. Vitandi hversu
margir bíða spenntir eftir tónleikum í
bænum þá er komin mikil tilhlökkun í
gengið fyrir þessum tónleikum.“
Hvernig ætlið þið að tækla
skötufnykinn frá gestum?
„Ætli við skellum okkur ekki á bara
á skötuhlaðborð sjálfir og myndum
skötufnyks-ónæmi!“
Verða þetta ekki flottir tónleikar?
„Við lofum því. Án gríns! Við höf-
um þvælst um landið undanfarið og
erum búnir að spila útgáfutónleika-
röðina í Þorlákshöfn, Karlsstöðum
í Berufirði, Egilsstöðum, Grindavík,
Akranesi, Akureyri og Siglufirði. Þetta
eru auðvitað allt ægifagrir staðir og
langflestir með gullfallegt útsýni yfir
hafið sem er gríðarlega stór hluti af
menningarlífi hvers samfélags. Það
er mikil spilagleði og falleg vinátta
í hópnum og við erum mjög spennt
að spila í Gamla Bíói. Það er síðan
toppurinn að eiga þessa upplifun
og deila með tónleikagestum hvert
sinnið.“
Nældu þér í miða á útgáfutónleika
Jónasar Sig á midi.is sunnudaginn
23. desember kl. 22.00 í Gamla Bíói.
n