Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 50
50 FÓLK 21. desember 2018
Þau deildu á árinu
Það er margt búið að gerast á árinu og fjölmargar deilur
komið upp. Nú eru hins vegar að koma jól, hátíð ljóss
og friðar. Það þýðir að við leggjum deilumál til hliðar, í
það minnsta yfir hátíðirnar. DV tók saman nokkur sem
hafa átt í deilum á árinu og spurði hvað þau myndu gefa
hinum aðilanum í jólagjöf. Ekki bárust skýr svör frá öllum
þannig að DV tók sér bessaleyfi að velja
og pakka inn fyrir þá.
Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, hjólaði
í verkalýðsforingjann Vilhjálm Birgisson í haust
og sakaði hann um að beita verkalýðshreyf-
ingunni gegn útlendingum. Vilhjálmur var vægast
sagt ósáttur.
„Ég myndi gefa
honum dags-
ferð til Verka-
lýðsfélags Akra-
ness með fæði til
kynna sér þá miklu
vinnu sem verka-
lýðshreyfingin er
að inna af hendi við að verja réttindi innlendra
sem erlendra félagsmanna sinna.“
„Ég þekki ekki
Vilhjálm svo ég
myndi örugglega
bara gefa honum
pening.“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og
Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, eru langt
frá því að vera sammála um hvernig eigi að bæta
lífskjör vinnandi fólks á Íslandi. Hörður sagði í
leiðara Fréttablaðsins í október að forystumenn
verkalýðsfélaganna væru stærsta ógn in við lífs kjör
meg inþorra ís lensks launa fólks á kom andi árum og
að engin innistæða væri fyrir launakröfum þeirra.
Sólveig sagði orð hans lýsa „sturlaðri“ stemningu í
„herbúðum óvina hinna vinnandi stétta“.
Sólveig Anna vildi
frá að hugsa málið
þegar DV hafði sam-
band en svaraði svo
ekki. Sólveig gæti
gefið honum Global
Woman eftir Bar-
böru Ehrenreich, en
hún hefur lýst velþóknun sinni á bókinni.
Hörður svar-
aði ekki fyrirspurn
DV. Hann gæti gefið
henni bókina Hag-
fræði í hnotskurn eft-
ir Henry Hazlitt, svo
hún geti hent henni í
ruslið … aftur.
Þingmennirnir Brynjar Níelsson og Björn Leví
Gunnarsson hafa verið reglulega í fréttum á þessu
ári þar sem þeir eru undantekningarlaust á önd-
verðum meiði í stjórnmálaumræðunni. Björn Leví
hefur lagt fram ótal fyrirspurnir á þessu ári og
gengið hart á eftir upplýsingum um aksturskostn-
að þingmanna. Brynjar hefur sagt Björn Leví vera
„niðursetning“ á „sokkaleistunum“ með „fyrir-
spurnaræði“.
„Ég myndi gefa Brynj-
ari Ríkið eftir Platón.
Þarf að útskýra það
eitthvað frekar?“
„Tja, það hefur enga
þýðingu að gefa hon-
um skó eða bindi því ég
vil gefa fólki gjafir sem
nýtast. Myndi senni-
lega gefa honum Nýja
testamentið og nám-
skeið hjá Dale Carnegie.
Kannski sokka með gati
á tánni að auki.“
Femínistinn Elísabet Ýr Atladóttir
og útvarpsmaðurinn Frosti Loga-
son áttu í deilum á árinu, þau
mál eru of flókin til að rekja í
stuttu máli en það má segja að
femínismi, aktívismi og blaða-
mennska komi þar við sögu.
„Ég
held ég myndi gefa honum
bókina Why Does He Do
That eftir Lundy Bancroft. Frá-
bær bók eftir mann sem vann sem meðferðar-
aðili fyrir ofbeldismenn, en hann skrifaði þessa bók fyr-
ir þolendur þeirra. Hann fer í saumana á því hvernig ofbeldismenn
vinna, hvaða trikk þeir nota til að líta vel út út á við, og hvað þeir gera
til að halda ógnarvaldi á sínum nánustu. Ég held þetta væri frábær
gjöf handa Frosta því hann virðist hafa haft mikinn áhuga á þess-
um málefnum undanfarið og talað við ýmsa menn í þættinum sín-
um sem hann gæti jafnvel stúderað aðeins nánar út frá þessarri bók.
Þetta er líka ein af mínum uppáhaldsbókum og bækur eru alltaf frá-
bær gjöf. Þetta er bók sem allir ættu að eiga.
Það er hægt að finna þessa bók frítt
hér og þar á netinu, en sumt er bara
langbest að eiga á kilju. Sérstak-
lega svona gersemi.“
Frosti hló þegar DV bar upp erindið.
Frosti gæti gefið henni Tólf lífsreglur – Mótefni við
glundroða eftir Jordan Peterson ásamt geisladiski þar
sem ljúf rödd Frosta fer í gengum bókina.
Til: FrostaFrá: Elísabetu Ýri
Til: Elísab
etar Ýrar
Frá: Frost
a
Til: BrynjarsFrá: Birni Leví
Til: Björns Levís
Til: Harðar
Frá: Sólveigu Önnu
Til: Sólveigar ÖnnuFrá: Herði
Til: Pawels
Frá: Brynjari
Frá: Vilhjálmi
Til: Vilhjálms
Frá: Pawel
Vilhjálmur Birgisson Pawel Bartoszek
Björn Leví Gunnarsson Brynjar Níelsson
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is