Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Side 62
62 21. desember 2018
R
étt fyrir jól brá yðar einlæg-
ur sér til Englands í stutta
helgarferð á aðventunni
enda er örugglega einhvers
staðar vísindalega sannað að slík-
ar ferðir bæta, hressa og kæta. Að
þessu sinni var ákveðið að halda
til borgarinnar Brighton, sem er í
klukkustundar fjarlægð í suðurátt
frá London. Þó að London sé frá-
bær þá er mikilvægt að opna aug-
un fyrir nýjum stöðum og upplif-
un.
Langbest er að fljúga til
Gatwick-flugvallar Londonborgar
en frá honum er aðeins tæpur
hálftími í lest til Brighton. Til sam-
anburðar tekur tæpar tvær klukku-
stundir að ferðast frá Heathrow-
flugvelli og rúmlega tvo tíma frá
Stansted.
Strax í lestinni til borgarinnar
hitti ég hressan borgarbúa sem
hafði gaman að því að ráðleggja
mér í hvívetna. „Í Brighton getur
þú labbað út á nærbuxunum ein-
um fata og það veitir þér enginn
sérstaka eftirtekt,“ sagði kappinn
glaðlega. Fyrst taldi ég að mað-
urinn hlyti að vera að ljúga þessu
en eftir nokkrar klukkustundir
í Brighton þá komst ég að því
að þetta er líklega hverju orði
sannara.
Frjálslyndið er aðalsmerki
Brighton enda er borgin orðin höf-
uðborg samkynhneigðra í Bret-
landi. Þann sess öðlaðist borgin
ekki af sjálfri sér heldur hefur sú
þróun tekið rúm tvö hundruð ár.
Í dag er talið að allt að 15% íbúa
Brighton séu sam- eða tvíkyn-
hneigðir og víða um borgina má
sjá regnbogafána blakta við hún.
Göngutúr um Brighton-bryggju
Hin aldagamla Brighton-bryggja
blasir við þegar gengið er niður
að sjávarsíðu borgarinnar. Bryggj-
an er afar tilkomumikil og þar
er veitingastaður, sölubásar og
margs konar leiktæki fyrir börn.
Bryggjan er afar vinsæl á heit-
um sumardögum en ekki er síð-
ur notalegt að ganga hana endi-
langa kappklæddur á svölum
vetrardögum og fylgjast með gæf-
um mávunum berjast um alla bita
sem í boði eru. Frá bryggjunni
blasa við leifar Vesturbryggjunnar
svokölluðu sem var enn eldra og
tilkomumeira mannvirki. Vestur-
bryggjan var opnuð með pomp og
prakt árið 1866 og var krúnudjásn
Brighton-borgar allt þar til henni
var lokað árið 1975 og þá hrakaði
mannvirkinu hratt. Árið 2003 urðu
tveir eldsvoðar til þess að bryggj-
an hrundi að mestu leyti og núna
stendur aðeins brothætt grindin
upp úr öldurótinu. „Borgin kveikti
í bryggjunni þessu til þess að fá
tryggingarféð. Það borgaði sig
ekki að gera við hana,“ sagði áður-
nefndur Brighton-búi sem ég
spjallaði við í lestinni eins og ekk-
ert væri sjálfsagðara.
Í kjölfar brunans reisti British
Airways eins konar útsýnisturn.
Að sögn viðmælanda míns fyrirlíta
flestir borgarbúar turninn en þar
má þó sjá skemmtilegt sjónarhorn
af borginni. Ég ákvað að sýna
Brighton-búum stuðning minn í
verki, eða öllu heldur þessum eina
Brighton-búa sem laug þessu að
mér, og hunsa turninn.
Royal Pavilion
Ein helsta ferðamannaperla
Brighton er þessi undarlega
lágreista höll sem var byggð fyrir
rúmum tvö hundruð árum sem
sumarathvarf fyrir Georg IV. Segja
má að höllin birtist eins og skratt-
inn úr sauðarleggnum í hjarta
borgarinnar enda minnir arkitekt-
úrinn á Mið-Austurlönd eða Ind-
land. Garðar hallarinnar eru vin-
sælir til göngutúra, sérstaklega á
sumrin, og ferðamenn geta skoð-
að höllina að innan fyrir vægt
gjald.
The North Laine
Afar skemmtilegt svæði. Um 400
mismunandi búðir, krár, veitinga-
staðir og listagallerí í litlum
lágreistum byggingum. Þar eru
margar bestu knæpur borgarinn-
ar, til dæmis The White Rabbit sem
státar af Lísu í Undralandi-þema
og kokteilbarinn Bar Valentino
sem er einn sá elsti í borginni, að
sögn, og stúdentabarinn Hob-
goblin.
The Lanes
Afar skemmtilegt svæði sem
minnir stundum á hálfgert
völdunarhús. Inngangurinn er
skammt frá The Royal Pavilion og
hlykkjast síðan upp að Churchill-
verslunarmiðstöðinni. Þar er mik-
ið af skartgripabúðum og alls kon-
ar skringilegum verslunum auk
þess sem krár og veitingastaðir
eru alltaf innan seilingar. Ef ein-
hverjar þurfa að losna við fótbolta-
óðan makann þá er afar sniðugt
að henda viðkomandi inn á hina
rúmgóðu krá The Font. Um er að
ræða gamla kapellu sem gaman er
að heimsækja.
Choccywoccydoodah
Nafnið eitt og sér er næg ástæða til
þess að heimsækja þessa verslun
sem finna má á The Lanes. Þarna
er nánast allt gert úr súkkulaði,
styttur og ýmiss konar skrautmun-
ir. Á efri hæðinni er svo skemmti-
legt kaffihús þar sem það er
dauðasynd að kaupa sér ekki heitt
súkkulaði.
Veitingastaðir
Það væri að æra óstöðugan að
mæla með veitingastöðum í
Brighton. Úrvalið er gríðarlegt af
frábærum stöðum og í raun og
veru er erfitt að gera mistök. Það
var ætlun okkar að panta borð á
The Coal Shed, afar vinsælu steik-
húsi í borginni, en öll borð voru
uppbókuð um tveimur vikum
fyrir brottför. Af biturri reynslu
er því mælt með að panta borð á
veitingastöðum með talsverðum
fyrirvara, sérstaklega um helgar.
Fyrsta kvöldið vorum við ný-
lent og þreytt og duttum því inn
á taílenska veitingastaðinn Sawa-
dee á St. James-stræti. Okkur hafði
borist til eyrna að maturinn þar
væri í uppáhaldi hjá Emilíönu
Torrini og ef það er lygasaga þá
ber ég bara hér með ábyrgð á því
að festa hana í sessi! Veitingasalur-
inn er ekkert sérstaklega falleg-
ur en á móti kemur að maturinn
var frábær og á góðu verði. Rúm-
ensk transkona veitti okkur síðan
þá bestu þjónustu sem við höfum
upplifað og því mæli ég óhræddur
með staðnum.
Seinna kvöldið höfðum við
síðan pantað borð á The Indian
Summer á East-stræti sem á að
vera dáðasti indverski staður
borgarinnar. Sá staður var afar
smekklegur og þjónustan góð en
maturinn var í raun og veru bara
allt í lagi. Mögulega spilaði inn
í að hádegisverður var snæddur
óvenju seint og því hafði svengd-
in ekki alveg sagt til sín. Það var þó
ekki hægt að sleppa borðinu enda
staðurinn þéttsetinn.
Að endingu verð ég að mæla
með litlum ítölskum veitingastað,
og búð, sem heitir VIP eða Very
Italian Pizza. Ítalskur þjónn hafði
tjáð okkur að þarna væru bestu
pítsur Brighton í boði og það mat
sérfræðingsins reyndist alveg hár-
rétt. Staðurinn er þó afar lítill, rétt
um tíu borð, og því er það algjör
heppni ef maður fær borð strax.
Einhver bið er þó þess virði.
Gisting
Að sjálfsögðu er einnig ógrynni
af hótelum í boði í Brighton og
ómögulegt að þykjast vera með
einhverja sérfræðiþekkingu. Við
bókuðum herbergi í tvær nætur
á skemmtilegu litlu tólf herbergja
hóteli sem heitir Blanch House
og er við Atlingworth-stræti. Á
heimasíðu hótelsins kemur fram
að meðal annars Noel Gallagher
og Gwyneth Paltrow hafi gist þar
en öllum hugsandi mönnum er
náttúrlega skítsama um það.
Á hótelinu eru börn réttileg
bönnuð, án gríns, og fönkí breskur
andi svífur yfir vötnum. Þjónusta
starfsfólks er algjörlega frábær
og allt viðmót afar persónulegt.
Til dæmis lentum við á spjalli við
einn af eigendunum, Kevin, sem
átti bara einn þátt eftir af íslensku
sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð og
var gjörsamlega heillaður.
Herbergin hótelsins eru sum
hver ansi litrík og skemmtileg en
gott er að láta ekki hljóðbærni
hússins og afar lítil baðherbergi
fara í taugarnar á sér. Ekki er síðan
annað hægt en að minnast á afar
smekklegan bar í móttöku hússins
og frábæran morgunverð sem
er innifalinn. Nóttin kostar um
20 þúsund krónur sem er ágætis
verð. n
FERÐALÖG
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu hágæða
innréttingar, sérsniðnar að þínum
óskum og þörfum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Afslöppun, verslun og gleði í hö
fuðborg frjálslyndis
Brighton Pier
British Airways-turninn
The Lanes
Greinarhöfundur mælir sérstaklega með
kránni The Font fyrir ölóðar boltabullur.
North Laine
Súkkulaðiorgía
Blanch House
Helgarferð til Brighton:
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is