Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 66
66 FÓLK xx. xxxxxx 201x
Áskriftarklúbbur DV
Meðlimir áskriftarklúbbs DV framvísa
aðildarkorti sem er í gildi hverju sinni til að
nýta sér þau tilboð og fríðindi sem eru í boði
hverju sinni fyrir áskrifendur DV.
Áskriftarklúbbur
Áskriftarklúbbskorti
ð gildir til 31.12.201
8
Wizar lock
Wizar lock Leður 239.900 kr.
Áskriftarklúbbsverð 179.925 kr.
Wizard lock Tau 199.900 kr.
Áskriftarklúbbsverð 149.925 kr.
T I L B O Ð DV O G VO G U E
ÁSKRIFTARKLÚBBA-
Tilboðið gildir til áramóta.
F Y R I R H E I M I L I Ð
Síðumúla 30 - Reykjavík / Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri / Sími 462 3504
Miklar uppsagnir hjá WOW boða nýja tíma í íslenskum
veruleika. Sú ferðamannasprengja sem einkennt hefur
síðasta áratug er kannski ekki eitthvað sem við getum
reitt okkur á til frambúðar. Ferðamannastraumurinn
hefur orsakað það að margir þjóðþekktir einstaklingar
hafa skellt sér í flugfreyju- og flugþjónabúningana.
Jafnvel þó að þeir hafi menntun og reynslu á allt öðru
sviði. Starfið hefur verið svo eftirsótt að dæmi eru um
að 1.200 manns hafi sótt um 40 stöður.
DV skoðaði nokkra af frægustu flugfreyjum og flug-
þjónum Íslands.
Ari starfaði áður sem flugþjónn hjá
Icelandair. Hefur hann notað þenn-
an tíma sem efnivið í uppistand
sitt og hefur það slegið í gegn, bæði
hjá Íslendingum og útlendingum.
Grínaðist hann með það að flugfar-
þegar hafi haldið að aðeins konur
gætu starfað við flugþjónustu. Þeir
hafi því talið hann vera flugstjór-
ann og enginn að fljúga vélinni.
Leikkonan Helga Braga varð landsþekkt fyrir gamanþættina Fóst-
bræður. Þar skrifaði hún og lék ásamt Jóni Gnarr, Sigurjóni Kjartans-
syni og fleirum. Árið 2011 söðlaði hún um og útskrifaðist úr flug-
freyjuskóla Iceland Express og hóf í kjölfarið störf fyrir félagið. Árið
2013 fór hún yfir til WOW air.
Leikkonan Edda, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni
Stella í orlofi, útskrifaðist úr flugfreyjuskóla Iceland Express árið
2010. Hóf hún í kjölfarið að fljúga með félaginu. Edda sneri aftur í
leiklistina og sló til dæmis í gegn í kvikmyndinni Undir trénu.
Jón er gjarnan kallaður Jónsi í Svörtum fötum eftir hljómsveit hans
sem stofnuð var árið 1998. Hann hefur náð langt í tónlistinni og
meðal annar sungið í tvígang fyrir Íslands hönd í Eurovision. Jónsi
hóf störf sem flugþjónn hjá Icelandair árið 2007 og starfaði þar sam-
hliða listinni í áratug. Árið 2017 skipti hann um vettvang og starfar
nú hjá Arion banka.
Jóhanna varð fyrsta konan til
að gegna embætti forsætis-
ráðherra á Íslandi. Þá leiddi
hún Íslendinga í ólgusjó eft-
ir bankahrunið árið 2008. Jó-
hanna var bæði formaður
Þjóðvaka og Samfylkingarinnar
og gegndi ótal trúnaðarstörf-
um á ferli sínum. Árið 1962,
þegar Jóhanna var tvítug, hóf
hún störf sem flugfreyja hjá
Loftleiðum og starfaði þar allt
til ársins 1971.
Helga er ein þekktasta söngkona landsins og stundum kölluð diskó-
drottning Íslands. Þann titil fékk hún fyrir fjörutíu árum þegar hún
söng í dúettinum Þú og Ég. Einnig var hún í Icy-tríóinu sem söng
Gleðibankann árið 1986 í fyrstu Eurovision-keppni Íslendinga. Helga
hefur starfað sem flugfreyja í meira en þrjátíu ár samhliða tón-
listinni.
Helga Braga
Jónsdóttir
Ari Eldjárn
Edda Björgvinsdóttir
Jóhanna
Sigurðardóttir
Helga Möller
Jón Jósep Snæbjörnsson
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is